Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Daði Einarsson Bafta-verðlaunahafi: „Vinnustaðurinn minn er Disney Studios“

Daði Einarsson Bafta-verðlaunahafi: „Vinnustaðurinn minn er Disney Studios“

„Þessi verð­laun eru fyrst og fremst gríð­ar­lega mikið hrós og við­ur­kenn­ing fyrir okkur. Witcher-ser­ían er stút­full af skemmti­legum og stórum áskor­unum fyrir „visual effects“ stjórn­anda þannig að þetta var mjög gef­andi og krefj­andi bæði krea­tíft og tækni­lega. Að vinna alla þessa vinnu í Covid gerði hlut­ina mun flókn­ari og eitt af því sem stendur upp úr er hvað „visual effects“-brans­inn var ótrú­lega fljótur að aðlag­ast þessum aðstæðum. Lang­flestir sem unnu að fram­kvæmd mynd­brelln­ana gerðu það að heiman en ekki á skrif­stofu.

Fyrir mig og fyr­ir­tækin sem unnu að Witcher er þetta mik­ill gæða­stimp­ill og gefur til kynna að okkur sé treystandi fyrir að hanna, skipu­leggja og fram­kvæma mynd­brellur í hæsta gæða­flokki,“ segir Daði Ein­ars­son sem fyrr í vor hlaut BAFTA-verð­laun fyr­ir tækni­brell­ur í Net­flix-þátt­un­um The Witcher.

Skrímsli, ísbirnir, Harry Potter…

Hvað ein­kennir verkin hans almennt svo sem hvað varðar stíl og áherslur?

„Ég hef komið víða við hvað stíl varðar. Fantasíur, skrímsli, myndir sem ger­ast úti í geimi, á sjó og hæsta fjalli jarðar þannig að það er erfitt að benda á ákveð­inn stíl. Ég nálg­ast verkin alltaf á svip­aðan máta. Ég set góða bíó­mynda­tón­list í græjurnar, les hand­ritið sem ég er að fara að vinna að og ímynda mér mynd­ræna útgáfu af því sem ég les. Sé það fyrir mér eins og full­komna full­kláraða bíó­mynd. Svo vinn ég bara aftur á bak þaðan. Set á mig tækni­hatt­inn og brýt niður hvaða aðferða­fræði þarf til að taka upp atriðin og svo hvað þarf að gera til að skapa mynd­brell­urnar. Oftast geri ég grófa útgáfu af atrið­unum í tölvu til að kynna og þróa hug­mynd­ina með leik­stjóra og fram­leið­endum. Þetta er ótrú­lega skemmti­legt og gef­andi ferli og sér­stak­lega gaman að bera saman grunn­hug­mynd­ina við loka­at­riðin þegar myndin er full­kláruð.“

Golden Compass vann Óskarinn það árið fyrir mynd­brellur.

Þegar Daði er spurður hvað standi upp úr á ferl­inum segir hann að sér hafi fund­ist vera mjög gaman að vinna við The Golden Compass þar sem hann stýrði öllum atrið­unum með talandi ísbjörn­unum sem eru stór hluti af sög­unni. „Ég las bók­ina áður en ég fékk boðið um að taka verk­efnið að mér og í sög­unni finnum við aðal­ís­björn­inn þar sem hann er í óreglu og hangir í húsa­sundi bak við knæpu sem heitir „Ein­ars­son’s Bar“. Mér fannst það merki um að ég ætti að segja já við þessu. Stuttu seinna var ég kom­inn á settið fyrir framan bar­inn með mínu nafni og brosti út í annað. Golden Compass vann Óskarinn það árið fyrir mynd­brellur.“

Harry Potter 2 var mikil upp­lifun snemma á ferl­inum. „Ótrúlega stór og mikil fram­leiðsla með lygi­lega fal­legum og stórum leik­myndum. Þetta var hálf­part­inn eins og að vera í þessum heimi á meðan á tökum stóð. Það var gaman að ráfa þar um og fá að taka þátt í að skapa svona stórt augna­blik í kvik­mynda­sög­unni.

Gravity var magnað verk­efni og ofboðs­lega áhuga­vert að vinna náið með Alfonso Cuarón leik­stjóra. Við vorum til­tölu­lega lít­ill hópur sem ég stýrði en við hönn­uðum, teikn­uðum og klipptum alla mynd­ina með honum til þess að und­ir­búa tök­urnar á and­litum leik­ar­anna sem síðar yrði skeytt inn í tölvu­teiknuð atriði út frá okkar vinnu.

Eitt sinn vorum við í þyrlu að fljúga í kringum Everest rétt við tind­inn.

Everest er lík­lega erf­ið­asta verk­efni sem ég hef gert og kannski ýktasta dæmi þess að ímynda sér full­komna útgáfu af því sem maður les og vinna svo til baka þaðan. Það var ofboðs­lega erfitt að klára þá mynd og að klífa það fræga fjall fannst mér ágætis mynd­lík­ing. Það voru líka gríð­ar­leg for­rétt­indi að taka þátt í tök­unum. Eitt sinn vorum við í þyrlu að fljúga í kringum Everest rétt við tind­inn. Við flugum marga hringi um fjallið eins hátt og þyrlan komst að mynda efni til að styðja við mynd­brell­urnar okkar, lentum í grunn­búðum, skoð­uðum okkur um og ég mynd­aði allt sem ég gat. Það var ótrú­leg upp­lifun.“

Disney Studios

Daði er núna í Los Angeles að vinna fyrir Marvel að stýra mynd­brellum í sjón­varps­s­eríu sem kemur út seint í sumar. „Minn vinnu­staður er Disney Studios í Burbank þar sem allar gömlu teikni­mynd­irnar voru gerðar og hér bók­staf­lega drýpur sagan af öllu.

Þetta eru níu þættir og langstærsta streym­iss­ería sem Marvel hefur fram­leitt. Það er mjög áhuga­vert og skemmti­legt að kynn­ast þessum fram­leið­endum og fá að rýna í þennan stóra og djúpa heim. Við erum á reglu­legum „zoom-fundum“ þar sem við horfum á nýj­ustu útgáfur af þáttum með klipp­urum, fram­leið­endum og yfir­mann­eskjum Marvel. Svo er farið yfir allar nótur og punkta og málin rædd í fram­hald­inu. Það er magnað að fá að hlera og taka þátt í þeim umræðum og drekka í sig þessa miklu þekk­ingu og reynslu.“

Súrsætt en fallegt ferli

Hvers vegna fór Daði upp­haf­lega í þessa grein. Þennan heim. Og hvað heillar hann við hann?

„Ég hálf­part­inn ólst upp við þetta í London þar sem móðir mín var teikni­mynda­gerða­kona. Hún vann við að teikna atriði í myndum á borð við Who Framed Roger Rabbit, Space Jam og Hig­hlander og ég horfði oft yfir öxl­ina á henni eða fékk að hanga í stúd­íóum þar sem hún var að vinna. Þótt ég hafi ekki bein­línis planað að vinna við þetta þá hafði ég ofboðs­lega mik­inn áhuga á kvik­myndum, að teikna og að skapa. Svo rétt um tví­tugt bauðst mér tæki­færi að vinna með vinum mínum sem voru að stofna tölvu­fyr­ir­tækið OZ. Þar fékk ég aðgang að sömu tölvum og hug­bún­aði sem var not­aður til að gera fyrstu bylgju af tölvu­teikn­uðum mynd­brellum sem við horfðum gap­andi á í bíói: The Abyss, Term­inator 2 og ekki síst Jurassic Park.

Reynir á sköp­un­ar­gáfu, tækni­þekk­ingu, mann­leg sam­skipti, þor og úthald.

Það sem heillar mig við þetta starf er sköp­unin, að túlka sögur frá blaði og skapa það sem ég ímynda mér þegar ég les. Að kynn­ast fólki og fara í ferða­lag saman og að búa til eitt­hvað skemmti­legt og fal­legt. Hvert verk­efni er ákveðið ferða­lag með upp­hafi, miðju og endir. Oft kynn­ist maður fólki í byrjun og skilur við það við verk­lok vit­andi að þau verða nátengd manni um ókomna tíð. Þetta er svona hálf­part­inn eins og byrja í nýjum mennta­skóla, kynn­ast öllum og útskrif­ast svo og kveðja alla. Súrsætt en fal­legt ferli.

Svo er þetta mjög krefj­andi starf sem reynir á sköp­un­ar­gáfu, tækni­þekk­ingu, mann­leg sam­skipti, þor og úthald. Þetta er langt frá því að vera auð­velt en það er lík­lega eitt af því sem gerir það svo gef­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi