Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kennarar með fíknisjúkdóm fá ekki laun í veikindaleyfi: „Ætlum að greiða þér, bara í þetta skipti“

Kennarar með fíknisjúkdóm fá ekki laun í veikindaleyfi: „Ætlum að greiða þér, bara í þetta skipti“
Samsett mynd: Val­gerður og Sigríður

„Mér dettur ekki í hug að ég eigi ekki rétt á að fá laun af því að ég fór í með­ferð,“ segir  Sigríður Guð­jóns­dóttir, kenn­ari, í við­tali við Mannlíf. Sigríður fór í með­ferð fyrr á árinu vegna fíkni­sjúk­dóms og var því frá störfum í veik­inda­leyfi. Þegar hún sneri til baka úr með­ferð­inni var kölluð á fund með skóla­stjórn­endum. Þar var henni til­kynnt að hún hefði þurft að skrifa undir samn­ing, áður en hún fór í með­ferð­ina. Á samn­ingnum kom fram að skól­inn væri ekki skyld­ugur til þess að greiða laun, fari fólk í með­ferð í veik­inda­leyfi.

„Ég skrifa undir og fer svo að hugsa eftir á hvað þetta er fárán­legt og nið­ur­lægj­andi,“ segir Sigríður sem var brugðið við þau skila­boð sem fylgdu er hún skrif­aði undir.
„Hún (skóla­stjór­inn) sagði; Við höfum samt ákveðið að greiða þér þetta, þú átt ekki rétt á þessu, en við ætlum að greiða þér þetta, bara í þetta eina skipti.“
Sigríður upp­lifði skömm í kjöl­farið og leit­aði svara hjá Kenn­ara­sam­band­inu. Svörin sem bár­ust komu henni mikið á óvart en í bréfi frá Kenn­ara­sam­band­inu segir:

„Það sjón­ar­mið að fjar­vistir starfs­manns vegna með­ferðar við áfeng­is­sýki sé ekki greiðslu­skyldar byggir á dóma­fram­kvæmd en ekki lögum. Í dómi Hæsta­réttar frá 1984, bls. 439 var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fjar­vistir starfs­manns vegna áfeng­is­með­ferðar væru ekki greiðslu­skyldar.

Vísað er til þessa dóms í sam­komu­lag­inu sem Sigríður skrif­aði undir og byggja því þær reglur sem Ísa­fjarð­ar­bær hefur sett sér á þeim sjón­ar­miðum sem fram koma í dómnum.

Þannig að þetta er hvergi að finna í lögum, en dóm­stólar hafa dæmt þetta með þessum hætti og þetta hefur ekk­ert breyst í öll þessi ár.“

Sigríður segir með frá­sögn sinni ekki vera að gagn­rýna skól­ann þar sem hún starfar beint, heldur að þetta sé raunin fyrir kenn­ara.
„Árið 2022 – Er þetta bara ekki rétt. Þarna er ég að taka ábyrgð, ég er heið­ar­leg. Þetta verður til þess að við förum ekki í með­ferð, það hefur eng­inn efni á að fara í burtu í sex vikur,“ segir hún og bætir við að fleiri kenn­arar hafi sömu sögu að segja, ein þeirra hafi til dæmis ekki fengið greitt.
„Mig langar ekki að fela þetta, þetta  er sjúk­dómur og hann hefur heiti.“

Mannlíf leit­aði í kjöl­farið svara hjá SÁÁ og ræddi við Valgerði Rún­ars­dóttur, yfir­lækni hjá SÁÁ.
„Vinnu­veit­andi ákveður ekki hvað er sjúk­dómur og hvað ekki,“ sagði Val­gerður, í sam­tali við Mannlíf í dag en fíkni­sjúk­dómur er skil­greindur sem lang­vinnur heila­sjúk­dómur. Þá sagði Val­gerður mik­il­vægt að skoða málið, allir ættu rétt á veik­inda­leyfi.

Blaða­maður Mannlífs ræddi við Hann­esínu Scheving, sem hefur sömu sögu að segja. Hún fór í með­ferð fyrir fimm árum síðan og fékk greidd, líkt og Sigríður. Þrátt fyrir það segir hún þetta vera prinsipp mál.
„Það sem að við erum reiðar yfir er að þetta skuli ekki vera í kjara­samn­ingum. Við erum með ágætis samn­inga upp á veik­indi og annað en þetta er ekki eins við­ur­kennt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi