Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stórhættulegur ofsaakstur: „Forsetaembættið hefur nú þegar rætt við lögreglu um atvikið“

Stórhættulegur ofsaakstur: „Forsetaembættið hefur nú þegar rætt við lögreglu um atvikið“
Guðni Th. Jóhann­es­son, fyrrum for­seti Íslands, er alls ekki hrif­inn af ananas á pít­sur

Fjöl­mörgum sem voru akandi á Reykja­nes­braut­inni á mið­viku­dag um kaffi­leytið brá ansi hressi­lega í brún þegar tveir lög­reglu­þjónar á tveimur lög­reglu­mót­or­hjólum – hlið við hlið – óku frá Keflavík til Hafn­ar­fjarðar á ofsa­hraða, en þeir voru að fylgja for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­essyni, sem var að koma frá Færeyjum, til Bessa­staða.

Hraðinn á mót­or­hjól­unum tveimur og for­seta­bílnum var svo mik­ill að mikil mildi var að ekki færi illa; árekstrar á slíkum hraða – sem var klár­lega mjög nálægt 200 kíló­metra hraða – eru ekk­ert gam­an­mál.

Mannlíf fór á stúf­ana og leit­aði svara hjá emb­ætti for­seta Íslands og Lög­regl­unni. Engin svör var að fá hjá lög­reglu, en Una Sig­hvats­dóttir sér­fræð­ingur hjá emb­ætti for­seta Íslands svar­aði fyr­ir­spurn blaða­manns Mannlífs, sem var svohljóð­andi:

Í fyrra­dag varð ég ásamt tugum ann­arra vitni að allsvaka­legum ofsa­akstri tveggja lög­reglu­þjóna á mót­or­hjóli – hlið við hlið, og fyrir aftan þá á sama hraða, var for­seta­bíll­inn. Voru við­kom­andi að koma frá Reykja­nesbæ/flug­stöð og á leið til Bessa­staða eða annað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Akst­ur­inn var með ólík­indum og margir hafa haft sam­band við okkur vegna þessa hættu­lega ofsa­akst­urs. Hvers vegna var ekið svo glanna­lega og hrein­lega með stór­hættu­legum hætti? Er þetta hrein­lega lög­legt að keyra svona af lít­illi eða engri ástæðu?

Una Sig­hvats­dóttir, sér­fræð­ingur hjá for­seta­emb­ætt­inu, greindi frá því að „for­seti Íslands kom til Íslands frá Færeyjum á mið­viku­dag og lenti á Kefla­vík­ur­flug­velli. Óskað var aðstoðar lög­reglu um fylgd til höf­uð­borg­ar­innar, sem for­seta­emb­ættið og lög­reglan hafa áður átt gott sam­starf um.

Í þetta sinn varð þó ein­hver mis­skiln­ingur um til­efnið, sem varð til þess að á Reykja­nes­braut var verk­lagi for­gangsakst­urs beitt.“

Og bætti við:

„Lögreglu var þá þegar til­kynnt um að þess væri ekki þörf, for­gangsakstri var hætt og frek­ari lög­reglu­fylgd afþökkuð þegar komið var til Hafn­ar­fjarðar.

Fátítt er að for­seti njóti lög­reglu­fylgdar í for­gangsakstri á ferðum sínum inn­an­lands. Við slíkan akstur ber að sýna til­lits­semi og við­hafa varúð gagn­vart öðrum veg­far­endum. For­seta­emb­ættið hefur nú þegar rætt við lög­reglu um atvikið til að fyr­ir­byggja að við­líka mis­skiln­ingur end­ur­taki sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi