Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríður sár yfir örlögum móður sinnar: „Kerfið gerði allt til þess að svipta hana stolti og reisn“

Sigríður sár yfir örlögum móður sinnar: „Kerfið gerði allt til þess að svipta hana stolti og reisn“

Sigríður Björk Jóns­dóttir skrif­aði átaka­lega færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Þar fer hún yfir úrræða­leysi sem móðir hennar, Ólína Elísabet Jóns­dóttir mætti hvar­vetna í kerf­inu á Íslandi, bæði í hús­næð­is­kerf­inu og heil­brigðis. Gaf hún Mannlíf góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­una enda eigi inn­takið erindi við alla.

„Mig langar að segja smá sögu. Sögu af konu sem ég þekkti. Sögu sem ég hef fengið skrýtin við­brögð við því það er eins og fólk sjái ekk­ert rangt við þessa atburði og með­ferð. Og setur alla ábyrgð á kon­una og að hún hafi skapað sér þetta sjálf.“ Þannig byrjar færsla Sigríðar. Rekur hún svo raunir móður sinnar á leigu­mark­aðnum.

„Árið 2008 flutt­ist hún til Sand­gerðis. Eftir að hafa verið á leigu­mark­aðnum síðan “89. En áður en hún flutt­ist til Sand­gerðis þá hafði hún búið frá árinu 2003 í Hvera­gerði, Ölf­us­borgum, Eyr­ar­bakka, Hvera­gerði og tveir flutn­ingar í Þor­láks­höfn. Í Sand­gerði fékk hún hrör­legt hús en undi sér vel hún hafði þá alla veg­ana heim­ili. Árið 2017 var húsið selt og hún var búin reglu­lega í nokkur ár talað við bæj­ar­skrif­stof­unar um að sækja um hús­næði á þeirra vegum því húsið sem hún bjó í hafi verið á sölu svo lengi og ekk­ert hús­næði að finna í bæj­ar­fé­lag­inu. Nið­ur­staðan var sú að bæj­ar­skrif­stofan benti henni á tjald­svæðið í Sand­gerði en buðu henni ekki tjald. Systir hennar lán­aði henni tjald­vagn svo hún gæti þó alla­vega haldið á sér hita.. Hún lagði vagn­inum ekki langt frá hrein­læt­is­að­stöð­unni því hún átti erfitt með gang í raun erfitt með flestar hreyf­ingar. S.s. vefja­gigt, slit­gigt o.fl. Jú hún var drykk­felld að því var ekki af henni skafið en stóð alltaf í skilum og skuld­aði engum og gekk vel um það sem henni var treyst fyrir.

Ólína í tjald­vagn­inum

Þarna bjó hún allt sum­arið með kött­inn sinn eða í um tvo og ½ mánuð. Á vegum bæj­ar­ins kom félags­ráð­gjafi endrum eins til að athuga með hana .Hún var með spila­stokk­inn sinn til að spá og leggja kapal einnig tölvu og not­aði hana í að spila Solitaire. Bróðir minn fór með þetta í frétta­miðl­ana en það skil­aði engu. Og enn gerði bæj­ar­fé­lagið ekk­ert.“

Þurfti móðir Sigríðar sjálf að borga fyrir dvöl­ina á tjald­stæð­inu en á köflum lifði hún á núðlum sem ferða­menn skildu eftir.

„Sjálf þurfti hún að borga veru sína á tjald­svæð­inu og stundum var góð­æri því að túrist­arnir skildu oft eftir hálf­fullar flöskur sumar reyndar fullar af eðalvíni áður en þeir fóru í flug. Hún lifði stundum á núðlum sem skilið var eftir og ég segi það satt að hún drýgði þær stundum með hunda­súrum. Í end­aðan ágúst kom svo loks félags­ráð­gjaf­inn að nú væri komin lausn. Til þeirra hafi komið maður sem vor­kenndi þess­ari konu á tjald­svæð­inu og vildi endi­lega leigja henni íbúð. Ja ekk­ert annað í boði og tjald­svæð­inu var verið að loka þannig að hún verður að þiggja þessa íbúð. Íbúðin var á 160.000 engin gól­f­efni, illa hægt að kynda, raka sagg­ar­lygt og skemmdir. Opnanleg fög í ólagi, engin bað­her­berg­is­vaskur né speg­ill og bilað sal­erni, Auk þess var hún full af hús­gögnum eig­anda sem var að spara sjálfum sér kostnað við leigu á geymslu. Hún kom ekki öllu sínu fyrir en vildi ekki kvarta af ótta við að missa íbúð­ina. Þarna bjó hún í ár og heilsu hennar hrak­aði. 2018 er komið til hennar og henni til­kynnt að nú sé búið að finna henni hús­næði sem væri alveg nýtt og henni hafi verið úthlutað. Jú nýreist gáma­hýsið niður við grjót­garð­ana, tröppur með engu hand­riði úti­hurð sem opn­ast út og stundum þurfti að fara út um eld­hús­glugg­ann ef mikið rok var eða snjó­koma. Þarna var rampur smíð­aður úr timbri sem var flug­hált var í rign­ingu og í frosti. Hún var alsæl. Aðallega út af því að þessi stað­setn­ing minnti hana á æsku­slóðir við sjáv­ar­nið og fugla­líf. Heilsu hennar hrak­aði enn meir og hafði hún sam­band við bæj­ar­skrif­stofur hvort hægt væri að gera aðgengið betra, snúa úti­hurð, setja hand­rið á tröppur og stöng innan í sturt­una til að styðja sig við og stilla hit­ann á sturt­unni því ógjörn­ingur að stilla hit­ann því að vatnið sem kom úr sturtu­haus var 60 gráður og ef rétt hita­stig náð­ist þá mátti ekk­ert reka sig í blönd­un­ar­tækin því þau voru ekki still­an­leg nema eftir hönd undir vatns­flaumnum. Það tók marga mán­uði að fá þetta í gegn, þetta þurfti að fara i ferli hjá áhalda­húsi og þaðan í nefndir og svo í sam­þykkt­ar­ferli.“

Árið 2019 greind­ist móðir Sigríðar með tvö óskurð­hæf mein og þurfti hún að kljást við heil­brigð­is­kerfið í fram­hald­inu.

„Í maí 2019 grein­ist hún með tvö óskurð­hæf mein og þar lá leiðin í lyfja­með­ferð á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans. Henni leið vel þar og vel hugsað um hana og alsæl með félags­skap­inn. Henni var tjáð að nú væri komin tími á flutn­ing og það á sjúkra­húsið í Keflavík. En hún sagð­ist alls ekki vilja fara þangað því þar hafi hún alla tíð fengið litla, lélega eða enga þjón­ustu. Hálftíma seinna koma sjúkra­flutn­inga­menn og færa hana yfir í annað rúm og fékk hún 10 mín­útur til að taka saman allt hennar haf­urtask. Ekki var gefið tæki­færi til þess að ræða við einn né neinn því hún mjög ósátt þennan snögga ráða­hag.

Hún fer suðreftir en útskrifar sig dag­inn eftir gegn lækn­is­ráði vegna van­líð­unar á sjúkra­hús­inu. Úr þessu þarf hún að sækja áfram­hald­andi lyfja­með­ferð á Land­spít­al­anum 1x í viku og koma sér sjálf fram og til baka. Bæði var hún bíl­laus og hreyfi­geta engin, bundin við hjóla­stól og strætó úti­lok­aður. Hún bregður á það ráð að hringja á sjúkra­bíl til þess að kom­ast fram og til baka en það þýddi 16.000 ferðin fram og til baka. Og sjúkra­trygg­ingar taka ekki þátt í þeim kostn­aði og end­aði það með því að henni var tjáð að hún gæti ekki notað sjúkra­bíl sem leigu­bif­reið.

Ólína á tjald­stæð­inu

Nú var hún algjör­lega upp á aðra komin. hún þurfti að leita til nágranna eða ann­ara sem gátu komið henni á milli og það sem stóð helst í vegi var hennar stolt og upp­gjöfin að þurfa að biðja um hjálp og missa reisn. Því varð úr að hún missti úr nokkrar lyfja­gjafir. Svo var ákveðið að hætta lyfja­með­ferð vegna þess að hún mætti svo stop­ult. Þetta var í ágúst 2019. Henni er boðið heim­il­is­hjálp, heima­hjúkrun og matur í hádeg­inu. En hún var engan vegin fær um að bjarga sér sjálf á sterkum lyfjum sötr­andi bjór ofan í þau og aðstoða þurfti hana við allar dag­legar þarfir. Hvorki heim­il­is­hjálp né heima­hjúkrun voru með reglu­legt eft­ir­lit og henni er ekki sinnt eftir þörfum. Í nóv­em­ber er meinið búið að dreifa sér um allan lík­amann og við reynum að sækja um hvíld­ar­inn­lögn en ekk­ert ger­ist í þeim málum engin að aðstoða hana með umsókn­ar­ferlið og raun ef litið er til baka þá voru ekki upp­lýs­ingar um hvar ætti að sækja um og við hvern við ætti að tala. Hún ákvað að leggj­ast í kör og var látin febr­úar 2020.“

Að lokum seg­ist hún mjög reið og sorg­mædd yfir örlögum móður sinnar, því hún hafi ekki átt neitt af þessu skilið.

„Þetta er Ísland í hnot­skurn. Ég á erfitt með að ræða þessa hluti og er ekki mikið að tjá mig um þá því þetta er og var mamma mín. Eina sem hún barð­ist við alla ævi var fá að halda stolti og reisn. En Íslenska kerfið gerði allt til þess að svipta hana því. Og ég veit að fleiri hafa hlotið sömu örlög þar á meðal faðir minn er lést 2007 þá 52ja ára en mamma var 63ja.Ég er mjög reið, sorg­mædd og meir yfir örlögum hennar. Þótt okkar sam­band hafi ekki verið upp á það besta en það er allt annar kap­ít­uli. Hún átti ekk­ert af þessu skilið og var löngu búin að gef­ast upp enda búin að tala um í 20 ár að hún væri búin að fá nóg og hafi átt skemmti­legt líf en væri bara orðin svo þreytt. Hún var “bara” eins og sagt var, ráðs­kona flakk­andi um allar sveitir. Og þurfti að láta bjóða sér ýmis­legt svo við þrjú gætum verið undir sama þaki.

Hún fékk aðeins þrjú ár í skóla eða til 12 ára ald­urs (lands­lög brotin) því hún var yngst af 11 systk­inum, for­eldr­arnir aldr­aðir kot­bændur þar sem syn­irnir fengu skóla­göngu en dæt­urnar áttu að gift­ast. Hún var víð­lesin. Í ein­angr­unni las hún allt sem hún komst yfir og var eini krakk­inn eftir í sveit­inni því allur hrepp­ur­inn var far­inn í skóla í öðrum sveit­ar­fé­lögum. Hún var þekkt fyrir orða­snilli sína og stál­mynni og hennar íþrótt var að gera aðra kjaft­stopp. Hvorki dóm­ari né prestur hefðu átt roð í hana því betur kunni hún bibl­í­una en höf­undar hennar sjálfir. Merki­legt nokk, því hún kenndi sig við hann svarta sjálfan og galdra­seyð.“Ólína fædd­ist í Stóru Ávík á Ströndum árið 1955 en lést 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi