Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elísabet er með nýrnabilun á lokastigi: „Ég er búin að vera reið út í almættið og læknastéttina“

Elísabet er með nýrnabilun á lokastigi: „Ég er búin að vera reið út í almættið og læknastéttina“

Skáldið Elísa­bet Jök­uls­dótt­ir er með nýrna­bil­un á loka­stigi eft­ir röð læknam­istaka; rík­ið hef­ur við­ur­kennt mis­tök­ og þá stað­reynd að ein­kenni og beiðn­ir Elísa­bet­ar um að­stoð voru huns­að­ar hvað eftir annað.

Þetta kemur fram á Stund­inni.

Lög­fræð­ingur henn­ar seg­ir að í mál­inu komi skýrt fram for­dóm­ar gegn geð­sjúk­um; eitt­hvað sem tals­mað­ur Geð­hjálp­ar seg­ir of al­genga.

„Ég er núna komin á loka­stig nýrna­bil­unar. Sem þýðir að nýrun starfa á 15% afköstum,“ segir Elísabet, sem bíður nú þess að kom­ast í lífs­nauð­syn­lega líf­færa­ígræðslu.

Enn sem komið er hefur hent­ugur gjafi ekki fund­ist og á meðan hefur ástand Elísa­betar versnað mjög; hún er komin á biðlista eftir nýra í Svíþjóð; bið sem reiknað er með að taki ekki meira en eitt og hálft ár.

Ástæður nýrna­bil­unar geta verið margar: Háþrýst­ingur, syk­ur­sýki og sjúk­dómar; líka afleið­ingar af nýrna­steinum og lyfja­neyslu, og undir þann flokk fellur nýrna­bilun Elísa­betar.

Lyfið lith­íum sem Elísabet fékk fyrst ávísað árið 1999, er talin ástæða veik­inda hennar, en Elísabet hafði á þeim tíma veikst nokkrum sinnum alvar­lega af geð­hvarfa­sýki; farið í man­íur sem urðu til þess að ógna heilsu hennar svo að í nokkur skipti hafði verið gripið til þess að nauð­ung­ar­vista hana.

Algeng auka­verkun af langvar­andi lith­íum­með­ferð er skert nýrna­starf­semi:

„Ég er á lith­íum í hátt í tutt­ugu ár, og þá eru bara nýrun ónýt,“ segir Elísabet sem kveðst aldrei hafa fengið neina fræðslu um hættu af langvar­andi notkun lyfs­ins:

„Það hafði eng­inn læknir sagt mér frá því. Þannig að þegar ég varð sex­tug, og sá fyrir mér að fara að hafa það voða gott og eiga næstu 30 ár í friði og vera amma, fara að slaka á, þá kemur þetta.“

Nýrna­bilun eins og sú sem Elísabet glímir nú við ger­ist ekki á einni nóttu, en ástandið varð enn verra þar sem ekki var brugð­ist við skýrum merkjum um hvað væri að ger­ast; jafn­vel þó að Elísabet leit­aði ítrekað eftir aðstoð lækna og sýndi þekkt ein­kenni nýrna­bil­unar. Þetta er mat tveggja sér­fræð­inga sem fengnir voru til að meta ástæður og afleið­ingar í mál­inu:

„Fyrir liggur að Elísabet er komin með loka­stig lang­vinns nýrna­sjúk­dóms. Búast má við að hefja þurfi skil­un­ar­með­ferð við loka­stigsnýrna­bilun innan 1-2 ára nema unnt verði að koma við ígræðslu nýra áður. Í til­viki Elísa­betar er án nokk­urs vafa um að ræða heilsutjón af völdum lyfja­með­ferðar sem rekja má til þess að ekki var staðið rétt að eft­ir­liti með með­ferð­inni. Elísabet tók lith­íum í 18 ár sam­fleytt þar til með­ferðin var loks stöðvuð vegna nýrna­sjúk­dóms­ins.“

„Þetta eru sem sagt lækna­mis­tök,“ segir Elísabet og bætir við:

„Og ég var alltaf á leið­inni að hringja í land­lækni til að kæra þetta. En svo er það ekki fyrr en fimm árum seinna að ég kynn­ist lög­fræð­ingi sem er bara til í að gera þetta. Kona sem er til í að skoða málið fyrir mig og þá fæst þetta við­ur­kennt,“ segir Elísabet.

For­svars­menn Land­spít­al­ans, Sjúkra­trygg­inga og loks rík­is­lög­maður geng­ust við því að brotið hefði verið á Elísa­betu; hún orðið fyrir tjóni.

Elísabet seg­ist þó ekki bera kala til neins vegna þessa máls:

„Ég vissi aldrei hvað var að mér og ég var búin að fara til inn­kirtla­sér­fræð­ings, gigt­ar­læknis, og heim­il­is­læknis og fleiri og fleiri lækna, til þess að vita af hverju ég var alltaf að rjúka svona upp, af hverju ég var alltaf þyrst, af hverju ég drakk þrjá lítra af ávaxta­safa á nóttu. Maður verður svo þyrstur út af nýr­unum.“

Elísabet tekur orðnum hlut með æðru­leysi; bíður þess að kom­ast sem fyrst í nýrna­skipti:

„Ég er nátt­úr­lega búin að vera reið út í almættið og reið út í lækna­stétt­ina. Ég fékk svona ótta um að deyja. Síðan næ ég sam­bandi við þennan nýrna­lækni og hann gaf mér aftur trú á lífið og lækna­stétt­ina. Það er alltaf voða gaman að fara til hans og hann tekur mig alltaf klukkan þrjú á föstu­dögum af því þá er ég síð­asti kúnn­inn sko. Honum finnst ég svo skemmti­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi