Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gróðrastöðin Mörk: Heilandi áhrif garðsins

Gróðrastöðin Mörk: Heilandi áhrif garðsins
Eigendur gróðr­ar­stöðv­ar­innar Mörk eru hjónin og garð­yrkju­fræð­ing­arnir Sigríður Helga Sig­urð­ar­dóttir og Guð­mundur Vern­harðs­son. Ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

55 ár eru liðin síðan Gróðr­ar­stöðin Mörk var stofnuð og í dag er hún ein helsta upp­eld­is­stöðin á land­inu þegar kemur að garð­plöntum. Gróðr­ar­stöðin er innst í Foss­vogs­dal og þar fást meðal ann­ars garð­tré í ýmsum stærðum, skraut­r­unnar, skógarplöntur, fjöl­ærar plöntur, sum­ar­blóm og mat­jurta­plöntur auk til­heyr­andi vöru svo sem mold, áburð og ker. Það sem ein­kennir starf­sem­ina er að starfs­fólk er með mikla reynslu og /eða sér­þekk­ingu og -menntun sem nýt­ist í starfi og má þar nefna garð­yrkju­fræð­inga, skrúð­garð­yrkju­fræð­ing, líf­fræð­ing og blóma­skreyti.

„Öll hug­mynda­fræði gengur út á að sér­hæfa sig og sér­hæf­ing okkar felst í að vera fjöl­hæf með mikið úrval og veita góða þjón­ustu,“ segir Guð­mundur. „Við tryggjum að við­skipta­vinir geti spurt starfs­fólk. Þetta er okkar sér­hæf­ing: Við erum með mann­skap sem við­skipta­vinir geta spurt um atriði sem þeir eru ekki vissir um,“ segir Sigríður.

Að njóta

Hjónin leggja áherslu á að garð­eig­endur njóti garðs­ins og upp­lifi ánægju tengda garð­inum og garð­vinn­unni sem og teng­ingu við nátt­úr­una þegar kemur að gróðr­inum og plönt­unum í garð­inum. „Það á að njóta feg­urð­ar­innar í garð­inum og nátt­úr­unni,“ segir Sigríður. „Það á ekki að tengja garð­inn við puð eða skyldu­verk.“

Guð­mundur nefnir hug­leiðslu. „Það getur verið eins og hug­leiðsla að reita arfa og huga að garð­inum sínum. Það er marg­búið að sýna fram á að það að vera innan um gróður og úti í nátt­úr­unni hefur heilandi áhrif. Það er mjög róandi en ég end­ur­tek það sem Sigríður sagði: Það má ekki fara út í garð­inn með því hug­ar­fari að þetta sé eins og að fara að skúra gólf og að það verði að drífa þetta áfram og klára þegar er verið að fara að vinna í garð­inum. Það verður að fara út í garð til þess að vera. Og sleppa öllu öðru.“ Sigríður heldur áfram. „Það þarf að vinna við að koma garð­inum í stand; planta þegar er verið að vinna í nýjum garði en það verður líka að njóta þess. Við leggjum áherslu á að njóta þess að vera í garð­inum. Upplifa hann. Sitja þar og hug­leiða eða sitja þar og gera ekki neitt og bara vera. Ég held að okkur vanti það svo­lítið í lífið.“

Sigríður talar um hljóðin í garð­inum svo sem fugla­söng­inn ef tré eru í garð­inum þar sem fuglar geta sest. „Það brakar í laufi frá í fyrra.“ Hún talar líka um feg­urð­ina í mis­mun­andi litum í garð­inum hvort sem um er að ræða berar greinar eða liti blómanna. „Svo sést kannski ána­maðkur. Eitthvað líf. Það fylgir þessu líf.“

Guð­mundur segir að meg­in­á­herslan sé að færa við­skipta­vin­unum þetta sem þau hafa verið að tala um: Ánægju af gróðri. „Stuðla að því að það gangi vel sem hann tekur sér fyrir hendur og ætlar sér að fá með þessum gróðri og plöntum sem við erum með.“

Blómstra á ólíkum tíma

Garðtré í ýmsum stærðum, skraut­r­unnar, skógarplöntur, fjöl­ærar plöntur, sum­ar­blóm og mat­jurta­plöntur eru á meðal þess sem fæst í Gróðr­ar­stöð­inni Mörk eins og þegar hefur komið fram. Hvað er best að hafa í huga við val á plöntum?

„Sam­setn­ingin í garð­inum gengur út á eitt­hvað sem dregur að sér athygli á hverjum árs­tíma,“ segir Guð­mundur og nefnir rósakirsi í maí en þá blómstrar það tré og vekja bleik blómin almennt mikla hrifn­ingu. „Ein­hverjar teg­undir sem draga að sér athygli á hverjum tíma. Við bendum við­skipta­vinum okkar yfir­leitt á að velja saman teg­undir sem blómstra á ólíkum tíma því það eru ekki margar teg­undir sem standa í blóma allt sum­arið. Við leggjum áherslu á að bjóða alla teg­und­ar­flokk­anna: Sum­ar­blóm sem blómstra, runna sem blómstra á ákveðnum tímum og fjöl­ærar plöntur sem visna yfir vet­ur­inn og koma svo aftur upp yfir sum­arið og eru blóm­strandi á mis­mun­andi tímum. Svo er það eitt­hvað sígrænt en við leggjum einnig áherslu á að fólk hafi eitt­hvað sígrænt í garð­inum sem það sér á vet­urna. Svo erum við að þjón­usta þá sem vilja stór tré strax svo sem birki, reyni og elri/öl. Þá þjón­ustum við sum­ar­bú­staða­eig­endur og bjóðum upp á úrval af skógarplöntum. Fjöl­breyti­leik­inn er styrk­ur­inn.“

Allsherjarbreyting

Aftur að rósakirs­inu en það er í tísku; það er nefni­lega ýmis­legt í tísku á hverjum tíma þegar kemur að garð­inum. Guð­mundur nefnir svo hor­tensíu sem kemur sterkt inn í sum­ar­blóma­flór­una. „Sumir vilja fá eitt­hvað harð­gert og stabílt sem er öruggt en stór hluti við­skipta­vina vill fá ein­hverja fjöl­breytni og prófa eitt­hvað nýtt jafn­vel þó það sé ekki öruggt. Það kemur hingað fólk sem spyr hvað sé nýtt í ár og þá er maður kannski að flytja eitt­hvað nýtt inn sem maður sjálfur hefur ekki reynslu af heldur. En fólk er til­búið að prófa.“ Það eru þó ákveðin blóm sem þola kulda og jafn­vel að vera í frosti í ein­hvern tíma en það  eru til dæmis stjúpur, fjólur og silf­ur­kambur.

„Það er ein alls­herj­ar­breyt­ing sem er að eiga sér stað en það er flat­ar­málið í görð­unum sem er að verða minna í nýrri görðum og svo kjósa margir að hellu­leggja eða leggja pall á stóran hluta garðs­ins og rækt­un­ar­menn­ingin fær­ist æ meira yfir í potta. Það er stóra breyt­ingin. Meira að segja lim­gerði eru frekar á und­an­haldi og koma skjól­veggir, timb­ur­veggir, í stað þess. Þessi þróun er ekki beint umhverf­is­væn; steypan losar heil­mikið kolefni en það er hins vegar mikil kolefn­is­bind­ing þegar kemur að gróðri. Þessi heilandi áhrif verða minni ef ekki er nein gras­flöt og kannski bara pínu­lítið ker með bletti af grænu laufi á móti þessu mikla flat­ar­máli af veggjum, steypu og pöllum. Það er alls­herj­ar­hreyf­ing sem er að eiga sér þarna stað. Auðvitað vill fólk fá við­halds­lít­inn garð en menn eru að reka sig á að það þarf við­hald á pall­inn og grind­verkið alveg eins og gróð­ur­inn.“

Vökva tvisvar í viku

Sigríður bendir á að það þrí­fist ekk­ert nema að jarð­vegur sé góður hvort sem planta er í garði eða keri. „Ef á að planta plöntu þá þarf að passa upp á að dýptin á jarð­veg­inum sé viss margir sentí­metrar eftir teg­undum og það þarf að setja nær­ingu í botn­inn á hol­unni sem getur verið hrossa­skítur, sauða­tað, hænsna­skítur, líf­rænn sveppamassi eða jafn­vel garð­mjöl. Og mold­ar­lag yfir það. Síðan þarf að passa upp á að jarð­veg­ur­inn eða kerið/pott­ur­inn sé loft­ríkur; það þarf að stinga þetta upp til að jarð­veg­ur­inn sé loft­kenndur til að hjálpa plönt­unum við að rót­festa sig í jörðu eða kerum/pottum.“

Sigríður bendir einnig á á að vökva þarf sum­ar­blóm með áburð­ar­vatni einu sinni til tvisvar í viku allt sum­arið til að þau séu fal­leg og að hægt sé að njóta þeirrar gleði sem lit­irnir gefa. „Ég segi oft að þetta séu eins og unga­börn: Eftir því sem jarð­vegur er betri og betra und­ir­lag þegar þetta er sett niður þeim mun meiri upp­skeru fær fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi