Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áslaug Arna: „Ég vonast til þess að geta opnað dyrnar og hleypt inn súrefni til nýsköpunar“

Áslaug Arna: „Ég vonast til þess að geta opnað dyrnar og hleypt inn súrefni til nýsköpunar“

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra greindi í dag frá þeirri ákvörðun sinni að styrkja sér­stak­lega inn­leið­ingu nýsköp­unar í heil­brigð­is­þjón­ustu. Fyrsta skrefið væri að úthluta 60 m.kr. sem ein­ungis væru ætl­aðar til inn­leið­ingar á nýjum lausnum sem auka gæði og hag­kvæmni heil­brigð­is­þjón­ustu.

Áslaug Arna upp­lýsti um þetta við kynn­ingu á nýju ráðu­neyti við upp­haf Nýsköp­un­ar­viku í hádeg­inu í dag. Fram kom að árlega færu um 30 millj­arðar í nýsköpun en erf­ið­lega hefði gengið fyrir mörg nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki að inn­leiða lausnir sína í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Styrk­veit­ingin verður háð því skil­yrði að nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækin eigi í nánu sam­starfi við stofn­anir eða fyr­ir­tæki í heil­brigð­is­þjón­ustu sem skuld­binda sig við að inn­leiða þá nýsköpun sem styrkur er sóttur um í. Lögð verður sér­stök áhersla á að styðja við sam­starf milli hins opin­bera og einka­að­ila um land allt.

Ekki nóg að fjárfesta í nýsköpun ef þær eru ekki nýttar

Ráðherra sagði að ekki væri nóg að fjár­festa í nýsköpun ef þær eru ekki nýttar í íslensku sam­fé­lagi.

„Við eigum að nota hug­vit og nýsköpun til að efla heil­brigð­is­kerfið með hag­kvæmum hætti.  Eftir að hafa fundað með fjölda frum­kvöðla blasir við að veggir hins opin­bera eru of háir og lok­aðir fyrir hug­myndum nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja. Þetta skýtur skökku við þegar við sem sam­fé­lag fjár­festum í nýsköpun fyrir um 30 millj­arða en nýtum ekki þær lausnir sem verða til fyrir okkar eigin kerfi.“

Hún bætti því við að málið væri brýnt því spár um vöxt Land­spít­al­ans fram til árs­ins 2040 sýndu að vegna öld­unar þjóð­ar­innar stefndi í að starfs­fólki spít­al­ans ætti eftir að fjölga um 45% ef rekst­ur­inn væri óbreyttur. Jafn­framt sýndi grein­ing McKinsey fyr­ir­tæk­is­ins að við óbreyttar aðstæður ætti rekstr­ar­kostn­aður spít­al­ans eftir að aukast um 90%. Greining McKinsey sýndi hins vegar að ef rekst­ur­inn yrði lag­aður með nýjum ferlum og umfram allt staf­rænum lausnum og nýsköpun þá myndi þessi gríð­ar­lega aukn­ing þjón­ustu ekki leiða til nema 3% fjölg­unar starfs­fólks og um 30% hækk­unar heild­ar­kostn­aðar árið 2040.

Opna dyrnar og hleypa inn súrefni til nýsköpunar

„Lyk­ill­inn að því að fjölga starfs­fólki ein­ungis um 3% í stað 45% er hug­vitið. Þessari þróun verður ekki breytt án nýsköp­unar, tækni og staf­rænna lausna,“ sagði Áslaug Arna í ræðu sinni.

„Þrátt fyrir að erf­ið­lega hafi gengið fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki að koma á sam­starfi við heil­brigð­is­kerfið er ég sann­færð um að áhugi fólks innan heil­brigð­is­kerf­is­ins sé samt sem áður til staðar, en með þessu von­ast ég til þess að geta opnað dyrnar og hleypt inn súr­efni til nýsköp­unar. Þetta er bara fyrsta skrefið því ef vel gengur munum við fara í mun fleiri sam­bæri­leg verk­efni.“

Fram kom í máli ráð­herra að styrkirnir yrðu aug­lýstir á næstu vikum með það að mark­miði að fyrsta úthlutun gæti átt sér stað í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi