Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Matjurtagarðurinn: „Skora á sjálfa mig og garðinn þannig að hann fæði mig og son minn“

Matjurtagarðurinn: „Skora á sjálfa mig og garðinn þannig að hann fæði mig og son minn“
Skjald­fléttan er snilld, bæði fal­leg, hjálp­leg og bragð­góð. Hún ver tómata­plöntur fyrir óværu, blöðin eru sterk á bragðið en blómin sæt­ari.Bænda­blaðs­ins

Guðrún Hulda Páls­dóttir, verð­andi rit­stjóri Bænda­blaðs­ins, seg­ist hafa alist upp við að for­eldrar hennar hafi unað umhverf­inu og nátt­úr­unni. Fallegur garður var við æsku­heim­ilið sem for­eldrar hennar rækt­uðu frá grunni og segir hún að faðir hennar hafi til dæmis unnið moltu úr öllum mat­ar­af­göngum og hafi verið mjög nat­inn við að halda garð­inum snyrti­legum og plöntum vel nærðum.

„Mat­jurta­á­huga minn má rekja til þess að þegar ég bjó á Indlandi árið 2010 og komst þar í kynni við sjálfs­þurft­ar­bú­skap í sinni tær­ustu mynd. Mér fannst svo aðdá­un­ar­vert að sjá bæði börn og full­orðna kunna til verka við ræktun á fjöl­breyttum mat og þau vissu enn fremur hvernig hægt væri að nýta allar jurtir sem uxu í grennd­inni á einn eða annan hátt. Þetta tók ég mér til fyr­ir­myndar.

Ég komst svo í kynni við vist­rækt þegar ég flutti heim og fannst það afar heill­andi nálgun að mat­jurta­ræktun. Einn vængur vist­ræktar – permaculture – snýr að því að skapa sjálf­bært vist­kerfi í nærum­hverfi þar sem fjöl­ærar æti­plöntur, nátt­úran, menn og dýr lifa þannig sam­lífi að þau vaxi og dafni. Ég fór til Írlands og við­aði að mér kunn­áttu um fræðin og hef lagt upp með að garð­ur­inn minn sé byggður á vist­rækt­ar­að­ferðum að því marki sem raun­hæft er hér á landi.“

Séð yfir hluta garðs­ins. Guðrún Hulda reisti gróð­ur­húsið í fyrra­vor.

Stór garður er við heim­ili Guðrúnar Huldu og seg­ist hún rækta hann upp sem svo­lítið kaó­tískan æti­garð. „Ég er með rækt­un­ar­svæði hist og her um garð­inn svo sem kart­öflu­garða, gróð­ur­kassa og hrauk­beð og síð­asta vor bætti ég svo 24 fer­metra gróð­ur­húsi sem eykur mjög á fjöl­breytni afurð­anna.“

Garðrækt er lang­tíma­verk­efni. „Ég dunda við svæðið mitt í hjá­verkum og skora á sjálfa mig og garð­inn, þannig að hann fæði mig og son minn að ein­hverju marki ár hvert.

Inkakorn (quinoa) er korn­teg­und sem ég tel eiga fram­tíð fyrir sér bæði í heima­görðum og fram­leiðslu­ræktun hér á landi. Hún er gull­fal­leg og skemmti­leg planta.

Ég hef alltaf haft lítil mark­mið á hverju sumri,“ segir Guðrún Hulda en fimmta sum­arið í hús­inu er fram undan. „Fyrsta sum­arið vildi ég athuga hvort ég gæti fengið mér mál­tíð úr garð­inum á hverjum degi í eina viku, sem tókst og rúm­lega það. Næstu árin jók ég lengd áskor­un­ar­innar og nú er svo komið að garð­ur­inn er uppi­staða kvöld­verðar meiri­hluta sum­ars og fram á kvöld. Það felur í sér alla jafna alls konar salat og kál, tómata, krydd­jurtir, lauka, ýmis ber, baunir, beðjur og blóm­kál, rabar­bara, ein­staka epli, jafn­vel inka­korn, rót­ar­græn­meti af ýmsu tagi og æt blóm svo eitt­hvað sé nefnt. Þessi iðja er mér mjög mik­il­væg, hún fyllir hjartað ró í amstri dags­ins og veitir mér mikla gleði.“

Gómsætt salat í öllum stærðum, litum og gerðum. Þetta kaupi ég for­ræktað af Tómasi Ponzi.

Guðrún Hulda segir að tak­markið sé að flestallar plöntur garðs­ins verði ætar. „Með því get ég mér til skemmt­unar lagt grunn að ákveðnu fæðu­ör­yggi á heim­il­inu yfir hásum­arið, að minnsta kosti hvað varðar ferskt, gott græn­meti, auk þess sem ég vil búa syni mínum nær­andi umhverfi. Það eru nefni­lega tveir mjög patent punktar sem þessu fylgja: Dreng­ur­inn minn er mat­vandur með ein­dæmum, en tekur það upp hjá sjálfum sér að borða mun meira af alls konar fersk­meti á sumrin því hann getur tínt það úr garð­inum eftir lyst og löngun. Fyrir mig fylgir þessu afskap­lega heil­næm rútína þegar garð­ur­inn er í blóma. Þá borða ég stærstu mál­tíð­ina mína í hádeg­inu en fæ mér ferska sal­at­skál á kvöldin.“

Kart­öflur eru auð­veldar í ræktun.

Guðrún Hulda segir að fjöl­ær­ing­arnir sem vaxi í garð­inum ár eftir ár séu meðal ann­ars rabar­bari, gras­laukur, hjálm­laukur, mynta, jarð­ar­ber, sól­ber, hind­ber, rifs­ber og stór amer­ísk blá­ber. Epli og kirsu­ber séu stop­ulli en hún sé enn að læra á ávaxta­tré. „Þá vex í garð­inum sjálfs­sáð síber­ískt grænkál eins og ill­gresi og á það til að vera að fram­leiða ný blöð fram yfir jól í djúpum snjó. Af ein­ær­ingum í sumar verð ég með alls konar góm­sætt líf­rænt salat og Heirloom-tómata sem ég keypti for­rækt­aða af Tomasi Ponzi. Ég sáði fyrir alls konar plöntum og sýn­ist að eggaldin og róma­neskó-blóm­kál ætli að vera nýj­ustu við­bæt­urnar, báðar gull­fal­legar plöntur sem ég hlakka til að fylgj­ast með vaxa. Auk þess verð ég meðal ann­ars með rauðrófur, kart­öflur, gul­rætur, hvít­lauk, skjald­fléttu og kúr­bít.“

Eplatré.

Í huga Guðrúnar Huldu snýst mat­jurta­ræktun í heima­garði um lífs­gæðin sem iðjan skilar. „Ætli maður að stefna að ein­hvers konar und­ir­stöðu fæðu­fram­leiðslu fyrir sig og sína í heima­garð­inum þá held ég að það verði að vera á kostnað vinnu utan heim­ilis. Það tekur tíma að sinna mörgum plöntum og búa um upp­sker­una þannig að hún geym­ist fram á vetur. En á Íslandi eru æðis­legir bændur sem fram­leiða heil­næmar og bragð­góðar afurðir svo rækt­unin heima snýst fyrst og fremst um gleð­ina hjá mér. Ég geri mér grein fyrir hversu óraun­hæft það er fyrir mig að treysta á rækt­un­ina mína þótt hún sé vissu­lega brag­ar­bót þegar vel gengur. Mál­tíð­irnar sem ég upp­sker eru í raun bara skemmti­leg auka unun ofan á dundið sem gefur mér svo mikið.“

Þótt þetta sé úti­planta þá leið hnúð­kál­inu rosa­lega vel inni í gróð­ur­hús­inu í fyrra.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi