Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Kom til Íslands til að vinna og öðlast betra líf“- Lést af sárum sínum fimm dögum síðar

„Kom til Íslands til að vinna og öðlast betra líf“- Lést af sárum sínum fimm dögum síðar

Tveir karl­menn voru stungnir af karl­manni á þrí­tugs­aldri á Aust­ur­velli um miðja nótt í kjöl­far slags­mála. Annar mað­ur­inn lést nokkrum dögum síðar á sjúkra­húsi og var ger­and­inn Íslend­ingur ákærður fyrir að bana hinum albanska Klevis Sula (1997–2017) á Aust­ur­velli í byrjun des­em­ber 2017. Samkvæmt ákærunni stakk hann Sula fjórum sinnum.

Ger­and­inn var jafn­framt ákærður fyrir til­raun til mann­dráps með því að hafa við sama til­efni stungið annan albanskan mann þrisvar þannig að sá hlaut meðal ann­ars slag­æða­blæð­ingu. Ger­and­inn var dæmdur í 17 ára fang­elsi.

Var ógnandi í sinn garð

Íslend­ing­ur­inn sem ákærður var fyrir að hafa orðið Alban­anum Klevis Sula að bana með hnífs­s­tungu á Aust­ur­velli í des­em­ber í fyrra, var fund­inn sekur um mann­dráp og mann­dráp­stil­raun og dæmdur í 17 ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Ger­and­inn neit­aði sök þegar málið var þing­fest fyrir hér­aðs­dómi í mars 2017. Þá var hann einnig ákærður fyrir til­raun til mann­dráps með því að hafa stungið sam­landa Sula og Elio Hasani, þrisvar sinnum sömu nótt, aðfar­arnótt sunnu­dags­ins 3. des­em­ber. Ger­and­inn neit­aði einnig sök í þeim ákæru­lið.

Þá bar hann fyrir sig minnis­leysi við aðal­með­ferð máls­ins í júní sama ár. Þar sagði hann m.a. að menn­irnir tveir hefðu átt frum­kvæði að átökum þeirra á milli, verið ógn­andi í sinn garð og veitt sér höf­uð­högg. Eftir höf­uð­höggið sagð­ist ger­and­inn ekki muna neitt um hvað hefði gerst á Aust­ur­velli umrædda nótt. Sak­sókn­ari fór fram á minnst átján ára fang­els­is­dóm yfir ger­and­anum.

Banvænn áverki á hjartanu

For­eldrar Sula kröfðu ger­and­ann um rúm­lega 20 millj­ónir króna í miska­bætur vegna son­ar­miss­ins. Við dóms­upp­kvaðn­ingu í hér­aðs­dómi var ger­and­anum gert að greiða móður Sula rúmar fjórar millj­ónir króna í miska­bætur og föður hans rúm­lega þrjár millj­ónir. Þá ber ger­and­anum að greiða Hasani, sem krafð­ist 3,2 millj­óna í miska­bætur, 1,5 millj­ónir.

Maðurinn er einnig ákærður fyrir til­raun til mann­dráps með því að hafa stungið sam­landa Sula þrisvar sinnum sömu nótt, það er aðfara­nótt sunnu­dags­ins 3. des­em­ber. Neitaði hann einnig sök varð­andi þann ákæru­lið.

Í ákæru máls­ins segir að mað­ur­inn hafi stungið Sula fjórum sinnum þegar hann réðst á hann á Aust­ur­velli umrædda nótt. Sula lést af sárum sínum fimm dögum síðar en í ákæru segir að áverk­inn á hjart­anu hafi verið „ban­vænn og höfðu önnur skurðsár áhrif á and­lát hans.“

Samlandi Sula hlaut skurðsár á bak­inu og utan­verðri öxl, sömu­leiðis á vinstri upp­hand­legg og á kálfa. Sú stunga náði ofan í slagæð og olli slag­æða­blæð­ingu.

Aðeins tvítugur þegar hann lést

Móðir Sula fer fram á tíu millj­ónir króna í miska­bætur auk tæp­lega 900 þús­und króna vegna útlagðs kostn­aðar vegna útfarar sonar hennar. Faðir Sula gerir sömu­leiðis kröfu um tíu millj­ónir króna í miska­bætur. Maðurinn sem var stung­inn en lifði árás­ina af krafð­ist 3,2 millj­óna króna í bætur. Ákærði í mál­inu hafn­aði bóta­kröf­unum.

Móðir Klevis Sula, Albanans sem lést af sárum sínum eftir hnífs­stungu­árás í mið­bænum segir að hann hafi ætlað að hjálpa meintum árás­armanni þegar hann réðst á hann að til­efn­is­lausu. Gríð­ar­leg sorg hefur hel­tekið fjöl­skyld­una en þau lýsa Klevis sem ljúfum manni sem tal­aði um hvað Ísland væri öruggur og góður staður að búa á.

Klevis Sula var fæddur þann 31. mars árið 1997 og var því aðeins tví­tugur þegar hann lést af sárum sínum hér á landi.

Gríð­ar­leg sorg hefur hel­tekið fjöl­skyldu Klevis en móðir hans og bróðir, komu til lands­ins um leið og þau heyrðu af því sem gerð­ist og voru með Klevis síð­ustu daga lífs hans.

„Klevis var ljúfur og góður. Hann kom til Íslands til að vinna og öðl­ast betra líf,“ segir Enea Sula, bróðir Klevis.

„Hann var ynd­is­legur, Hann vildi hjálpa öllum. Vinum sínum og fjöl­skyldu. Hann tal­aði mjög vel um Íslend­inga og kunni vel að meta fólkið hérna. Hann var mjög ham­ingju­samur að vera hérna,“ segir Natasha Sula, móðir Klevis.

Við héldum að Ísland væri öruggt land

Við rétt­ar­höldin

Vitn­is­burður vinar Klevis, sem einnig var stung­inn umrætt kvöld, er á þá leið að Klevis hafi tekið eftir manni sem var grát­andi. Hann hafi boðið honum aðstoð en þá verið stung­inn með hnífi. Lögregla hefur sagt að stutt sam­skipti hafi verið milli mann­anna áður en árásin átti sér stað.

„Hann þekkti hann ekk­ert sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem við höfum. Hann vildi hjálpa honum því hann grét en mað­ur­inn réðst bara á hann,“ segir Natasha.

Klevis hafði aðeins verið hér í nokkra mán­uði áður en hann lést en hann hafði áður dvalið hér á landi í ein­hverja mán­uði. Hans draumur var að búa á Íslandi og tal­aði hann afar vel um landið að sögn Natasha.

„Við héldum að Ísland væri mjög öruggt land og að svona myndi ekki ger­ast hérna. Klevis hafði líka alltaf sagt að það gæti ekk­ert slæmt gerst á Íslandi því hér væri fólk svo gott,“ segir Natasha.

Vinir Klevis hófu fjár­söfnun til styrktar fjöl­skyld­unni á dög­unum til að standa straum af útfar­ar­kostn­aði og kostn­aði við að láta flytja líkið til Albaníu. Söfn­un­inni er nú lokið og segja þau hana hafa gengið vel og eru afar þakk­lát.

Heim­ildir:

Freyr Gígja Gunn­ars­son. 21. júní. 2018. … dæmdur í 17 ára fang­elsi. RÚV.

Hjálmar Frið­riks­son. 15. des­em­ber 2017. … er grun­aður um að hafa stungið Klevis í hjartað: „Þakklát íslensku þjóð­inni fyrir hjálp­ina.“  DV.

Kristín Ólafs­dóttir. 21. júní 2018. … dæmdur í 17 ára fang­elsi. Vísir

Innlent 21.júní. 2018. Dagur í 17 ára fang­elsi fyrir mann­dráp. MBL.

Nadine Guðrún Yaghi 10. des­em­ber 2017„Klevis vildi hjálpa honum því hann grét en mað­ur­inn réðst bara á hann.“ Vísir.

Sunna Kristín Hilm­ars­dóttir. 16. mars 2018. Neitar sök í mann­dráps­máli. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi