Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Matthildur stefnir hátt í fiðluleik: „Hugsaði oft til Tenerife þegar ég óð slabbið í vetur“

Matthildur stefnir hátt í fiðluleik: „Hugsaði oft til Tenerife þegar ég óð slabbið í vetur“

Matt­hildur Trausta­dóttir er 17 ára stúlka, sem myndi þiggja fleiri klukku­tíma í sól­ar­hringnum. Hún stundar af kappi nám í tveimur mennta­skólum, starfar í nem­enda­fé­lagi, gerir stutt­myndir, málar steina, leikur í upp­setn­ingum leik­fé­lags­ins og stundar félags­líf af krafti. Þar að auki æfir hún að lág­marki fjóra tíma á dag á hljóð­færið sitt, en hún þykir efni­legur fiðlu­leik­ari. Á morgun heldur Matt­hildur tón­leika í Dóm­kirkj­unni m.a. til að safna fyrir kostn­aði af þátt­töku í eft­ir­sóttu og stífu tón­list­ar­nám­skeiði í Banda­ríkj­unum, í sumar.

Ítalska kennitalan

Fyrsta ár ævi sinnar bjó Matt­hildur á Ítalíu. For­eldrar hennar störf­uðu þar sem leið­sögu­menn og fædd­ist Matt­hildur á ítölsku sjúkra­húsi í strand­bænum Rimini við strendur Adría­hafs. Í fartesk­inu hefur Matt­hildur því ítalska kenni­tölu. Getur þú sagt frá ein­hverjum minn­ingum frá Ítalíu?

„Ég get bara sagt frá því sem for­eldrar mínir hafa sagt mér, en mér er sagt að fyrstu skrefin hafi ég stigið á strönd­inni og að ég hafi fengið að smakka fyrsta ísinn á eins árs afmæli mínu og þótt hann veru­lega góður. Síðan þá hef ég elskað ís. Þá hafa þau sagt mér að það hafi verið mikið stress að finna nafn á mig, þar sem þau vissu ekki fyr­ir­fram að það ætti að gefa mér nafn strax við fæð­ingu, öðru­vísi gætu ég ekki útskrif­ast af spít­al­anum. Um leið og ég kom í heim­inn spurði lækn­ir­inn hvaða nafn ætti að gefa mér. Sögðust þau vera hrifin af nafn­inu Ronja en væru ekki alveg búin að ákveða það. Það nafn vildi lækn­ir­inn ekki taka í mál og útskýrði fyrir þeim að Ronja væri ítalskt orð yfir sjúk­dóm sem legð­ist á hunda. Hann heimt­aði því að ég fengi tign­ar­legra nafn og stakk upp á Viktoría. Mamma og pabbi voru ekki alveg til í það og lögð­ust yfir önnur nöfn og komust að end­ingu að þeirri nið­ur­stöðu að ég ætti að heita Matt­hildur.“

Eyjan fagra

Frá Ítalíu, með stuttri við­komu á Íslandi, lá leið fjöl­skyld­unnar til Kanarí­eyja. Þar bjó Matt­hildur í 13 ár, þar af 12 ár á eyj­unni fögru, Tenerife. Hvernig fannst þér að alast upp á Tenerife?

„Mér fannst það mjög gaman og hefði ekki viljað skipta því út fyrir neitt annað. Það var gott að vakna nán­ast alla daga í sól og blíðu, þó að ég hafi ekki alltaf getað notið góða veð­urs­ins á strönd­inni. Ég flutti til Tenerife þegar ég var fjög­urra ára og var fljót að læra spænsku, þar sem að ég fór strax í spænskan skóla. Mér finnst ómet­an­legt að hafa spænsku sem mitt annað tungu­mál og ég er líka þakk­lát mömmu og pabba fyrir að hafa passað upp á að ég myndi ekki gleyma íslensk­unni. Ég eign­að­ist fullt af góðum vinum til fram­tíðar og á ég frá­bærar minn­ingar með þeim. Ég sakna mest úti­há­tíð­anna en Kanarí­búar eru mjög dug­legir að vera með alls konar hátíðir á hvaða árs­tíma sem er. Skemmti­leg­asta hátíðin er klár­lega kjöt­kveðju­há­tíðin en þá er frí í öllum skólum í heila viku og fólk á öllum aldri klæð­ist bún­ingum og skemmtir sér á götum úti frá morgni til kvölds.“

Fjölhæf listakona

Í spjalli við Matt­hildi kemur ber­lega í ljós að henni er margt til lista lagt. Ung að aldri ákvað hún að vinna fyrir sér með steina­málun og hefur hún árlega unnið sér inn dágóðan vasa­pen­ing með sölu hand­mál­aðra steina á Borg­ar­firði eystri og er lund­inn þar helsta myndefnið. Í tóm­stundum hefur hún gert stutt­myndir og sigrað tvær stutt­mynda­keppnir, aðra erlendis og hina hér heima. Þar á ofan leiddi hún ræðulið sitt til sig­urs í ræðu­keppni grunn­skóla á Spáni. Hvað af þessu er nú skemmti­leg­ast, Matt­hildur?

„Þegar stórt er spurt! Mér finnst þetta allt mjög skemmti­legt og vildi stundum að ég hefði fleiri klukku­stundir í sól­ar­hringnum til að sinna áhuga­málum mínum en ég hef líka mjög gaman af því að fara á skíði, hlaupa, synda og fara í fjall­göngur. Ég hef einnig mik­inn áhuga á ljós­myndun og fór á skemmti­legt ljós­mynda­nám­skeið á Tenerife. Mér finnst ótrú­lega gaman í leik­list og dansi en ég þurfti því miður að leggja ball­ett­skóna á hill­una vegna álags í bæði dans­nám­inu og fiðlu­nám­inu. Ég var komin á þann stað að ég varð að velja. Leiklist næ ég samt að stunda og var svo heppin að fá hlut­verk í leik­sýn­ingum Kvennó í fyrra og í ár, en því miður varð að fella niður sýn­ing­arnar vegna Covid. Vonandi verður sýnt á næsta ári og þá næ ég kannski einni góðri sýn­ingu áður en ég kveð Kvennó.“

Í ár ákvað hún líka að hætta í kórnum vegna anna. En saknar Matt­hildur dans­ins og söngs­ins?

„Já, mjög mikið, sér­stak­lega dans­ins. Nýlega var ég til að mynda að hjálpa til við danskeppni í Borg­ar­leik­hús­inu, þar sem margir flottir dans­arar komu fram, og ég fékk fiðr­ing í mag­ann, því mig lang­aði svo til þess að dansa. Ég hrein­lega elska að dansa en á tíma­bili lang­aði mig að leggja dans­inn fyrir mig. Hver veit, kannski fer ég aftur að dansa við tæki­færi, ef tími leyfir.“

Framtíðaráform

Þegar heims­far­ald­ur­inn skall á stóð Matt­hildur frammi fyrir erf­iðri ákvörðun. Þá óskaði fiðlu­kenn­ari í eft­ir­sóttum tón­list­ar­mennta­skóla í Sviss eftir því að hún kæmi þangað til náms og bauð henni mynd­ar­legan styrk. Þetta var freist­andi boð en sjálfa lang­aði Matt­hildi hins vegar líka að styrkja ræt­urnar og fara í íslenskan mennta­skóla. Hvað átti hún að velja? Tilboðið frá Sviss var vissu­lega freist­andi en eftir að hafa leitað ráða hjá Víkingi Heiðari Ólafs­syni píanó­leik­ara og vini hennar Didda fiðlu, var þetta ekki lengur spurn­ing í hennar huga. Hvernig náðu þeir eig­in­lega að sann­færa þig um að flytja til Íslands?

„Í stuttu máli sagði Víkingur Heiðar mér að njóta þess að vera ung og upp­lifa félags­lífið á mennta­skóla­ár­unum, fara á sem flest böll og dansa sem allra mest. Því að ég hefði nægan tími til að taka mig alvar­lega þegar ég væri komin í stífan tón­list­ar­há­skóla erlendis. Og svo sögðu, bæði Víkingur og Diddi, að ef ég kæmi Ísland væri Guðný Guð­munds­dóttir frá­bær fiðlu­kenn­ari og að ég yrði ekki svikin ef ég kæm­ist í nám hjá henni. Ég var svo heppin að Guðný tók að sér að kenna mér og er ég þeim Didda og Víkingi mjög þakk­lát fyrir frá­bærar ráð­legg­ingar, þrátt fyrir að böllin hafi verið alltof fá.“

Eftir að hafa búið stærstan hluta ævinnar erlendis liggur bein­ast við að spyrja Matt­hildi hvort það hafi verið erfitt að flytja til Íslands eða líkt og túrist­arnir eru alltaf spurðir: Hvernig líkar þér við Ísland?.

„Mér líkar mjög vel á Íslandi. Auðvitað sakna ég allra vin­anna á Tenerife en er heppin að hafa líka eign­ast nýja og góða vini hér. Þó við­ur­kenni ég að ég sakna mjög góða veð­urs­ins og hugs­aði oft til Tenerife þegar ég óð slabbið í myrkr­inu á leið í skól­ann í vetur. En ég elska snjó­inn og það mættu vera fleiri fal­legir snjó­dagar.“

Fiðlan er framtíðin

Matt­hildur stefnir á að verða fiðlu­leik­ari og í sumar komst hún inn í hinn eft­ir­sótta sum­ar­tón­list­ar­skóla Meadowmount í Banda­ríkj­unum, sem er einn kröfu­harð­asti þar í landi. Til að geta sótt námið hefur Matt­hildur ákveðið að efna til fjár­öfl­un­ar­tón­leika í Dóm­kirkj­unni, kl. 18, á morgun, föstu­dag 6. maí. Á efn­is­skrá eru mörg meist­ara­verk tón­bók­mennt­anna.

„Mér datt í hug að halda þessa tón­leika, bæði til að loka skóla­ár­inu og eins til fjár­öfl­unar fyrir sum­ar­námið. En ég við­ur­kenni að ég átt­aði mig ekki alveg á því hvað þetta er mikil vinna þar sem ég hef æft stíft und­an­farnar vikur með­fram öllu hinu, meðal ann­ars rit­gerð­ar­skrifum, verk­efnum og prófum í tveimur mennta­skólum en ég hlakki mikið til tón­leik­anna. Ég hlakka til að hitta sem flesta.“

Mannlíf hvetur fólk til að mæta í Dóm­kirkj­una á morgun klukkan 18 og heyra tón­list þessa unga og efni­lega fiðlu­leik­ara. Jane Ade Sutarjo píanó­leik­ari leikur með Matt­hildi í nokkrum verk­anna. Það kostar ekk­ert inn á tón­leik­ana, en fólki er frjálst að láta eitt­hvað af hendi rakna til styrktar námi Matt­hildar við Meadowmount-tón­list­ar­skól­ann í sumar.

Reikn­ingur: 0331-26-240804

Kennitala: 240804-3440

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi