Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kona gekk öskrandi um hverfið – Fíkniefnaræktun í Kópavogi

Kona gekk öskrandi um hverfið – Fíkniefnaræktun í Kópavogi
Lög­reglan

Það var anna­söm nóttin hjá lög­regl­unni og gistu sjö á bak við lás og slá. Samkvæmt dag­bók lög­reglu telst það óvenju mikið á virkum degi. Í Kópavogi báru lög­reglu­menn kennsl á öku­mann sem hafði verið sviptur öku­rétt­indum eftir ítrek­aðan vímu­efna- og áfeng­is­akstur. Maðurinn var ekki á því að stöða bíl­inn, sinnti ekki stöðv­un­ar­merkjum lög­reglu og reyndi að kom­ast undan. Komst hann ekki langt þar sem hann ók fljót­lega á aðra bif­reið. Greip hann þá til örþrifa ráða og reyndi að hlaupa undan lög­reglu. Loks var mað­ur­inn hand­tek­inn eftir elt­inga­leik­inn en var hann undir áhrifum fíkni­efna og með fíkni­efni í fórum sínum.

Stuttu eftir mið­nætti barst lög­regl­unni til­kynn­ing um yfir­stand­andi inn­brot í fyr­ir­tæki. Lögregla kom að þjófnum inni í hús­næð­inu en hafði hann spennt upp glugga og skriðið þar inn. Þjóf­ur­inn var hand­tek­inn og gisti fanga­klefa. Fyrr um kvöldið fram­kvæmdi lög­regla hús­leit í Kópavogi. Var grunur um að þar væru ræktuð fíkni­efni og reynd­ist það vera rétt. Lagt var hald á búnað til ræt­unar og fíkni­efni. Einn maður var hand­tek­inn.

Karl­maður ók á grind­verk nágranna síns í Hafn­ar­firði í gær­kvöldi. Þegar betur var að gáð reynd­ist mað­ur­inn ekki vera með öku­rétt­indi. Þá voru nágrannar konu í Kópavogi ekki par sáttir í morgun þegar hún gekk um hverfið öskr­andi. Reyndist hund­ur­inn hennar hafa sloppið út og leit­aði hún að honum „með heldur miklum gassa­gangi fyrir smekk sof­andi nágranna sinna,“ segir í dag­bók lög­reglu.
Að lokum, tveir eft­ir­lýstir félagar voru hand­teknir í mið­bænum í gær­kvöldii. Annar þeirra gerði heið­ar­lega til­raun til þess að stinga lög­reglu af „en varð að láta í minni pok­ann fyrir þraut­þjálf­uðum lag­anna vörðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi