Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jónas brýst út úr flensuhellinum: „Við ætlum bara að ferðast í sumar, um landið og njóta“

Jónas brýst út úr flensuhellinum: „Við ætlum bara að ferðast í sumar, um landið og njóta“
Jónas Sig Mynd / Hákon Davíð

Hinn magn­aði söngv­ari og for­rit­ari Jónas Sig­urðs­son á afmæli í dag. Eru nú akkurat 48 ár frá fæð­ingu hans.

Jónas var trommari í hinni goð­sagna­kenndu hljóm­sveit Trass­arnir en sló samt meira í gegn  með Sól­strand­ar­gæj­unum á síð­ustu öld, ásamt Unn­steini Guð­jóns­syni og Esther Jök­uls­dóttur sem var í bak­röddum, Stebba Boogie og Stebba Bongó. Lögin sömdu þeir félagar, Jónas og Unn­steinn á heima­vist Mennta­skól­ans á Egils­stöðum og sungu í partíum við góðan orðstír. Alls komu út fjórar plötur með Sól­strand­ar­gæj­unum, Sól­strand­ar­gæjar (1995), Uglujól (1995), Kú-Tíví (1996) og All­tígúddí (2001) en það var plata sem þau tóku upp á barnum Útlaginn á Flúðum en um var að ræða safn­plötu.

Sól­strand­ar­gæj­arnir (og gellan)

Jónas flutti svo til Dan­merkur og var þar í þó nokkur ár en snéri aftur árið 2007 til Íslands og gaf út plöt­una Þar sem mal­bikið svífur mun ég dansa sem af mörgum var talin ein besta íslenska platan það árið. Síðan þá hefur hann gefið út Allt er eitt­hvað (2010) ásamt Ritvélum fram­tíð­ar­innar, Þar sem himin ber við haf (2012) ásamt Lúðra­sveit Þor­láks­hafnar og Milda hjarta (2018) með Ritvélum fram­tíð­ar­innar.

Stíll Jónasar þykir skemmti­lega öðru­vísi og text­arnir vand­aðir og á köflum póli­tískir eins og sjá má af þessu broti úr lag­inu Af ávöxt­unum skul­uðu þið þekkja þá:

Þessi verslar í vit­firr­inga­búð­inni
Kjósum hann!
Er hvorki týpa né var­í­ant
Kjósum hann!
Missti enga muni í þessu svo­kalla hruni
Kjósum hann!

Hann er úr gulli þessi kálfur en þessi skítur er ekki að fara að moka sig sjálfur

Mannlíf heyrði í Jónasi og vildi fá að vita hvað hann hyggð­ist gera í dag í til­efni dags­ins.

„Ég ætla bara að vera með fjöl­skyld­unni minni í kósý-time. Við förum alltaf út að borða saman og svo bara njóta með börn­unum mínum og kon­unni,“ svar­aði Jónas hress.

En hvað er framundan hjá Jónasi? „Nú er það bara sum­arið, íslenskt sumar, út úr þessum flensu­helli sem við erum búin að vera í hérna. Við ætlum bara að ferð­ast í sumar, um landið og njóta.“

Mannlíf óskar Jónasi inni­lega til ham­ingju með afmælið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi