Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísold æfði undir handleiðslu heimsmeistara: „Mamma ég er ekki að fara að lifa fram að jólum“

Ísold æfði undir handleiðslu heimsmeistara: „Mamma ég er ekki að fara að lifa fram að jólum“
Ísold Fönn Vil­hjálms­dóttir, Skauta­kona eftir aðgerð. Mynd. Skjáskot/Vísir

Ísold er á nokk­urs vafa ein efni­leg­asta skauta­kona lands­ins. Hún hefur unnið fjöl­marga titla bæði hér heima og erlendis. Allt hófst þetta á tjörn­inni heima á Jökuldal. Ísold ræddi um feril sinn í þætt­inum Sögur af landi, sem Óðinn Svan Óðinsson, blaða­maður og Halla Ólafs­dóttir, dag­skrár­maður tóku saman.

„Lífið á Möðrudal fyrir lít­inn krakka var eins og para­dís á jörðu. Þú hefur allt sem þú vilt. Mamma lét mig fá ein­hverja skauta þegar ég var þriggja ára og ég fór bara út á tjörn heima í sveit­inni og var að skauta. Ég var bara úti allan dag­inn að snúa mér í kringum ein­hvern girð­inga­staur og fann bara hvernig þetta var það sem gerði mig glað­asta,“ segir hún. 

Skauta­konan er 15 ára frá Möðrudal á Fjöllum og hefur reynt ýmis­legt þrátt fyrir ungan aldur. Búferla­flutn­inga til Brat­islava, erfið meiðsli, mikil veik­indi og stóra aðgerð í Þýska­landi.

Þær mæðgur gengu lækna á milli, bæði hér á landi og í Sviss án þess að fá grein­ingu og and­legri og lík­am­legri heilsu Ísoldar hrak­aði hratt.

„Þetta tók alveg á og ég var far­inn að gera mér grein fyrir því. Í ágúst þá segi ég við mömmu, mamma ég er ekki að fara að lifa fram að jólum ef ég fæ ekki hjálp. Það er eng­inn að fatta hvað þetta er og ég get ekki lifað svona.“

Elti þjálfarann sinn til Slóvakíu

Þegar Ísold var sex ára ákvað hún í sam­ráði við for­eldra sína að fara í grunn­skóla á Akureyri og byrja að æfa hjá Skauta­fé­lagi Akur­eyrar. Þar kynnt­ist hún þjálf­ar­anum sínum, Ivetu Reit­ma­yer­ova, sem Ísold segir að hafi kveikt áhuga hennar á því að ná langt í íþrótt­inni.

„Maður var alltaf að læra eitt­hvað nýtt og bæta sig. Það var eitt­hvað nýtt á hverri æfingu og maður var alltaf spenntur að fara á æfingu. Þá förum við líka að fara út í æfinga­búðir og keppn­is­ferða­lög og það var alveg geggjað.“

Þegar Iveta flutti aftur heim til Slóvakíu eftir nokk­urra ára dvöl á Íslandi ákváðu Ísold og mamma hennar að elta hana þangað.

Fluttu til Sviss og æfði undir handleiðslu heimsmeistara

Eftir dvöl­ina í Slóvakíu flytja þær mæðgur til Champéry í Sviss þar sem hún æfir undir stjórn Stéphane Lambiel, sem er tvö­faldur heims­meist­ari á list­skautum og silf­ur­verð­launa­hafi á Ólymp­íu­leikum. Þar æfði hún með mörgum af bestu skaut­urum heims og naut sín vel. „Mér fannst bara eins og við þyrftum nýtt start og ég fann það bara þegar við komum þarna að þetta væri einmitt stað­ur­inn fyrir mig.“

Veikindi og fann fyrir fordómum af hálfu lækna

Það var á þeim tíma sem meiðsli og veik­indi gera vart við sig. Ísold hafði lengi fundið fyrir óþæg­indum og orku­leysi en hún átti erfitt með að nær­ast. „Ég var sem sagt með vascular compression syndrome, sem er í raun á íslensku, æða­kremju sjúk­dómur. Ég fór að vera með svima, átti erfitt með að anda, mér alltaf illt í nýr­unum og þá var bara mjög erfitt að æfa.“

Veik­indin tóku mikið á Ísold og leiddu að lokum til þess að hún þurfti að taka sér frí frá íþrótt­inni. „ Hjartað var að slá 25 slög á mín­útu og mér var bara bjargað þarna á spít­al­anum þó þau vissu ekk­ert hvað var að mér.“

Mæðgurnar fluttu heim í von um að fá grein­ingu á veik­ind­unum og til að ná bata. Það reynd­ist þrautin þyngri.

„Það héldu allir að þetta væri bara átröskun eða eitt­hvað and­legt. Það vær næstum því sagt við mig, skautar, 15 ára og getur ekki nærst, það er pott­þétt eitt­hvað and­legt.“

Fundu hjálp í Þýskalandi – flókin aðgerð og endurhæfing

For­eldrar Ísoldar fundu loks­ins lækni í Þýska­landi sem taldi sig geta hjálpað henni.

„26. októ­ber fer ég í skoðun og lækn­ir­inn sér allar þreng­ing­arnar og strax þá fannst mér eins og mér hefði verið bjargað þegar hann segir að hann sjái hvað er að mér. Ég missti mig bara í gleði og tárum.“

Daginn eftir fer Ísold í mjög langa og flókna aðgerð og við tók end­ur­hæf­ingu í hálft ár og hefur allt gengið sam­kvæmt áætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi