Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fámennur hópur mótmælti við minningamessu Rússa í Fossvogskirkjugarði: „Sjá þessa fjóra aumingja!“

Fámennur hópur mótmælti við minningamessu Rússa í Fossvogskirkjugarði: „Sjá þessa fjóra aumingja!“
Prestur Rét­trún­að­ar­kirkj­unnar Mynd: Mannlíf

Um tutt­ugu Rússar söfn­uð­ust saman við minn­is­merkið Von í Foss­vogs­kirkju­garði og minnt­ust ætt­ingja sem féllu í seinni heim­styrj­öld­inni. Í dag er Sig­ur­dag­ur­inn mikli í Rúss­landi þar sem fólk fer í minn­ing­ar­messu til minn­ingar um fallna ætt­ingja úr stríð­inu.
Nokkrar konur mættu og stóðu skammt frá með mót­mæla­spjöld gegn inn­rás Rússa í Úkraínu. Veittust nokkrir Rússar að mót­mæl­end­unum með orðum.

Blóm við minn­is­varð­ann
Þrjár af fjórum mót­mæl­endum með skiltin sín.

Timur Timofey Zolotuskiy, prestur rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar á Íslandi fór með bænir og söng með við­stöddum. Lög­reglan var áber­andi á svæð­inu en boðað hafði verið til mót­mæla í kirkju­garð­inum í skyndi og því búist við nokkrum fjölda. Aðeins fjórar konur sáu sér fært að mæta með svo stuttum fyr­ir­vara en þær stóðu þög­ular á bíla­stæð­inu með mót­mæla­skilti í hönd. Er fólk tók að týn­ast úr minn­ing­ar­mess­unni létu sum þeirra í ljós skoðun sína á mót­mæl­end­unum. „Sjá þessa fjóra aum­ingja! Við erum massi en sjá ykkur!“ sagði ein rúss­nesk kona sem gekk fram­hjá þeim. Svöruðu kon­urnar ekki en lyftu þess í stað skilt­unum hærra.

Timur Timofey Zolotuskiy fer með bæn.

Vaninn er að sendi­herra Rúss­lands á Íslandi mæti á þessa sam­komu ásamt prest­inum en að sögn lög­regl­unnar mætti hann eða starfs­menn sendi­ráðs­ins um klukkan 10 í morgun og stopp­uðu stutt við. Hafði prest­ur­inn óskað eftir því að halda þessu aðskildu þetta árið.

Í sam­tali við blaða­mann Mannlífs sagði ein af þeim sem mót­mæltu, rúss­nesk kona sem búið hefur á Íslandi síð­ustu 15 árin að „að halda upp á þennan dag hátíð­legan í Rúss­landi í dag, við þessar ástæður, er eins og að hrækja framan í for­tíð, nútíð og fram­tíð land­anna tveggja. Fortíð, af því að stríðið í Úkraínu svifti hetjur seinni heims­styrj­ladar, Rússa og Úkra­ínu­menn sem börð­ust hlið við hlið, þeirra heiður með því að eyði­leggja allt sem þeir áork­uðu. Nútíð af því að hver dagur fyrir venju­legt fólk bæði í Úkraínu og Rúss­landi fer meira og meira að líkj­ast martröð. Framtíð, af því að sárs­auki og hatur mun fylgja næstu kyn­slóðum bræðra­þjóð­anna beggja í marga ára­tugi.“

Sigur hvað sem það kostar?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi