Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Draugagangur á Hvanneyri: „Vildi meina að einhverjir fleiri hefðu flutt hingað inn með okkur“

Draugagangur á Hvanneyri: „Vildi meina að einhverjir fleiri hefðu flutt hingað inn með okkur“

Nemendur og kenn­arar við Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands á Hvann­eyri hafa af og til orðið varir við und­ar­lega atburði á svæð­inu síð­ustu ár, eða eftir að flutt var inn í ný húsa­kynni á svæð­inu árin 2003 og 2004. Truflun var þónokkur fljót­lega eftir að húsin voru tekin í notkun og að end­ingu var talið að eitt­hvað hlyti að vera að raf­magn­inu þar. Aðili var feng­inn á svæðið til þess að mæla raf­seg­ul­svið en ekk­ert reynd­ist ama að raf­magn­inu né öðru tækni­legu.

„Drauga­gangur hefur ítrekað raskað næt­urró íbúa á nýjum nem­endagörðum á Hvann­eyri sam­kvæmt heim­ildum Skessu­horns. Reim­leik­anna hefur orðið vart í tveimur nýjustu húsum nem­enda­garð­anna, Skólaflöt 4 og 8 en annað húsið var tekið í notkun í janúar á síðasta ári en hitt um síðustu áramót.“

Svo segir í frétt Skessu­horns­ins frá apríl 2004. Í frétt­inni segir enn­fremur að íbúar hafi orðið fyrir ónæði allt frá því að fyrst var flutt inn í húsin. Á þessum tíma hafði ónæðið þó ágerst tölu­vert.

Rafmagnið talið sökudólgurinn

Fyrst var talið að eitt­hvað hlyti að ama að raf­magn­inu í hús­unum. Það var vegna þess að eitt af því sem ábú­endur höfðu tekið eftir var að ljósa­perur ent­ust afar illa í þeim. Björg Harð­ar­dóttir, sem átti sæti í stjórn nem­enda­garða Lands­bún­að­ar­há­skól­ans, sagði að í ljósi þess hefðu get­gátur um raf­magnið verið nær­tæk­asta skýr­ingin.

„Við leit­uðum til áhuga­manns um rannsóknir á raf­seg­ul­sviði sem býr hér í nágrenn­inu og hann kom og mældi þetta fyrir okkur. Það kom hins vegar í ljós að húsið virt­ist vera í full­komnu lagi en hins vegar vildi hann meina að ein­hverjir fleiri hefðu flutt hingað inn með okkur,“ sagði Björk í sam­tali við Skessu­horn vegna máls­ins á sínum tíma.

Því var haldið fram að við nán­ari eft­ir­grennslan hefði það komið í ljós að tutt­ugu ósýni­legir íbúar, eða draugar, hefðu tekið sér ból­festu í nem­enda­görð­unum.

Allt getur orðið drauga­legt ef vilj­inn er fyrir hendi.

Getgátur um fylgjur

Það sem vakti þó sér­staka athygli í þessu máli var að húsin sem hinna ósýni­legu gesta varð vart í voru ný. Yfir­leitt er drauga­gangur tal­inn tengj­ast gömlum húsum, sem hafi sögu um fyrri íbúa eða þess háttar.

Í sam­tali við Skessu­horn sagði Björk kenn­ingar uppi um að trufl­unin tengd­ist í raun ekki hús­unum sjálfum, heldur væri þarna um að ræða fylgjur sem tengd­ust fólkinu sem hafð­ist þar við.

„Við vonum samt að þetta fari að róast svo fólk fái almennt svefn­frið. Ég þarf að vísu ekki að kvarta því ég hef fengið að vera í friði sjálf, en mark­miðið er að hér geti öllum liðið vel, bæði þessa heims og ann­ars. Við erum að vinna í þessu máli og það verður vænt­an­lega kannað til þrautar hvort sá grunur reyn­ist réttur að hér sé eitt­hvað á sveimi úr öðrum heimi,“ sagði Björk.

Hún tók það fram að það væri vissu­lega góður andi, eða öllu heldur andar, í hús­unum. Þó virt­ust einnig hafa sótt þangað aðrir ívið óró­legri aðilar sem væru á sveimi. Því væri haldið fram vegna þess að margir íbú­anna í hús­unum hefðu sofið illa, meðal ann­ars vegna umgangs sem ekki reynd­ist unnt að finna eðli­legar skýr­ingar á.

Skóla-Jóna

Blaða­maður Mannlífs fór á stúf­ana í dag og spurði Elsu Rut Jóhönnu­dóttur, konu sem stund­aði nám við skól­ann á síð­ustu árum, hvort hún kann­að­ist við drauga­gang eða annað dul­ar­fullt á svæð­inu. Hún seg­ist sjálf hafa orðið vör við ein­hvers konar nær­veru.

„Það sem ég man eftir í fljótu bragði er Skóla-Jóna, sem býr uppi á þriðju hæð­inni held ég, í gamla skól­anum. Hún gerir ein­hvern óskunda af sér þar. Ég man ekki af hverju hún varð eftir þarna í skól­anum en hún er alla­vega búin að hrella nem­endur þarna í ára­tugi,“ segir hún.

Elsa heldur áfram: „Ég hef verið ein þarna úti í gamla skóla og það er ekk­ert gaman. Ég var meira að segja búin að stein­gleyma Skóla-Jónu þangað til ég fór að kvarta yfir því við félaga minn að það væri svo óþægi­legt að vera ein þarna. Þá sagði hann: Þú ert aldrei ein í gamla skóla. Skóla-Jóna er alltaf með þér. Já, alveg rétt. Takk fyrir það.“

Heim­ildir: Skessu­horn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi