Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tíu látnir eftir skotárás: „Í nafni and­styggi­legr­ar hug­mynda­fræði hvítra þjóðern­is­sinna“

Tíu látnir eftir skotárás: „Í nafni and­styggi­legr­ar hug­mynda­fræði hvítra þjóðern­is­sinna“

Payt­on Gendron, átján ára vopn­aður hvít­ur karl­maður skaut í gær tíu til bana í Buffalo í New York-ríki í Banda­ríkj­un­um. Árás­armaður­inn var þjóð­ern­is­sinn­aður-hægri öfga­maður og sýndi frá árás­inni beint á sam­fé­lags­miðlum sín­um.

Fjöl­miðlar vest­an­hafs segja árás­ar­mann­inn vera frá bæn­um Conklin í New York-ríki og hafi verið ákærður fyr­ir morð af yf­ir­lögðu ráði án mögu­leika á trygg­ingu.

Ofbeldi hvítra þjóðernissinna

Mynd af vett­vangi

Árás­armaður­inn var klædd­ur bæði brynju og hjálm og var síðar hand­tek­inn af lög­reglu.

Auk hinna tíu sem lét­ust eru þrír slas­aðir. Ell­efu fórna­lambanna voru svört á hör­und.

Í yf­ir­lýs­ingu frá Hvíta hús­inu þakk­aði Joe Biden Banda­ríkja­for­seti lög­reglu og við­bragðs­að­ilum fyr­ir starf sitt.

„Öll hryðju­verk heima fyr­ir, þeirra á meðal allt of­beldi sem framið er í nafni and­styggi­legr­ar hug­mynda­fræði hvítra þjóð­ern­is­sinna fer gegn öllu því sem við stönd­um fyr­ir í Banda­ríkj­un­um,“ sagði for­set­inn.

Skothríð í matvöruverslun

Árás­armaður­inn skaut fjóra á bíla­stæði við mat­vöru­versl­un, þar af þrjá til bana, áður en hann fór síðan inn í versl­un­ina og hélt skot­hríð­inni áfram.

Á meðal þeirra sem voru skotn­ir til bana í versl­un­inni var fyrr­ver­andi lög­reglu­maður, sem sinnti starfi vopn­aðs varðar í mat­vöru­búð­inni. Sam­kvæmt lög­reglu skaut vörður­inn nokkr­um sinn­um á árás­ar­mann­inn án ár­ang­urs áður en hann var skot­inn til bana.

Fram kom í máli lög­reglu á blaða­manna­fundi í Buffalo á laug­ar­dags­kvöld að árás­armaður­inn hafi beint byssu sinni að sjálf­um sér þegar lög­regla kom á vett­vang, en lög­reglu tókst síðan að tala hann af því og hann gaf sig síðan á vald lög­reglu.

Rann­sakað sem hat­urs­glæp­ur

Stephen Belongia, full­trúi banda­rísku Al­rík­is­lög­regl­unn­ar á blaða­manna­fund­in­um, sagði við fjöl­miðla að árás­in væri rann­sökuð sem hat­urs­glæp­ur.

Banda­rísk­ir fjöl­miðlar hafa greint frá því að árás­armaður­inn hafi skrifað ít­ar­lega „stefnu­lýs­ingu“ og birt á net­inu skömmu fyr­ir árás­ina. Í meint­um texta seg­ir árás­armaður­inn frá áætl­un sinni sem var knú­in af kyn­þáttar­for­dóm­um.

Árás­armaður­inn sagð­ist meðal ann­ars vera „inn­blás­inn“ af of­beld­is­verk­um hvítra hægri-öfga­sinna, m.a. hryðju­verk­un­um í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019, þar sem 51 múslimi lést.

Maður­inn beitti hálf-sjálf­virku skot­vopni við árás­ina sem hann hafði skrifað á slag­orð hvítra hægri-öfga­sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta