Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hin 93 ára Rúna Gísla las í bolla Guðmundar Árna: „Fáið fjóra og tveir eru að gjóa augunum til þín“

Hin 93 ára Rúna Gísla las í bolla Guðmundar Árna: „Fáið fjóra og tveir eru að gjóa augunum til þín“

Guðrún Gísla­dóttir, alltaf kölluð Rúna Gísla, er bor­inn og barn­fæddur Gaflari sem svo sann­ar­lega hefur munað tím­ana tvenna; hún var 16 ára gömul þegar seinni heims­styrj­öld­inni lauk árið 1945 – og hún hefur tekið sér ýmis­legt fyrir hendur í gegnum tíð­ina: Eins og til dæmis að eign­ast 6 börn, vinna á Hótel Loft­leiðum, í álver­inu í Straums­vík, og læra hatta­saum, svo fátt eitt sé upp­talið.

Rúna Gísla gift­ist Snorra Jónssyni árið 1956, og saman eign­uð­ust þau sex börn. Snorri lést árið 2016, 88 ára að aldri.

Rúna er við góða heilsu miðað við aldur, en hún fagnar 93 ára afmæli sínu eftir rúmar tvær vikur:

„Skrokk­ur­inn er aðeins tek­inn að þreyt­ast, en mér er alla­vega sagt að haus­inn sé alveg í prýði­legu formi,“ segir hún og hlær.

Eitt af því sem Rúna er þekkt fyrir eru spá­dómar; hún spáir í bolla fyrir þá sem hafa áhuga á, og hefur lengi gert:

„Ég hef aldrei verið að aug­lýsa þetta neitt, en þetta hefur spurst út í gegnum árin og fólk biður mig oft um að spá í bolla fyrir sig – og ég hef bara gaman af því. Fólki finnst þetta athygli­vert og skemmti­legt, og mjög margir verða hissa þegar ég byrja að rýna í boll­ann: Sér­stak­lega fólk sem ég hef aldrei hitt áður og veit ekk­ert um. En þetta er fyrst og síð­ast skemmti­legt áhuga­mál, og maður væri varla að þessu ef ekk­ert væri að marka hvað ég sé í boll­anum.“

Guð­mundur Árni, Rúna og Jóna Dóra

Og á sjálfan kosn­inga­dag­inn, síð­asta laug­ar­dag, kíktu heið­urs­hjónin Guð­mundur Árni Stef­áns­son og Jóna Dóra Karls­dóttir í heim­sókn til Rúnui; bæði til að hitta Rúnu sem þau höfðu ekki séð lengi – en þekkt vel í ára­tugi – enda hafa þau hjónin verið búsett erlendis í langan tíma – en einnig til að fá hana til að rýna í kaffi­bolla fyrir Guðmund Árna og athuga hvort hún sæi eitt­hvað sem tengd­ist kosn­ing­unum og mögu­lega útkomu þeirra.

Tveir góðir á góðri stundu: Barack Obama for­seti Banda­ríkj­anna frá 2009 til 2017, og Guð­mundur Árni, sem var sendi­herra í Washington á árunum 2011 til 2015.

Að sjálf­sögðu var heitt á könn­unni, og eftir góð faðm­lög og fal­leg orð á báða bóga var síðan hellt í bolla fyrir Guðmund Árna, og Rúna var til í slag­inn. Hún var fljót að sjá eitt­hvað sem tengd­ist kosn­ing­unum:

Bollinn góði

„Ég held að Sam­fylk­ingin sé að fá fjóra menn kjörna, mér sýn­ist það. Þetta verður ansi jafnt á milli Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sam­fylk­ingar, en það er þarna flokkur sem nær tveimur mönnum inn, frekar óvænt sýn­ist mér; og þeir aðilar eru að gjóa aug­unum til þín – en það er eins og þeir séu gegn­sæir og jafn­vel ekki allir þar sem þeir eru séðir,“ sagði Rúna við Guðmund Árna.

Þess má geta að þegar loka­tölur lágu fyrir kom það upp úr köss­unum að Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokkur fengu báðir 4 kjörna full­trúa, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tvo og Viðreisn einn. Því er nokkuð aug­ljóst að það er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem hefur úrslita­valdið í myndun nýs meiri­hluta, og þá ann­að­hvort með Sam­fylk­ing­unni eða Sjálf­stæð­is­flokknum.

Eftir heim­sókn­ina góðu var haldið inn í dag­inn, sjálfan kosn­inga­dag­inn, og Guð­mundur Árni og Jóna Dóra þökk­uðu fyrir sig og það sama gerði Rúna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi