Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ómar varð bráðkvaddur í Kaupmannahöfn – Söfnun hafin til að koma honum heim til Íslands

Ómar varð bráðkvaddur í Kaupmannahöfn – Söfnun hafin til að koma honum heim til Íslands
Blessuð sé minn­ing Ómars

Ómar Andrés Ottósson varð bráð­kvaddur af völdum heila­blæð­ingar í Kaup­manna­höfn sunnu­dag­inn 8. maí.

Hann var tví­tugur að aldri og var að ljúka stúd­ents­námi, en einnig hafði hann lokið bók­legu námi til pípu­lagn­inga­meist­ara og ein­göngu verk­legt nám eftir þar.

Ómar stefndi á háskóla­nám í sál­fræði þar í borg, en hann hefur verið í Kaup­manna­höfn frá 2015. Það er huggun aðstand­enda hans í sorg­inni að Ómar var líf­færa­gjafi og líf­færi hans hafa nú gefið mörgum veikum ein­stak­lingum aukin lífs­gæði og von um betra líf.
Fjöl­skylda hans und­ir­býr nú flutn­ing Ómars heim til Íslands. Efnt hefur verið til söfn­unar til að aðstoða straum af þeim mikla kostn­aði sem fylgir flutn­ingi á honum heim og útför.

Aðstand­endur Ómars gáfu Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta eft­ir­far­andi texta en hafin er söfnun til að standa straum að kostn­að­inum sem fylgir að koma Ómari heim til Íslands og vegna útfara­kostn­aðar. Mannlíf sendir aðstand­endum Ómars inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

Ómar Andrés Ottósson, tví­tugur verð­andi stúd­ent varð bráð­kvaddur að morgni sunnu­dags. 8. maí úti í Kaup­manna­höfn þar sem hann hefur búið í nokkur ár með fjöl­skyld­unni sinni. Nú hefur þessi afar hjarta­hlýi, fyndni, og umhyggju­sami ungi maður í blóma lífs­ins verið num­inn skyndi­lega og óvænt frá fólk­inu sínu. Ómar var rétt að hefja lífið og frelsið eftir mennta­skóla­árin var rétt handan við hornið. Við viljum trúa að Ómar Andrés sé nú í Sum­ar­land­inu í faðmi pabba síns, afa og ömmu. Hann var líf­færa­gjafi og and­lát hans hefur nú fært nokkrum ein­stak­lingum von um betra líf og lífs­gæði með líf­fær­unum hans að gjöf sem er huggun allra í sorg­inni. Það var sann­ar­lega í hans anda að enda jarð­vist sína með slíkri gjöf, því hann gaf öllum svo mikið af sér.

Lína, Snorri og fjöl­skylda eru nú í því ferli að und­ir­búa Ómar fyrir flutn­ing til Íslands sem þau vona að verði á næstu dögum. Það er afar kostn­að­ar­samt ferli en það er ein­lægur vilji fjöl­skyld­unnar að halda honum hans hinstu veislu á Íslandi og leggja hann til hvílu hjá ömmu og afa hans í Garða­kirkju­garði í Garðabæ að því loknu.

Lína og Snorri standa því frammi fyrir miklum og óvæntum kostn­aði, bæði kringum flutn­ing­inn á honum heim og útfar­ar­kostn­aði. Við sem erum á hlið­ar­lín­unni við þau í þessu verk­efni og áskorun að sjá til­gang með líf­inu eftir þetta, getum best stutt við þau núna með fjár­stuðn­ingi í tengslum við útför­ina. Það mun taka þau langan tíma að vinna úr sorg­inni og vinna úr tóm­leik­anum sem fylgir. Viðbúið er að leiðin framundan verði hlykkj­ótt með til­heyr­andi vinnu­tapi og kostn­aði við aðstoð fag­fólks við að finna hug­arró og að læra að lifa með svona stóru áfalli, en barns­missir fylgir fólki alla tíð.

Ef þú hefur tök á og vilt vera bak­hjarl Línu, Snorra og fjöl­skyldu þá eru hér upp­lýs­ingar um banka­reikn­ing sem hægt er að leggja frjáls fram­lög inn á. Margt smátt gerir eitt stórt.

Banka­reikn­ingur í Danmörku: 0400 4021890834

Banka­reikn­ingur á Íslandi: 0513-26-200174

Kennitala. 110174-3499

Reikn­ings­eig­andi: Sig­ur­lína Andr­és­dóttir

Með fyr­ir­fram þökk fyrir stuðn­ing­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi