Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segja frá ólögmætum uppflettingum í sjúkraskrám: „Það sem hér er lýst er með öllu óheimilt að gera“

Segja frá ólögmætum uppflettingum í sjúkraskrám: „Það sem hér er lýst er með öllu óheimilt að gera“

Samkvæmt fram­burði og gögnum hjóna sem ræddu við Mannlíf á dög­unum hefur upp­flett­ing í sjúkra­skrám þeirra verið umtals­verð. Þar er um að ræða þús­undir upp­flett­inga sem margar hverjar eru fram­kvæmdar af heil­brigð­is­starfs­fólki sem að þeirra sögn hefur aldrei ann­ast þau – til að mynda koma fram upp­flett­ingar starfs­manna á ýmsum deildum Land­spít­ala. Ber þar meðal ann­ars að nefna aðila sem starfa við öldr­un­ar­lækn­ingar, við lungna­lækn­ingar og á líkn­ar­deild.

Þau Gunnar Árnason og Hlédís Sveins­dóttir komu fram í ítar­legu við­tali í nýjasta tíma­riti Mannlífs þar sem þau lýstu meðal ann­ars því sem þau segja ólög­legar upp­flett­ingar í sjúkra­skrám þeirra.

Meðal þeirra sem sést að hafi farið inn í sjúkra­skrárnar eru læknar, hjúkr­un­ar­fræð­ingar, lækna­nemar og hjúkr­un­ar­fræði­nemar.

Skýr lög og reglur gilda um sjúkra­skrár. Um það er fjallað í lögum um sjúkra­skrár (nr. 55/2009) og reglu­gerð um sjúkra­skrár (nr. 550/2015). Í 22. grein laga um sjúkra­skrár er fjallað um eft­ir­lit með sjúkra­skrám. Í stuttu máli er engum heim­ilt að fara inn í sjúkra­skrár ein­stak­linga nema þeim sem sann­ar­lega ann­ast við­kom­andi aðila á heil­brigð­is­stofnun eða koma að með­ferð hans með ein­hverjum hætti. Við­kom­andi heil­brigð­is­starfs­maður þarf að geta fært á það sönnur að hafa átt erindi inn í sjúkra­skrá þess ein­stak­lings sem um ræðir.

Öll notkun sjúkra­skráa er skráð á sjálf­virkan hátt og er rekj­an­leg til hvers ein­stak­lings sem opnar sjúkra­skrána. Allir ein­stak­lingar hafa rétt á að óska eftir lista yfir upp­flett­ingar í sjúkra­skrá sinni.

Áður hafa fallið úrskurðir Per­sónu­verndar um óheim­ila upp­flett­ingu í sjúkra­skrá kvar­tenda.

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við emb­ætti land­læknis til þess að fá svör við nokkrum fyr­ir­spurnum tengdum mál­inu.

Hver ber ábyrgð á eftirliti með uppflettingum í sjúkraskrám einstaklinga?

„Ábyrgðar- og umsjón­ar­að­ili sjúkra­skráa skulu hafa virkt eft­ir­lit með því að fram­fylgt sé ákvæðum lag­anna. Ábyrgð­ar­að­ili sjúkra­skráa er heil­brigð­is­stofnun eða starf­stofa heil­brigð­is­starfs­manns þar sem sjúkra­skrár eru færðar. Umsjón­ar­að­ili sjúkra­skráa er læknir, eða annar heil­brigð­is­starfs­maður sé lækni ekki til að dreifa, sem ábyrgð­ar­að­ili hefur falið eft­ir­lit með og sjá um að skrán­ing og með­ferð sjúkra­skrár­upp­lýs­inga sé í sam­ræmi við ákvæði laga. Land­læknir hefur eft­ir­lit með því að ákvæði lag­anna séu virt. Per­sónu­vernd hefur eft­ir­lit með öryggi og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í sjúkra­skrám í sam­ræmi við ákvæði laga um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga.“

Hvernig horfir það við land­lækni ef ótal óvið­kom­andi aðilar hafa farið inn í sjúkra­skrá ein­stak­lings; aðilar sem hafa ekki ann­ast við­kom­andi ein­stak­ling á nokkurn hátt eða unnið á deildum sem hann hefur fengið umönnun á? 

„Það sem hér er lýst er með öllu óheim­ilt að gera. Embætti land­læknis tekur öll slík mál sem því ber­ast alvar­lega; rann­sakar þau og beitir við­ur­lögum í sam­ræmi við lög nr. 41/2007 eftir því sem við á um alvar­leika brota.“

Greinina í heild sinni, sem inni­heldur fleiri svör land­læknis við fyr­ir­spurnum, má finna í nýjasta tíma­riti Mannlífs með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi