Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í góðum málum/Í slæmum málum

Í góðum málum/Í slæmum málum
Rík­is­stjórn Íslands er í slæmum málum. Mynd: forseti.is

Í góðum málum

Sýklar eru í blússandi góðum málum um þessar mundir eftir að veirur og bakt­er­íur hafa legið í dvala í tvö ár. Það er að segja fyrir utan einu stóru veiruna sem kennd er við kór­ónu. Und­an­farnar vikur og mán­uði hafa mýmargir Íslend­ingar, börn sem gam­al­menni og allir þar á milli, legið í flensu og kvef­pest svo dögum skiptir. Er talað um far­aldur í fjöl­miðlum. Dæmi eru um flensu­ein­kenni sem end­ast í nokkrar vikur, sem eru góðar fréttir. Þá á ég við að það séu góðar fréttir fyrir sýklana sem valda veik­ind­unum, ekki fólkið sem fyrir þeim verður. Nú þegar lands­menn gleðj­ast yfir því að Covid-far­ald­ur­inn sé nán­ast horf­inn halda sýkl­arnir partí í lík­ama land­ans sem liggur í valnum á meðan. Nú eða þrjóskast áfram eins og sönnum vík­ingum sæmir og dreifa þannig partí­inu til allra í kring. Og nú ber­ast fréttir um nýjan og bráð­huggu­legan far­aldur, eða hitt þó heldur. Þá er ég að tala um apakatta­bóluna (e. Mon­keypox) sem rang­lega hefur verið kölluð apa­bólan. Hún hefur sem betur fer ekki borist til lands­ins enn þá, en miðað við fjölda ferða­manna sem vænt­an­legir eru til lands­ins á næst­unni má nær örugg­lega full­yrða að um tíma­spurs­mál sé að ræða. Og þá gleðj­ast sýkl­arnir aldeilis á meðan við hin leggj­umst í gam­al­kunnar veik­indastell­ingar og ein­angrum okkur fyrir framan Netflix. 

Í slæmum málum

Rík­is­stjórn Íslands er í slæmum málum, ég held að það leyn­ist engum. Und­an­farnar vikur og mán­uði hefur hvert rekaldið komið í netið hjá þjóð­ar­skút­unni, ef svo má að orði kom­ast. Ef ég sleppi að slá um mig með kjána­legum mynd­lík­ingum get ég sagt að hvert hneyksl­un­ar­málið á eftir öðru hefur komið upp hjá rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur und­an­farin miss­eri. Fyrst var það brot Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á sótt­varn­ar­lögum, er hann mætti í yfir­fulla veislu í Ásmund­ar­sal rétt fyrir síð­ustu jól. Þá voru það ásak­anir um ras­isma hjá Sigurði Inga Jóhanns­syni inn­við­a­ráð­herra. Þá var hann staddur í veislu Fram­sókn­ar­flokks­ins til heið­urs Bænda­sam­tök­unum þar sem hann átti að taka þátt í þeim sér­kenni­lega gjörn­ingi að halda á Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna, fyrir mynda­töku. Eins og frægt er orðið við­ur­kenndi hann að hafa spurt hvort hann ætti að halda á „þess­ari svörtu“. Næsta fíaskóið var svo salan á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Þar kom í ljós að góð­kunn­ingjar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sumir hverjir „hruns­menn“, fengu að kaupa hlut á nið­ur­greiddu verði. Meira að segja keypti pabbi Bjarna Ben hlut, svo ófor­skömmuð var salan. Næst var það svo sú frétt að senda ætti 200 hæl­is­leit­endur út á Guð og gadd­inn (eða Satan og hit­ann) í Grikk­landi, nú eða beint til Hvíta-Rúss­lands eða Sómalíu. Vakti það athygli er Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra mætti í beina útsend­ingu í frétta­tíma RÚV þar sem hann furð­aði sig á fyr­ir­ætlun Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra. Nýjasta málið (er þetta er skrifað) er opin­bert rifr­ildi Bjarna Ben og Lilju Alfreðs­dóttur menn­ing­ar­mála­ráð­herra vegna frum­varps hennar um end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar. Jafnvel þó að ráð­herr­unum hafi hingað til tek­ist að kom­ast upp með allt sem upp er talið hér að framan, hafa vin­sældir rík­is­stjórn­ar­innar dalað hægt en örugg­lega und­an­farin miss­eri og hlýtur það að valda Katrínu og Bjarna áhyggjum, þótt þau segi annað í fjöl­miðlum.

Sjá má blaðið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi