Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Útskýringar á hugtökum tengdum tæknifrjóvgunum – Fósturvísar og eggheimtur

Útskýringar á hugtökum tengdum tæknifrjóvgunum – Fósturvísar og eggheimtur
Egg og sæði

Í nýjasta tíma­riti Mannlífs er að finna við­tal við hjón sem meðal ann­ars segja sögu sína af tækni­frjóvg­un­ar­með­ferð sem þau geng­ust undir á árunum 2008 til 2010. Þau halda því meðal ann­ars fram að ekki hafi allar upp­lýs­ingar varð­andi með­ferð­ina verið uppi á borðum og telja spurn­ingum sínum enn ekki hafa verið svarað.

Í við­tal­inu og greinum þar sem rætt er við emb­ætti land­læknis og yfir­lækni Livio er að finna nokkur hug­tök sem ef til vill reyn­ast almennum leik­mönnum torskilin.

Hér fyrir neðan má því lesa útskýr­ingar á helstu hug­tökum tengdum tækni­frjóvg­unum.

Eggheimta

Eftir að eggja­stokkar konu hafa verið örv­aðir með horm­ónum yfir ákveðið tíma­bil sækir læknir egg sem eru orðin nægi­lega þroskuð í eggja­stokk­ana. Meðan á aðgerð­inni stendur er sjúk­lingum tjáð hve mörg egg nást úr eggja­stokkum. Þau eru síðan geymd við kjörað­stæður þar til frjóvgun á sér stað.

Glasafrjóvgun

Bæði egg og sáð­frumur eru með­höndl­aðar utan lík­am­ans. Hægt er að nota bæði ferskt eða frosið sæði til frjóvg­unar. Ef nota á ferskt sæði skilar maki, eða annar aðili ef það á við, sýni sem bestu sáð­frum­urnar eru sóttar í.

Við hefð­bundna glasa­frjóvgun (IVF) er fyr­ir­fram ákveðið magn af sáð­frumum sett saman við eggin og sáð­frum­urnar sjá sjálfar um að synda að egg­inu og frjóvga það.

Við smá­sjár­frjóvgun (ICSI) er eitt egg frjóvgað í einu undir smá­sjá með því að koma einni sáð­frumu fyrir inni í egg­inu. Þetta er til að mynda gert ef um latt sæði er að ræða, sem á í erf­ið­leikum með að synda að egg­inu upp á eigin spýtur.

Frjóvgunartími

Frjóvgun ger­ist yfir­leitt innan 18 klukku­stunda.

Fósturvísir

Egg sem hefur verið frjóvgað með sæð­is­frumu. Fóst­ur­vísir getur orðið að barni sé hann af nægi­lega góðum gæðum og nái að festa sig og dafna í legi kon­unnar. Fóst­ur­vísar eru rækt­aðir í 2-5 daga eftir frjóvgun. Eftir það er fóst­ur­vísi komið fyrir í legi kon­unnar. Ef fleiri fóst­ur­vísar eru af góðum gæðum eftir 5-6 daga ræktun er hægt að frysta þá og kona eða par getur þá valið að nota þá síðar.

Myndin sýnir fóst­ur­vísi á mis­mun­andi stigum rækt­unar (D=dagar). Mynd/Livio.is

Gæði fósturvísa

Gæði fóst­ur­vísa eru mis­jöfn og er þeim skipt í flokka. Ekki reyn­ast allir fóst­ur­vísar heppi­legir til upp­setn­ingar – þá þykja þeir ekki líf­væn­legir, það er ólík­legir til þess að verða að barni. Af þeim fóst­ur­vísum sem verða til eftir frjóvgun, er mjög algengt að hluti sé ekki af nægi­lega góðum gæðum – þyki ekki líf­væn­legir.

Dæmi: Ef 10 fóst­ur­vísar verða til, en að frjóvg­un­ar­tíma loknum eru aðeins 4 þeirra taldir líf­væn­legir, þá eru hinir 6 ekki not­aðir og þeim fargað. Þetta eiga sjúk­lingar að vera upp­lýstir um jafn­óðum og upp­lýs­ingar færðar í sjúkra­skrá.

Uppsetning á fósturvísi

Fóst­ur­vísir er settur upp á degi 2, 3 eða 5 eftir egg­heimtu, ef hann upp­fyllir skil­yrði. Um lít­ils háttar aðgerð er að ræða, hún tekur stuttan tíma og á ekki að vera óþægi­leg eða sárs­auka­full. Eftir upp­setn­ingu tekur við bið­tími þar sem það er undir fóst­ur­vís­inum og umhverfi hans komið hvort hann festi sig í leg­inu og verði í fram­hald­inu að þungun og síðar barni.

Reglur um frysta fósturvísa

Samkvæmt íslenskum lögum má geyma frysta fóst­ur­vísa í allt að 10 ár. Eftir það er þeim fargað. Sjúk­lingar geta ávallt hætt með­ferð og óskað eftir förgun sinna fóst­ur­vísa.

Förgun fósturvísa

Ef fóst­ur­vísum er fargað meðan á með­ferð stendur, til að mynda vegna lélegra gæða, eiga sjúk­lingar að vera upp­lýstir og með­vit­aðir um gang mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi