Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eitt furðulegasta sakamál Íslandssögunnar – Tveir vegfarendur komu að Gunnari látnum

Eitt furðulegasta sakamál Íslandssögunnar – Tveir vegfarendur komu að Gunnari látnum

„Leigubílstjóri fannst í morgun með skotsár í hnakka, þar sem hann sat í bif­reið sinni með vélina í gangi á Laugalæk á móts við Lauga­lækjar- skóla, og sneri bíllinn í suður, að nýju sund­laug­unum. — Þegar lögreglan kom á stað­inn, virt­ist sem mað­ur­inn væri með lífsmarki, en þegar komið var með hann á slysa­varð­stof­una, reynd­ist hann látinn. Ekkert skot­vopn fannst á staðnum, en hins vegar tómt skot­hylki, og því auð­sætt, að mað­ur­inn hef­ur­verið myrtur.

Lög­regl­unni barst til­kynn­ing í morgun um kl. 7,15 í síma, að eitt­hvað myndi athuga­vert við mann, sem sæti 1 bílstjórasæti leigubíls frá Hreyfli. Maðurinn, sem gerði lögregl­unni við­vart, taldi þá, að bílstjórinn væri látinn.

Hins vegar sýndist lögreglu­mönn­unum bílstjórinn hreyfa sig, þegar þeir komu á stað­inn. Var hann fluttur á slysa­varð­stof­una, en það var þá um seinan,“ sagði í for­síðu­frétt frétta­blaðs­ins Vísis þann 18.jan­úar árið 1968.

Leigu­bíl­stjór­inn var hinn 43 ára Gunnar Sigurður Tryggva­son. Tveir veg­fer­endur komu að Gunnari látnum í leigu­bíl sínum og til­kynntu til lög­reglu. Fljótt var ljóst að um morð væri að ræða.

Bíll Gunnars var í gangi og ljósin á þegar lög­regla kom á vett­vang en ringt hafði mikið sem gerði rann­sókn­ar­fólki erfitt með að finna vís­bend­ingar.

„Um síðustu ferðir Gunnars er það vitað, að hann var kvaddur til húss við Skálholts­stíg til þess að taka þar far­þega um kl. 3.15 í fyrr­inótt. Far­þeg­inn hefur verið yfir­heyrður og seg­ist hann hafa látið Gunnar aka sér beina leið heim til sín og styður kona far­þeg­ans þann fram­burð. Bílstjóri frá Hreyfli seg­ist hafa séð bif­reið Gunnars við Hreyf­ils­staur­inn á mótum Sund­lauga­vegar og Hrísateigs um kl. 4, en Gunnar hafi verið far­inn frá staurnum, þegar leigubílstjórinn ók þar fram hjá fimm mínútum síðar. Annar leigubílstjóri hefur gefið sig fram, sem telur sig hafa séð bif­reið Gunnars aftur við staur­inn kl. 4.40 til kl. 4.45. Kann því ein­hver að hafa fengið Gunnar í akstur á tíma- bil­inu frá kl. 4.05 til kl. 4.40,“ sagði í Vísi, degi eftir morðið.

Gunnari var lýst sem góðum og reglu­sömum ein­stak­lingi, hann bjó með föður sínum. Bróðir Gunnars sagði í við­tali eftir málið að hann gæti ekki hugsað sér að Gunnar ætti neina óvini eða að það væri neinn sem vildi gera honum neitt illt. Leigu­bíl­stjórar hjá Hreyfli tóku sig saman og buðu 100 þús­und krónur fyrir upp­lýs­ingar um morð­ingja Gunnars.

Þrátt fyrir mikla rann­sókn leið árið 1968 án nokkura vís­bend­inga um hver hefði getað orðið Gunnari að bana, alveg þangað til í mars árið 1969:

„Rannsóknarlögregla virð­ist konin á rétta sporið til að upplýsa morðið á Gunnari Tryggva­syni leigubílstjóra. Maður einn hefur nú verið hand­tek­inn, grun­aður um morðið. Er þetta leigubílstjóri og fannst byssa af sömu gerð og morðið er talið framið með í hanzkahólfi á bíl leigu­bil­stjórans. Bílstjóri þessi var um árabil starfs­maður á hóteli einu í borgnni og var mjög hand­geng­inn hótel­stjóranum. Hót­el­stjór­inn átti eitt mesta byssu­safn í eigu íslend­ings en svo gerð­ist þaö fyrir alllöngu síðan að byssa hvarf úr safn­inu, fágæt byssa, sem talið er að sé ekki f eigu ann­arra manna hérlendis. Með þess­ari byssu­teg­und er talið að Gunnar heit­inn Tryggva­son hafi verið skot­inn.

Hinn grun­aði var af ein­hverjum ástæðum kall­aður fyrir í sam­bandi við rannsókn á morð­inu. Bar hann þá að hann ætti ekki byssu ög alls ekki af þeirri gerð sem um var að ræða. Nú mun hann hins vegar hafa gefið fáránlega skýringu á því hvers vegna byssan fannst í fórum hans,“ sagði í frétt Vísis þann 10.mars árið 1969. Hjón sem keyptu legu­bíl manns­ins fundu byss­una þegar þau þrifu bíl­inn. Þegar mað­ur­inn kom og ætl­aði að sækja eigur sínar neit­uðu hjónin að láta hann hafa byss­una og leit­uðu til lög­reglu.

Maðurinn neit­aði sök en var settur í gæslu­varð­hald. Byssan var send í rann­sókn hjá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni og var þar stað­fest að um sömu byssu var að ræða og var notuð í morð­inu á Gunnari. Maðurinn sagð­ist hafa stolið byss­unni til að selja hana, hann var sýkn­aður í dómi fyrir morðið á Gunnari. Enn í dag telst málið vera óleyst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi