Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brynjar braut gegn stúlkum undir 15 ára: „Umfangsmesta kynferðisbrotamál sögunnar“

Brynjar braut gegn stúlkum undir 15 ára: „Umfangsmesta kynferðisbrotamál sögunnar“

Dómur féll í dag í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í máli Brynjars Joensen Creed sem ákærður var fyrir marg­vís­leg kyn­ferð­is­brot gegn fimm stúlkum undir 15 ára aldri.

Samkvæmt  upp­lýs­ingum frá hér­aðs­sak­sókn­ara var Brynjar sak­felldur fyrir suma ákæru­liði en sýkn­aður í öðrum. Ákæru­liðir voru sam­tals 17.

Brynjar var dæmdur í sex ára fangelsi

Hann var jafn­framt úrskurð­aður í mán­að­ar­langt gæslu­varð­hald en rann­sókn stendur yfir á fjöl­mörgum meintum kyn­ferð­is­brotum hans. Ætluð brot Brynjars eru gíf­ur­lega umfangs­mikil og sagði hér­aðs­sak­sókn­ari að: „þetta væri eitt umfangs­mesta kyn­ferð­is­brota­mál sög­unnar.“

Hér­aðs­dómur Reykja­ness dæmdi í dag Brynjars Joensen Creed fjöl­skyldu­föður á sex­tugs­aldri í sex ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn 5 stúlkum á grunn­skóla­aldri. Maðurinn hefur setið í gæslu­varð­haldi síðan í nóv­em­ber og var hann ekki við­staddur dóms­upp­kvaðn­ing­una. Fleiri kyn­ferð­is­brota­mál tengd mann­inum eru til rann­sóknar hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum.

Var handtekinn á vinnustað sínum

Elsta brot Brynjars er frá árinu 2018 en flest brotin voru framin á síð­asta ári. Brynjar var hand­tek­inn á vinnu­stað sínum, stóru heild­sölu­fyr­ir­tæki, þann 8. nóv­em­ber, og hefur síðan þá setið í gæslu­varð­haldi í fang­els­inu á Hólms­heiði. Hjá fyr­ir­tæk­inu starf­aði Brynjar við við­hald tækja og þjón­ustu við fyr­ir­tæki, stofn­anir og skóla. Lög­reglan lagði hald á vinnu­bíl hans og var meðal ann­ars not­ast við upp­lýs­ingar úr öku­rita við rann­sókn máls­ins.

„Hann var hæg­látur, pínu und­ar­legur. Utan við sig og erfitt að átta sig á honum. Lág­mæltur,“ segir vinnu­fé­lagi Brynjars hjá fyr­ir­tæk­inu, sem ræddi við DV á dög­unum.

„Brynjar var aug­ljós­lega undir ein­hvers konar álagi. Hann klessti vinnu­bíl illa og var stundum að bakka á eða keyra utan í. Eins og hann væri ekki með hug­ann við umhverfið. Núna veit maður hvað hann var að hugsa um. Ógeðs­legt,“ segir vinnu­fé­lag­inn enn­fremur.

Þess má geta að Brynjar var trún­að­ar­maður fyrir sinn vinnu­stað hjá VR. Hann hefur tekið þátt í almenn­ings­hlaupum og hlaupið til styrktar góðum mál­efnum.

Sem fyrr segir bíða Brynjars fleiri ákærur þar sem meint brot hans af sama tagi og hann var sak­felldur fyrir í dag eru í rann­sókn hjá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum.

Dómurinn hefur ekki verið birtur og óljóst hvenær það verður

Maðurinn var ákærður fyrir fjölda grófra kyn­ferð­is­brota gegn fimm ungum stúlkum. Þær voru allar á grunn­skóla­aldri þegar mað­ur­inn var sagður hafa brotið gegn þeim.

Elsta málið er nærri fjög­urra ára gam­alt en flest brotin voru síðan í fyrra. Stúlk­urnar fimm kröfðu mann­inn um sam­tals 17,5 millj­ónir í miska­bætur.

Í ákærunni var mað­ur­inn meðal ann­ars ákærður fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni gegn barni, kyn­ferð­is­brot gegn barni og nauðgun auk fleiri væg­ari brota. Í ákærunni voru sumar stúlk­urnar sagðar hafa sent honum kyn­ferð­is­legt myndefni. Maðurinn var einnig sagður hafa sent þeim slíkt myndefni á sam­skipta­for­rit­inu Snapchat.

Grunur að hann hafi níðst á fleiri börnum

Ákæran var á sex blað­síðum sem er sjald­gæft í kyn­ferð­is­brota­málum og ákæru­lið­irnir 17.

Hann var sagður hafa sent einni stúlkunni kyn­lífs­hjálp­ar­tæki, und­ir­föt, nikótín­púða, rafrettur, áfyll­ingar í rafrettur og áfengi gegn því að hún sendi honum myndefni gegnum sam­skipta­for­ritið Snapchat.

Fram kom í fréttum RÚV í síð­ustu viku að mað­ur­inn væri til rann­sóknar hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum vegna gruns um að hafa níðst á fleiri börnum.

Fram kom í frétt­inni að málið væri raunar svo umfangs­mikið að fjölga þurfti stöðu­gildum í Barna­húsi. Ólöf Ásta Farest­veit, for­stjóri Barna- og fjöl­skyldu­stofu, stað­festir það. Mikið álag hafi verið í Barna­húsi í heims­far­aldr­inum og að heim­ild hafi feng­ist til að ráða í eitt og hálft stöðu­gildi, meðal ann­ars vegna þessa máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi