Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jelly Boy the Clown leitar að hæstu manneskju Íslands: „Þessi viðundrasýning tók yfir líf mitt“

Jelly Boy the Clown leitar að hæstu manneskju Íslands: „Þessi viðundrasýning tók yfir líf mitt“
Jelly Boy the Clown

Eric Broomfield er Banda­ríkja­maður sem búsettur er hér á landi en hann starfar sem trúður undir nafn­inu Jelly Boy the Clown. Er það nokkuð óhætt að segja að hann er eng­inn venju­legur trúður.

Mannlíf tók hann tali nýlega og spurði hann út í veru sína á Íslandi og trúða­starfið.

„Ég er far­and­skemmti­kraftur frá New York sem kom fyrst til Íslands í sept­em­ber árið 2018. Ég kom hingað til að vera með sýn­ingu á Gauknum, sem part af stórum Evrópu-Skand­in­avíu-túr en við fórum til Hollands, Þýska­lands, Aust­ur­ríkis, Englands, Írlands og Noregs. Á Gauknum þetta kvöld hitti ég kon­una sem ég kalla nú eig­in­konu mína, Aðal­heiði Flosa­dóttur. Hún var á Gauknum að taka ljós­myndir og við hófum spjall sem tók engan enda. Við giftum okkur í nóv­em­ber 2020 og eigum nú tveggja mán­aða gam­alt barn saman,“ sagði Eric og brosti.

„Ég er hluti af sirkús við­unda­hópi (e. circus sideshow)“ sem kallar sig Squidling Brothers en í honum eru lista­menn frá Evrópu og Banda­ríkj­unum, sem sér­hæfa sig í áhættu­grín­skemmtun (e. Danger comedy Variety). Ég hafði áður unnið í Coney Island Circus við­undra­sýn­ing­unni í hinum fræga skemmti­garði í Brooklyn, New York sem stundum er kall­aður „Leik­völlur heims­ins“ en þar var ég sverða­gleypir og kynnir.

Hópurinn sem Eric er í hér á landi kallar sig Coney Iceland en segir hann það vera orða­leik því hann hafi verið partur af Coney Island hópnum áður.

En hvenær byrj­aði hann sem trúður? „Snemma árið 2000 varð ég trúðu en þá spil­aði ég í rokk­hljóm­sveit sem hét Hydrogen Jukebox. Við breyttum hljóm­sveit­inni í sirkús skemmti­sýn­ingu sem við köll­uðum Carnivolution en við vorum með brúður, dans­ara, mál­ara sem mál­uðu í beinni, eld-lista­menn, ljóð­skáld og við­undra­sýn­ingu, allt til að búa til eina, stóra skemmtun. Þessi við­undra­sýn­ing tók yfir líf mitt og sendi mig út um allan heim, til Japan, Mið­aust­ur­landa, Indlands, Evrópu og til Banda­ríkj­anna, stranda á milli.“

„Hvað varðar hóp­inn okkar hér á landi, bjóðum við upp á atriði þar sem við göngum á gleri, leggj­umst á nál­a­rúm, hömrum pinnum upp í nefið, borðum eld og gleypum sverð. Þetta allt sýnum við með því að blanda saman trúðslátum, frá­sögnum, Burlesque og dragi!“ sagði Eric spenntur.

Enginn trúður meidd­ist við gerð þessa atriðis

En hvaðan sækir Eric sinn inn­blástur? „Inn­blástur minn sæki ég í gömlu amer­ísku tívólíin og frík­sýn­ingar, leik­hús fárán­leik­ans og rokk og ról frá fólki eins og Alice Cooper og Frank Zappa.“

Segist Eric að lokum hafa unnið með mörgum nátt­úru­legum „við­undrum“ (e. freaks) en seg­ist ekki hafa séð neina slíka hér á landi. Þá seg­ist hann vera að leita að hávöxn­ustu mann­eskju Íslands af hvaða kyni sem er. Nú er spurn­ing hvort Pétur Guð­munds­son sé laus.

Að lokum má geta þess að Squidling Brothers verður með sýn­ingu á Gauknum, laug­ar­dag­inn 22. maí en þar verður hægt að sjá Coney Iceland, við­undrasirkús, Burlesque og drag, allt á einum stað. Húsið opnar klukkan 20 en sýn­ingin hefst klukkan 21. Kostar 3.000 kr. inn. Við­burð­inn má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu