Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur svarar Hildi ekki: „Spurning hverjir eru kurteisir og taka símann og hverjir ekki“

Dagur svarar Hildi ekki: „Spurning hverjir eru kurteisir og taka símann og hverjir ekki“
Dagur B. Egg­erts­son og Hildur Björns­dóttir,

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, svar­aði ekki sím­tali frá Hildi Björns­dóttir, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hún hringdi í hann eftir að úrslit sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna voru ljós. Hildur segir frá þessu í sam­tali við Vísi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík, þrátt fyrir að hafa tapað tölu­verðu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Flokk­ur­inn fer úr átta borg­ar­full­trúum niður í sex. Sam­fylk­ing er næst stærst en tap­aði sömu­leiðis fylgi milli kosn­inga og fer úr sjö borg­ar­full­trúum niður í fimm. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þykir í lyk­il­stöðu í borg­inni, enda vann flokk­ur­inn kosn­inga­sigur með því að fara úr engum full­trúum upp í fjóra, með 18,7 pró­senta fylgi. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, er því í stór­sókn og mun eflaust hafa mikið um það að segja hvernig næsta borg­ar­stjórn kemur til með að líta út.

Segir samhljóm með Sjálfstæðisflokki og Framsókn

Hildur upp­lýsir við Vísi að hún sé þegar búin að ræða við Einar og segir mik­inn sam­hljóm með flokk­unum tveimur. Odd­vit­arnir tveir hitt­ust í gær og Hildur segir þau hafa átt flott sam­tal.

„Þetta eru stóru flokk­arnir tveir sem boð­uðu breyt­ingar í kosn­ing­unum þannig að mér fannst skýrt ákall frá kjós­endum á breyt­ingar,“ segir Hildur.

Samkvæmt Vísi fund­aði Einar bæði með Hildi og Degi í gær. Oddvitar Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar hafa gefið það út að flokk­arnir hygg­ist halda saman í við­ræð­unum, að minnsta kosti fyrst um sinn.

Dagur svaraði ekki símanum

Hildur seg­ist hafa rætt við odd­vita allra flokka sem náðu kjöri í Reykja­vík, utan tveggja. Hún segir þau Dag ekki enn hafa rætt saman en að henni þyki eðli­legt að þau geri það.

„Það er auð­vitað ekk­ert endi­lega mik­ill mál­efna­legur sam­hljómur okkar á milli en mér finnst það eðli­legt í kjöl­far kosn­inga að odd­vitar tveggja stærstu flokk­anna setj­ist alla vega niður saman og ræði hvernig þeir sjá hlut­ina fyrir sér,“ segir hún í sam­tali við Vísi.

Hún seg­ist sjálf hafa tekið upp sím­ann og hringt í odd­vit­ana, sem sé vinnu­regla hennar sem odd­viti stærsta flokks­ins.

„En svo er það bara spurn­ing hverjir eru kurt­eisir og taka sím­ann og hverjir ekki,“ segir Hildur og bætir við að Dagur hafi ekki svarað henni. „Ég hringi í alla.“

Hún vill ekki greina frá því hver hinn odd­vit­inn sé sem hafi ekki svarað í sím­ann þegar hún tók upp tólið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi