Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fulltrúarnir hafi færst frá hægri til vinstri – Nýr meirihluti þarf að endurspegla þessa sveiflu

Fulltrúarnir hafi færst frá hægri til vinstri – Nýr meirihluti þarf að endurspegla þessa sveiflu

Sós­í­alista­flokk­ur­inn í Reykja­vík segir tíma kom­inn á félags­hyggju­stjórn í borg­inni. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu þar sem segir að hægri flokkar hafi tapað í kosn­ing­unum. Hægri flokkar hafi tapað fjórum full­trúum á meðan Framsókn græddi fjóra og megi úr því lesa að full­trú­arnir hafi færst frá hægri til vinstri. Nýr meiri­hluti þurfi að end­ur­spegla þessa sveiflu – þ.e. vera frá miðj­unni til vinstri, í meiri­hluta um félags­hyggju og mannúð.

Í yfir­lýs­ingu segir að meiri­hlut­inn í borg­inni hafi fallið í kosn­ing­unum og sé því mik­il­vægt að nýr meiri­hluti verði byggður á nýjum grunni en ekki á rústum meiri­hlut­ans sem féll.

„Meiri­hlut­inn féll í kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn. Eins og reyndar í síð­ustu og þar síð­ustu kosn­ingum. Það er því mik­il­vægt að næsti meiri­hluti verði á nýjum grunni en ekki enn ein fram­leng­ingin á föllnum meiri­hluta. Nýr meiri­hluti ætti að leggja áherslu á félags­lega inn­viði borg­ar­innar, vel­ferð og mannúð. Augljóst er að upp­bygg­ing félags­legs hús­næðis yrði fyrsta verk­efni nýs meiri­hluta.  Kosn­inga­sigur Fram­sóknar opnar mögu­leika á meiri­hluta sem byggir á sama grunni og Reykja­vík­ur­list­inn á sínum tíma, félags­hyggju­stjórn frá miðju til vinstri. Á fyrstu árum sínum vann R-list­inn stóra­frek í leik­skóla­málum. Nú vantar sam­bæri­legt átak í hús­næð­is­málum. Það verður ekki gert nema af félags­hyggju­flokk­unum.“

Sós­í­alistar telja einnig ljóst að hægri flokk­arnir hafi tapað í kosn­ing­unum. Þetta sjá­ist vel þegar horft er til þess hvaða flokkar töp­uðu full­trúum og hvaða flokkar græddu full­trúa.

„Hægri flokk­arnir töp­uðu í kosn­ing­unum. Mið­flokk­ur­inn féll úr borg­ar­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði tveimur mönnum og Viðreisn einum. Framsókn fékk alla þessa fjóra, svo segja má að þessir full­trúar hafi færst frá hægri yfir á miðj­una. Vinstra megin unnu Sós­í­alistar og Píratar sitt­hvorn mann­inn af Sam­fylk­ing­unni. Þar færð­ist fylgið til vinstri og meiri rót­tækni. Eðlileg við­brögð við þessu er að mynda meiri­hluta sem end­ur­speglar þessa sveiflu, frá miðju til vinstri. Þessi sveifla kallar á meiri­hluta um félags­hyggju og mannúð. Nýr meiri­hluti ætti að móta metn­að­ar­fulla áætlun um hús­næð­is­upp­bygg­ingu á félags­legum grunni, styrk­ingu félags­legra inn­viða og aukna mannúð, nýtt upp­haf í borg­inni.“

Sós­í­alistar rifja upp að með Reykja­vík­ur­list­anum á sínum tíma hafi nýr andi komið til Reykja­víkur eftir ára­tuga „þrúg­andi stjórn“ Sjálf­stæð­is­flokks.

„Borg­ar­búar kunnu að meta breyt­ing­una og tryggðu R-list­anum meiri­hluta í þrjú kjör­tíma­bil. Síðan hafa borg­ar­búar fellt alla meiri­hluta í borg­inni og borg­ar­málin ein­kennst af ósætti, minnk­andi trausti og æ lélegri kosn­inga­þátt­töku. Nýr meiri­hluti þarf að enda þetta tíma­bil og hefja nýjan kafla í sögu borg­ar­innar. Það var nið­ur­staða kosn­ing­anna á laug­ar­dag­inn. Þær kalla á nýjan meiri­hluta sem byggir á félags­hyggju og mannúð, end­ur­reisir traust meðal borg­ar­búa með því að byggja upp mann­eskju­legri borg þar sem allir fá að njóta sín.  Horfum til fram­tíðar og byrjum að byggja upp borg­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi