Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Stefna stjórnvalda í útlendingamálum er höfnunarstefna, svo lengi sem þau komast upp með það“

„Stefna stjórnvalda í útlendingamálum er höfnunarstefna, svo lengi sem þau komast upp með það“
Björn Leví Gunn­ars­son alþing­is­maður

Þing­mað­ur­inn skel­eggi, Píratinn Björn Leví Gunn­ars­son segir í grein sinni, sem ber yfir­skrift­ina Hel­vít­is­vist að „það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem velur að vera hlut­laust á tímum sið­ferð­is­legra átaka. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir konur sem hjálpa ekki öðrum konum. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem mis­notar börn. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem stelur sann­leik­anum. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og veg­tyllur. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir rauð­víns­glös sem passa ekki í upp­þvotta­vél. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir mann­eskj­una sem fann upp á því að skrifa ógeðs­lega langt intro fyrir allar upp­skriftir online. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem snýr út úr orðum ann­arra.“

Björn bætir því við að „fólk hefur gripið til þessa orða­til­tækis við ýmis tæki­færi. Sum alvar­legri en önnur. Nýjasta dæmi þess að það sé gripið til þessa orða­til­tækis teng­ist því að það á að senda til baka vel rúm­lega 200 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd.

Hvers vegna er til­efni til þess að grípa til þess­ara orða við það til­efni? Á milli áranna 1956 – 2019 hafði Ísland tekið á móti 778 manns sem kvótaflótta­fólki. Í töl­fræði Útlend­inga­stofn­unnar kemur fram að auki hafa 1745 manns hafa fengið alþjóð­lega vernd frá árinu 2015. Það sem af er árinu 2022 hafa 1050 manns bæst við þá tölu, aðal­lega vegna stríðs­ins í Úkraínu. Þetta eru vel tæp­lega 4000 flótta­menn sem hafa fengið aðsetur á Íslandi frá árinu 1956. Í mesta lagi 1% af þjóð­inni, og rúmur fjórð­ungur af því bara út af stríð­inu í Úkraínu.“

Hann segir einnig að „stefna stjórn­valda í útlend­inga­málum er höfn­un­ar­stefna, svo lengi sem þau kom­ast upp með það. Svo mikið er aug­ljóst miðað við töl­urnar hér að ofan. Stríð í Evrópu, þá er ekk­ert mál að taka við fullt af flótta­fólki. Stríð utan Evrópu, senda til baka.“

Björn er klár á því að „þessi stefna verður enn aug­ljós­ari þegar umsóknir um alþjóð­lega vernd frá Venes­ú­ela eru skoð­aðar, en árið 2019 voru sam­tals 157 umsóknir þaðan og engri var hafnað. Á sama tíma var öllum 22 umsókn­unum frá Úkraínu hafnað. Þá er ágætt að minn­ast þess að þegar úkra­ínska fót­boltaliðið kom hingað til Ísland árið 2017 til þess að keppa þá var Úkraína skráð á lista yfir örugg lönd – fyrir utan héröðin Donetsk, Luhansk og Krím. Á árunum 2015 – 2021 sóttu 87 frá Úkraínu um alþjóð­lega vernd á Íslandi, 12 fengu vernd.“

Hann ljær máls á því í lok greinar sinnar að „hér hafa ráða­menn beðið okkur um að skoða töl­urnar. Já, þær tala sínu máli. Ef litið er til áranna 2015 – 2021 þá tók Grikk­land við rúm­lega 100 þús­und flótta­mönnum á meðan Ísland tók á móti tæp­lega 2000. Grikkir eru um 30falt fleiri en Íslend­ingar sem þýðir að þeir hafa tekið á móti um helm­ingi fleiri flótta­mönnum en við. Það lítur því út fyrir að það sé við­eig­andi til­efni til þess að grípa til vel val­inna orða gagn­vart stjórn­völdum í þessum mála­flokki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi