Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helga um neysluna: „Þá tekur bara við einhver brútal neysla þar sem er ekki klukkutíma stopp“

Helga um neysluna: „Þá tekur bara við einhver brútal neysla þar sem er ekki klukkutíma stopp“

„Síðan þegar ég dett í það, í síð­asta skiptið, þá gjör­sam­lega missti ég stjórn­ina aftur.“ Þetta segir Helga Lilja Ósk­ars­dóttir í við­tali við Stundina um bar­daga sinn við neysl­una sem hún flúði í til að deyfa van­líðan sína en einnig til að finna félags­skap. Eftir að hafa orðið edrú þegar hún gekk með barnið sitt missti hún fót­anna aftur og sökk djúpt.

Helga Lilja Ósk­ars­dótt­ir flúði í neyslu til að deyfa van­líð­an sína en einnig til að finna fé­lags­skap fólks sem var utan­gátta eins og hún. Það var ekki fyrr en hún átt­aði sig á því hversu al­gjör­lega neysl­an tók af henni stjórn­ina að hún varð hrædd og fann hjá sér eig­in vilja til að verða edrú. Áð­ur hafði hún hins veg­ar misst stjórn­ina al­gjör­lega og far­ið á bólakaf.

Glímdi við alkahólisma og þunglyndi

Helga ræðir um æsk­una sína og seg­ist hafa alist upp við erf­iðar aðstæður í æsku. For­eldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára gömul en faðir hennar glímdi við alka­hól­isma og þung­lyndi meðal ann­ars. Eftir að faðir hennar kynnt­ist annarri konu og hóf að búa með henni hafi hins vegar sigið á ógæfu­hlið­ina. Sú kona hafi líka glímt við fíkn eins og faðir Helgu og tölu­vert mikil neysla hafi því verið inni á heim­il­inu.

Þrátt fyrir veik­indi föður hennar voru þau feðgin náin segir Helga.

„Það er alveg gaman stundum að vera í kringum fullt fólk þegar maður er krakki. Það var oft alveg næs en oft líka slæmir tímar. Þetta var samt ekki hið týpíska dópista­líf­erni, þau voru rosa­lega góð en veik“

Var send í fóstur

Helga segir að það besta sem fyrir hana hafi komið hafi verið að vera send í fóstur, árin þar hafi verið frá­bær og henni liðið vel. Enn hafi þó komið til árekstra í skóla enda and­inn í sveita­skól­anum á Klepp­járns­reykjum verið annar en hún átti að venj­ast og hún ekki passað inn enda hafi hún ekki haft áhuga á „sam­kvæm­is­dansi eða hestum“ eins og hún orðar það.

En þó henni hafi liðið betur í Borg­ar­firð­inum segir Helga að van­líðan hennar hafi verið svo djúp­stæð að hún hafi verið til­búin að leita hvaða leiða sem var til að láta sér líða betur. Hún hafi fyrst drukkið áfengi í kringum tólf ára aldur og síðan prófað að neyta kanna­bis­efna um þrettán, fjórtán ára ald­ur­inn. Í lok 10. bekkjar, eftir að hún kom heim til Reykja­víkur úr fóstri í Borg­ar­firð­inum, hafi hún farið að reykja kanna­bis dag­lega.

Brútal neysla

„Þá tekur bara við ein­hver brú­tal neysla þar sem er ekki klukku­tíma stopp“

Faðir Helgu féll frá þegar hún var sextán ára. Þrátt fyrir hans bresti segir hún að þau feðgin hafi verið náin og and­lát hans hafi verið henni áfall.

„Þá varð mér bara alveg sama um allt og þá tekur bara við ein­hver brú­tal neysla þar sem er ekki klukku­tíma stopp. Það var bara stopp þegar maður varð að sofa. Ég held að það lengsta sem ég hafi verið vak­andi hafi verið allt upp í tíu daga sko. Það er erfitt en þegar þú ert kom­inn á þriðja dag get­urðu sigrað heim­inn. Þú ert beyglaður og rugl­aður en þú hefur ekki vit­neskj­una um að þú sért beyglaður og rugl­aður.“

Varð edrú barnshafandi

Helga fiktaði við ýmis efni en man það óglöggt. „Ég man hins vegar eftir því þegar ég not­aði e-pillu fyrst, þá byrj­aði bolt­inn að rúlla.“ Neyslan var bæði til að deyfa til­finn­ingar en líka leit að félags­skap. Félags­skap ann­arra sem ekki pössuðu inn, rétt eins og Helga upp­lifði með sjálfa sig.

Helga var í neyslu um nokkra hríð, allt þar til hún varð ólétt af sínu fyrsta barni, þá sautján ára gömul. Þegar hún upp­götv­aði að hún væri með barni fór hún í með­ferð og var edrú á meðan að á með­göng­unni stóð og í nokkra stund eftir að barnið kom í heim­inn. Ein­hverjum mán­uðum eftir að Helga átti barnið sitt fór hún að fara á djam­mið um helgar og þá voru jafn­vel allar helg­arnar undir. Hún bjó heima hjá móður sinni sem sinnti barn­inu. Nokkru síðar fór hún inn í AA-sam­tökin og var þá edrú í um tíu mán­uði.

Ég dett algjörlega inn í þetta – það er enginn millivegur

„Síðan þegar ég dett í það, í síð­asta skiptið, þá gjör­sam­lega missti ég stjórn­ina aftur. Það var samt bara svona tveir mán­uðir,“ segir Helga. Hún átt­aði sig strax á því að hún væri að fara mjög djúpt í neyslu. „Ég dett algjör­lega inn í þetta, það er eng­inn milli­vegur. Eftir fyrsta kvöldið hringi ég í mömmu mína og segi: Ég er dottin í það, ég þarf ein­hvern veg­inn að koma mér inn í með­ferð og þú verður að vera með barnið á meðan því ég ætla ekki að vera í kringum hann í þessu ástandi.“

Helga komst aftur inn í með­ferð um tveimur mán­uðum síðar. Eftir að hafa kom­ist í með­ferð á þessum tíma, árið 2012, hefur Helga haldið sig á beinu braut­inni. Hún segir að ástæðan fyrir því að hún hafi kom­ist úr neyslu hafa verið að þá hafi hana virki­lega langað það sjálfa, að verða edrú. „Ástæðan var sú að það hræddi mig hvað þetta tekur stjórn­ina algjör­lega.“

HÉR er hægt að hlusta og lesa við­talið við Helgu í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi