Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurgeir Sindri, fyrrv. formaður Bændasamtakanna: „Nú getur þú unnið eiginlega alls staðar“

Sigurgeir Sindri, fyrrv. formaður Bændasamtakanna: „Nú getur þú unnið eiginlega alls staðar“

„Nú um stundir er umræða í tengslum við bæði „eftir Covid“ og þetta stríð í Úkraínu og þá rennur mik­il­vægi mat­væla­fram­leiðslu mjög upp fyrir fóki og það er á svona tímum sem menn fara virki­lega að hugsa hvernig við eigum að haga okkur í mat­væla­fram­leiðslu,“ segir Sig­ur­geir Sindri Sig­ur­geirs­son, fyrr­ver­andi for­maður Bænda­sam­tak­anna og svæð­is­stjóri Arion banka á Vest­ur­landi, í við­tali við Guðna Ágústs­son þegar hann er spurður hvernig hann sjái sveit­irnar fyrir sér. „Þannig að ég sé þetta svo­lítið þannig fyrir mér núna að við séum kannski á svip­uðum stað og var eftir hrun þegar menn sáu það að það var mik­il­vægt að vera sjálf­bær um sína mat­væla­fram­leiðslu. Að sjálf­sögðu eigum við fisk­inn í sjónum en við sáum það þegar svona kemur upp að það er eins og allir fram­leiðslu- og flutn­inga­ferlar hafi ein­hvern veg­inn raskast mjög mikið við Covid. Það er erfitt að fá vörur, það er erfitt að fá ýmis­legt. Allir ferlar hafa riðl­ast með einum eða öðrum hætti. Þannig að eins og oft áður er land­bún­að­ur­inn gríð­ar­lega mik­il­vægur og mér finnst núna að menn séu að tala á þannig nótum að við þyrftum að líta okkur aðeins nær hvað það varðar.“

Covid. „Það hefur ein­hvern veg­inn opnað sýn okkar fyrir því að það er hægt að gera ýmis­legt án þess að fara að keyra. Okkur hefur gengið vel í Covidinu að aðlaga okkur að því að við getum unnið mikið heima og störf geti verið án stað­setn­ingar. Þetta hefur opnað augu stjórn­sýsl­unnar og fyr­ir­tækj­anna almennt og vill gefa fólki sem vill setj­ast að í sveit og búa úti á lands­byggð­inni tæki­færi til þess að gera það þó það sé í krefj­andi og viða­miklum störfum.“

Það er þessi hobbí­bú­skapur; að vera kannski með nokkur hross og hænsni og starfa þess vegna fyrir fyr­ir­tæki úti í heimi í gegnum netið. Er þetta ekki eitt­hvað sem við þurfum að mæta af fullum þunga?

Nú getur þú unnið eig­in­lega alls staðar.

„Jú, það sem hefur gerst með ljós­leið­ara­teng­ingu um allt land hefur ger­breytt þess­ari stöðu. Nú getur þú unnið eig­in­lega alls staðar.“

Sig­ur­geir Sindri segir að það skipti máli að afkoman sé í lagi en að hún hafi ekki verið það í sauð­fjár­rækt­inni. „Það hefur gengið mjög vel í kúa­bú­skap og það hefur gengið sæmi­lega í öðrum búgreinum en það hefur orðið mikil fækkun í sauð­fjár­rækt­inni og þar kemur brestur í þetta sem við vorum að ræða; það verður ákveðin byggða­röskun.“

Lágt afurða­verð teng­ist því.

„Já, allt of lágt. Það sem mér finnst skipta mestu máli í þessu er að menn horfi á afurða­verðið.“

Besta lamba­kjöt heims og besta villi­bráð heims­ins verður að vera á sann­gjörnu verði.

Þannig að ég hefði talið að verð­mun­ur­inn ætti alveg að vera meiri.

„Já, hún á kannski ekki að vera að keppa við aðrar kjöt­teg­undir. Hún er bara skör­inni ofar í gæðum. Og það er það sem við höfum kannski flaskað á að ætla þessu að vera í sam­keppni við kjöt­teg­undir sem eru fram­leiddar með allt öðrum hætti og ættu ekki að kosta það sama. Þannig að ég hefði talið að verð­mun­ur­inn ætti alveg að vera meiri. Það er þá kannski öðru­vísi mark­aður og ekki eins stór en við ættum að horfa á þetta þannig.“

Vöru­þró­unin í lamb­inu hefur nú verið góð síð­ustu ár.

„Já, mikil ósköp. Það er búið að gera frá­bæra hluti.“

Svo horfa menn á hest­inn og það hefur gengið mjög vel að gera hann að búgrein.

„Það er alveg frá­bær staða í því núna og gengur mjög vel í útflutn­ingi þeirra sem eru að flytja út hross.

Það eru margir glæsi­legir búgarðar í dag og heil­mikið um að vera í útflutn­ingi á íslenska reið­hest­inum.“

Lamba­kjötið hefur verið sú afurð af kjöti sem hefur gengið helst að selja úti í heimi.

Við höfum ekki sinnt þessum mörk­uðum og auð­vitað er verð rokk­andi.

„Já, mér finnst það synd. Mér finnst hafa tap­ast fókus í því. Við höfum ekki sinnt þessum mörk­uðum og auð­vitað er verð rokk­andi.

Við þurfum að hafa mark­aði erlendis; miðað við mis­mun­andi hlut­fall af bitum og annað – við þurfum að flytja eitt­hvað út. Þannig að erlendir mark­aðir eru mik­il­vægir líka.“

Hafa menn ekki verið of daufir í nauta­kjöts­fram­leiðslu?

„Það er það sem við gerðum í þessum búvöru­samn­ingi,“ segir Sig­ur­geir Sindri og á við þann tíma þegar hann gegndi starfi for­manns Bænda­sam­tak­anna. „Þar lögðum við sér­staka áherslu á þetta; með inn­flutn­ingi á þessu erfða­efni og það er að rísa núna stofn sem getur keppt í þessu og fram­leitt úrvals nauta­kjöt. Það tekur að sjálf­sögðu tíma að byggja það upp en það er mjög jákvætt að sjá hvað er að ger­ast í því.“

Svo þurfa menn að rækta korn og aðföngin sem mest hér.

„Einmitt. Það er mjög mik­il­vægt líka.“

Hótel Saga

Sig­ur­geir Sindri stóð frammi fyrir mörgum verk­efnum sem for­maður Bænda­sam­tak­anna. Hann var til dæmis kom­inn fast að því að selja Hótel Sögu í nafni sam­tak­anna og skilja eftir nokkra millj­arða hjá bænd­unum.

„Árið 2014 var farið í þá veg­ferð að Selja Hótel Sögu. Þegar ég kom 2013 þá átti eftir að gera upp allt eftir hrun þar. Það var búinn að vera svo­kall­aður kyrr­stöðu­samn­ingur í gangi í þrjú ár milli Arion banka, sem var lána­stofnun hót­els­ins, og Bænda­sam­tak­anna og þetta kyrr­stöðu­sam­komu­lag var búið að vera í gildi frá 2010 og það var bara eins með Sögu eins og með öll önnur hótel á Íslandi og mörg fyr­ir­tæki að það var alger for­sendu­brestur eftir efna­hags­hrunið. Við fórum strax í það 2013 að ég yrði stjórn­ar­for­maður hót­els­ins um leið og ég varð for­maður Bænda­sam­tak­anna að gera sam­komu­lag við Arion banka um þessi skulda­mál. Og það greidd­ist nokkuð vel úr því og kannski stærsti punkt­ur­inn í því var að Hótel Ísland sem var líka undir þá fór til bank­ans og svo tókst þeim að selja það og það kom þá inn í þetta upp­gjör og nið­ur­staðan varð að það var nán­ast ekk­ert afskrifað.

Við náðum þarna góðu sam­komu­lagi við bank­ann og ég átti heil­mikil sam­skipti við Höskuld Ólafsson, þáver­andi banka­stjóra, í þessu og mér fannst hann reyn­ast okkur heill og vel í þessu ferli öllu.

Vandinn í þessu öllu var ein­hvern veg­inn að við höfðum eig­in­lega aldrei umboð til þess að selja.

Svo var tekin ákvörðun að aug­lýsa hót­elið til sölu 2014. Vandinn í þessu öllu var ein­hvern veg­inn að við höfðum eig­in­lega aldrei umboð til þess að selja af því að við þurftum alltaf að bera þetta undir Bún­að­ar­þing.

Málefni hót­els­ins og ákvörðun um að selja var alltaf lögð fyrri Bún­að­ar­þing. Þannig að í við­ræðum við kaup­endur og annað getur maður aldrei sagt 100% hvort til­boði verði tekið. Þegar var búið að fara í gegnum þetta sölu­ferli 2014 þá sátum við uppi með eitt til­boð sem var hvað hæst og þá þurftum við að leggja mat á það. Við stóðum þá frammi fyrir því að taka ákvörðun hvort því skyldi tekið með fyr­ir­vara um sam­þykki Bún­að­ar­þings. Það var okkar mat á þeim tíma­punkti að þetta væri ekki lík­legt til þess að verða sam­þykkt af Bún­að­ar­þingi. Við vorum á fremsta hlunn með að selja en eftir nán­ari íhugun og yfir­ferð á mál­inu þá var nið­ur­staðan að gera það ekki. Svo hófum við umræðu um þetta fyrir Bún­að­ar­þing og það var alveg ljóst á umræðu þar að það var rétt mat að það var ekki vilji fyrir að selja á þessum tíma­punkti. En við tókum þá ákvörðun að skipta þessu upp ann­ars vegar í fast­eigna­fé­lag sem hét svo Bænda­höllin ehf og svo áfram rekstr­ar­fé­lag sem var Hótel Saga og und­ir­búa einnig kannski betur með það að ef það yrði ákveðið að selja þetta síðar þá myndum við vera búin að und­ir­búa það betur. Af því að þetta var allt í einni púllíu þá höfðu fast­eigna­fé­lög ekki áhuga. Þau kærðu sig ekk­ert um að fara að reka hótel. Þau vildu bara eiga fast­eignir. Þá var þessu skipt svona upp og ákveðið að fara í nauð­syn­legar fram­kvæmdir sem höfðu legið niðri á meðan þetta kyrr­stöðu­sam­komu­lag var og þar fram eftir göt­unum. Þannig að það var nið­ur­staðan að við fórum í þessa veg­ferð. Það gekk mjög vel fyrst á eftir að við gerðum sam­komu­lag við Arion banka. Það var mikið um að vera í ferða­þjón­ust­unni og við fórum síðan í fram­kvæmdir á Hótel Sögu; end­ur­nýj­uðum her­bergi, byggðum ný her­bergi og þar fram eftir göt­unum.

Annars vegar fór það fram úr áætlun og varð kostn­að­ar­sam­ara heldur en gert var ráð fyrir og á sama tíma þurfti að loka meira.

Til að rekja sög­una hvað gerð­ist, en menn eru oft að velta því fyrir sér hvernig þetta fór svona, þá voru mjög veiga­miklar fram­kvæmdir á árunum 2017 og 2018 og þá var farið að byggja upp í veit­inga­deild­inni líka; það var nýr veit­inga­staður á fyrstu hæð­inni, Súlna­sal­ur­inn á annarri hæð var end­ur­nýj­aður og ein­fald­lega var nið­ur­staðan sú að þetta tók of langan tíma. Þetta dróst of mikið og fram­kvæmdir fóru fram úr áætlun þannig að það skeði tvennt. Annars vegar fór það fram úr áætlun og varð kostn­að­ar­sam­ara heldur en gert var ráð fyrir og á sama tíma þurfti að loka meira. Það varð að loka veit­inga­deild­inni sjálfri og þó nokkuð mikið af her­bergjum sem ekki skap­aði þá tekjur á meðan.

Í árs­lok 2018 var farið að síga á ógæfu­hlið­ina í rekstri. Þetta voru sein­ustu mán­uðir mínir þarna og þá tók ég upp umræðu að við þetta yrði ekki unað og að það þyrfti að taka á í rekstri og varð­andi þessar fram­kvæmdir. Við fórum í þá veg­ferð að láta skoða mögu­leika á sam­rekstri með öðrum og KPMG vann fyrir okkur skýrslu um að sam­eina rekstr­ar­fé­lagið með tveimur öðrum hót­elum hér inn­an­lands sem hefði getað orðið sterk ein­ing sem hefði getað rekið hót­el­rekstur á þremur stöðum. Þetta var talið spara 200 millj­ónir strax á fyrsta ári. Það var nokkurn veg­inn það sem við vorum farin að sjá að yrði tapið á þessu ári, 2018. Við köll­uðum svo líka til Deloitte, ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið, sem kom með starfs­mann inn í stjórn­enda­teymi hót­els­ins til að velta við hverjum steini. Þannig að það var heil­mik­ill þungi í því að snúa ofan af þessu. En svo hag­aði nú þannig til í byrjun árs 2019 að ég fór í annað; ég fór að vinna hjá Arion banka. Þá lá þetta fyrir að fara í þetta sam­starf með þessum tveimur öðrum hót­elum en nið­ur­staðan var að það var ekki gert. Þeir sem tóku við kefl­inu ákváðu að gera það ekki. Og í stað­inn fyrir að velta þá áfram hverjum steini og taka strax á í þessum rekstri þá var nið­ur­staðan þannig að það hélt áfram að vera gríð­ar­legt tap.

Svo kom fall WOW Air sem var mjög erfitt og í fram­hald­inu Covid sem varð til þess að þetta rað­að­ist upp með þessum hætti.

Mér finnst það mjög miður að menn skyldu ekki hafa farið í þessa veg­ferð því það hefði getað hjálpað rekstr­inum strax. Það þurfti ein­fald­lega að taka á þessu strax.

Vissu­lega urðu þessar fram­kvæmdir dýr­ari en ætlað var.“

Féð í Arion banka

Sig­ur­geir Sindri fædd­ist í Reykja­vík.

„Ég segi stundum að ég sé fæddur í Reykja­vík, alinn upp þar á virkum dögum og á vet­urna en þegar ég var orð­inn ung­lingur þá fór ég flestar helgar út á land.“

Hann fór ungur í sveit.

„Ég fór fyrst á Efri Brúna­velli á Skeiðum. Þar búa tví­bura­bræður, Jón og Þorgeir, og var hjá þeim fyrstu tvö sum­urin sem ég fór í sveit. Ég fór 1985 þarna fyrst og var tvö sumur hjá þeim á Skeiðum og svo fór ég í Borg­ar­fjörð­inn. Og fór í Arn­ar­holt. Það var virki­lega gaman að vera hjá þeim í sveit og þeir voru upp­á­tækja­samir. Það er mjög margt sem maður rifjar upp eftir að hafa verið þarna; margt kúnstugt sem þeir gerðu og virki­lega gott að vera þarna hjá þeim.“

Fór svo að vinna í Borg­ar­firð­inum og hef verið þar meira og minna síðan.

Arn­ar­holt í Staf­holts­tungu í Borg­ar­firði 1987. „Ég var hjá þeim Sævari og Sólveigu í fimm sumur og fór svo að vinna í Borg­ar­firð­inum og hef verið þar meira og minna síðan.“

Sig­ur­geir Sindri kynnt­ist Kristínu í Bakka­koti í Staf­holtstungum sem er konan hans í dag.

„Hún er dóttir Krist­jáns Axels­sonar og Katrínar Hjartar Júl­í­us­dóttur sem þar voru bændur en á undan þeim voru það afi hennar og afi, Kristín og Axel, og hófu búskap í kringum 1945. Þannig að sama fjöl­skyldan er búin að vera þar síðan þá.“

Sig­ur­geir Sindri og Kristín gerðu upp hús ömmu hennar og afa, gamla húsið í Bakka­koti, 1994 og fluttu inn í það. Þau tóku síðan við búskapnum af Krist­jáni og Katrínu 1997. Sig­ur­geir Sindri hafði útskrif­ast árið 1995 sem búfræð­ingur frá Bænda­skól­anum frá Hvann­eyri.

Hann hóf svo árið 2004 nám við frum­greina­deild­ina á Bifröst og fór svo í fram­haldi af því í við­skipta­deild skól­ans og lagði stund á við­skipta­fræði. Hann valdi skipti­nám og dvaldi fjöl­skyldan, þau Kristín og börnin þeirra, í eina önn í Kanada. „Það var mjög skemmti­legur tími. Við vorum nátt­úr­lega búin að ala börnin okkar upp í sveit og þarna voru þau allt í einu komin í erlenda stór­borg og farin að búa í blokk með lyftu.“ Dóttirin er Lilja Rannveig, alþing­is­maður Norð­vest­ur­kjör­dæmis síðan 2021. Fram­sókn­ar­flokkur.“

Sig­ur­geir og Kristín fóru af fullum krafti í búskap­inn. „Við erum mest með 750 ær á fóðrum þegar er hvað mest hjá okkur.“

Þau eru líka hesta­fólk.

„Við erum með þó nokkuð af hrossum. Meg­in­þung­inn í hesta­mennsk­unni hefur verið á sumrin. Við höfum járnað mjög mikið á sumrin. Ferðast mjög mikið, riðið mjög mikið út og farið í ferðir. Svo höfum við notað hesta mikið til smala­mennsku.“

Hann er bóndi af lífi og sál. „Þetta hefur alltaf verið í mér. Og þau sögðu það skóla­systk­ini mín í Árbænum í gamla daga að það kom engum þeirra á óvart að ég skyldi ger­ast bóndi.“

við ákváðum að hafa þetta rúmt bæði í húsum og haga og vinnu­fram­lagið er aðeins létt­ara.

Hann segir að það hafi verið heil­mikil vista­skipti þegar hann hætti að vinna sem for­maður Bænda­sam­tak­anna og fór að vinna hjá Arion banka. „Við veltum því fyrir okkur hvað við ætl­uðum að gera með búskap­inn en við höfum ákveðið að búa þarna og ætlum að vera þarna og nýta þessa jörð.

Við erum með 400 ær í dag þannig að þetta hefur fækkað veru­lega og við ákváðum að hafa þetta rúmt bæði í húsum og haga og vinnu­fram­lagið er aðeins létt­ara.“

Hvernig líkar sauð­fjár­bónd­anum í Bakka­koti að sjá um féð í Arion banka?

„Bara ljóm­andi vel. Ég er mjög ánægður þarna. Ég er með ein­stak­lega gott fólk með mér á Vest­ur­landi; ég starfa í mjög fínu teymi inni á við­skipta­sviði bank­ans sem heyrir undir Vest­mann­ey­ing­inn Iðu Brá Bene­dikts­dóttur sem nú er orðin einnig aðstoð­ar­ban­ak­stjóri. Þetta er lif­andi og skemmti­legt teymi. Þetta er mjög gef­andi starf. Ég hitti mikið af fólki og það kemur mikið af fólki sem er með skemmti­legar hug­myndir og nýsköpun og ýmis­legt sem það vill gera. Ég ferð­ast mikið og heim­sæki bændur og ýmis fyr­ir­tæki á lands­byggð­inni.“

Hægt er að sjá allt við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi