Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásgeir heldur enn sambandi við sína gömlu liðsfélaga: „Ekkert til að halda mikið upp á sko“

Einn allra besti knatt­spyrnu­maður Íslands­sög­unnar á afmæli í dag. Ásgeir Sig­ur­vins­son er 67 ára í dag.

Atvinnu­fer­ill Ásgeirs spannar 17 ár en Ásgeir fædd­ist í Vest­manna­eyjum og lék með ÍBV 1972 og 1973, 21 leik í 1. deild og skor­aði í þeim 7 mörk.

Hann gekk svo til liðs við belgíska 1. deildar félagið Standard Liege um mitt sumar 1973 og náði strax að tryggja sér fast­ann sess í lið­inu. Ásgeir lék með Standard fram á sum­arið 1981, og var einn af horn­steinum liðs­ins. Hann var fyr­ir­liði liðs­ins um skeið og vann einn bik­ar­meist­ara­titil með félag­inu.

Sumarið 1981 gekk hann til liðs við þýska stór­veldið Bayern München. Með lið­inu léku nokkrir af Evr­ópu­meist­urum Vestur-Þýska­lands 1980 og fékk Ásgeir fá tæki­færi.

Sumarið 1982 gekk hann svo til liðs við þýska félagið Stutt­gart og lék með því til loka fer­ils síns. Ásgeir var lengi fyr­ir­liði Stutt­gart og þótti einn besti leik­maður þýsku 1. deild­ar­innar um margra ára skeið. Leiddi hann Stutt­gart til meist­ara­tit­ils vet­ur­inn 1983-1984 og var þá kjör­inn besti knatt­spyrnu­maður V-Þýska­lands af leik­mönnum deild­ar­innar.

Vorið 1989 lék hann með Stutt­gart gegn Napoli í úrslita­leikjum UEFA-bik­ar­keppn­innar, en Napoli stóð uppi sem sig­ur­veg­ari. Ásgeir lék alls 211 leiki í Bundeslig­unni og skor­aði 39 mörk. Hann lagði skóna á hill­una vorið 1990 og lauk þar með glæsi­legum 17 ára ferli hans sem atvinnu­manns. Alls lék Ásgeir 45 leiki með íslenska lands­lið­inu og skor­aði 5 mörk. Tvívegis var hann kos­inn íþrótta­maður árs­ins, 1974 og 1984. Þá þjálf­aði hann Fram eitt sumar og íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu í tvö ár. Árið 2015 var hann tek­inn inn í heið­ur­höll ÍSÍ.

Þessar upp­lýs­ingar eru frá fot­bolti.net.

Mannlíf hringdi í Ásgeir og spurði hann út í afmælið, hvort hann ætl­aði að halda upp á það.

„Nei,“ sagði Ásgeir og hló. „Þetta er ekk­ert stór­mál. Eflaust verður ein­hver kaka en þetta er nú ekk­ert til að halda mikið upp á sko.“

Framundan hjá Ásgeiri eru utan­lands­ferðir. „Ég býst nú frekar við því að fara utan í sumar. Ætli ég fari ekki á mínar gömlu slóðir, í Þýska­landi eða Belgíu.“
Aðspurður hvort hann haldi enn sam­bandi við sína gömlu liðs­fé­laga sagði hann „Já, já, ég geri það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi