Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Snorri hjá Livio mælir með að óuppgerð mál fari til landlæknis: „Reynum að greiða úr málum allra“

Snorri hjá Livio mælir með að óuppgerð mál fari til landlæknis: „Reynum að greiða úr málum allra“
Livio

Snorri Ein­ars­son, yfir­læknir á Livio Reykja­vík, segir að stofn­unin reyni ávallt að greiða úr málum allra sem til þeirra leita. Áhersla sé lögð á að reyna eftir fremsta megni að hjálpa fólki við að skilja atburði og ferli ef það upp­lifi vafa. Hann segir það koma fyrir að útkljá þurfi mál hjá land­lækni en að sem betur fer leys­ist slíkt yfir­leitt far­sæl­lega.

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Snorra vegna frá­sagnar hjón­anna Gunnars og Hlédísar. Snorri er fram­kvæmda­stjóri, yfir­læknir og einn af stofn­endum Livio Reykja­vík. Livio Reykja­vík opn­aði árið 2016, en starf­semin var áður rekin á sömu kenni­tölu undir nafn­inu Art Medica. Það var hjá Art Medica sem hjónin fóru í sína tækni­frjóvg­un­ar­með­ferð. Snorri kom ekki að stofnun Art Medica heldur hóf hann þar störf löngu síðar, árið 2013.

Snorri er fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­læknir sem hefur starfað á sviði ófrjó­sem­is­lækn­inga síðan árið 2006.

Vegna laga og reglna sem gilda um trúnað milli lækna og sjúk­linga gat Snorri ekki stað­fest fundi eða önnur sam­skipti við þau Gunnar og Hlédísi. Hann féllst hins vegar á að ræða almenn mál út frá skáld­uðum dæmum blaða­manns.

Eðlileg krafa fólks

Þegar Snorri er spurður út í til­felli þar sem par vill meina að þeim hafi ekki verið sagt satt og rétt frá fjölda bæði eggja og fóst­ur­vísa þegar þau voru í með­ferð á sínum tíma, og mein­ingar þeirra um horfna fóst­ur­vísa, und­ir­strikar Snorri að honum sé ekki heim­ilt að ræða mál­efni ein­stakra sjúk­linga.

„Það sem ég get aftur á móti sagt er að auð­vitað reynum við að greiða úr málum allra þeirra sem til okkar leita og útskýra mál sem er kannski ekk­ert endi­lega auð­velt að skilja sem leik­maður. Auðvitað reynum við að verða við því. Það er bara, eins og ég sagði áðan, eðli­legur réttur og eðli­leg krafa fólks að skilja í hverju með­ferð þeirra hefur falist og hvernig hlutir hafa farið. Við reynum það bara af fremsta megni, að koma til móts við fólk og útskýra. Nú ef það næst ekki lend­ing eða fólk telur að þeirra mál séu óupp­gerð og óleyst, þá bendum við fólki á að leita þeirra leiða sem eru til staðar í kerf­inu til þess að fá úr þeim skorið. Eins og til dæmis að fara með form­legar kvart­anir til land­lækn­is­emb­ætt­is­ins. Það auð­vitað ger­ist að það þurfi að útkljá mál þar og sem betur fer þá leys­ist það nú oft­ast far­sæl­lega. Fólk skilur hvað fram hefur farið og hvernig hlutir hafa orðið eins og þeir hafa orðið.“

Snorri segir að það sé ekki alltaf auð­velt fyrir almenna leik­menn að skilja gögn úr sjúkra­skrám er varða tækni­frjóvg­un­ar­með­ferðir. „Ef þú yrðir í þeirri stöðu að þessi grunur vakn­aði þá myndi ég nátt­úru­lega bara mæla með því að þú leit­aðir þér skýr­inga og sam­tals hjá þeim sem veitti þér þjón­ust­una, til þess að reyna að skilja hvað fram hefur farið. Ég get alveg sagt það fullum fetum að slíkum umleit­unum myndum við taka vel og reyna að setj­ast niður með fólki og skýra hvað fram hefur farið.“

Viðtalið við Snorra má í heild sinni lesa í nýjasta tíma­riti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi