Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásta Arnbjörg, oddviti K-lista í Eyjafjarðarsveit: Hann sagði „sjáumst á morgun“ en það varð aldrei

Ásta Arnbjörg, oddviti K-lista í Eyjafjarðarsveit: Hann sagði „sjáumst á morgun“ en það varð aldrei
Ásta Arnbjörg Pét­urs­dóttir

„Það að ég ákvað að taka þátt í sveit­ar­stjórn­ar­málum er ein­lægur áhugi á sam­fé­lag­inu og að ég hef þá trú að sem allra flestir eigi að taka þátt í ein­hvers lags sam­fé­lags­legri vinnu. Það er svo mik­ill lær­dómur í því að taka þátt í félags­málum og því að skilja hvernig hlut­irnir virka. Að vinna að því að koma góðum málum áfram og sjá mik­il­væg sam­fé­lags­leg verk­efni verða að veru­leika er mjög gef­andi. Sam­fé­lagið er mann­anna verk og við ráðum því hvernig sam­fé­lagið okkar er,“ segir Ásta Arnbjörg Pét­urs­dóttir, odd­viti K-list­ans í Eyja­fjarð­ar­sveit.

Hvers vegna K-list­inn? „Það var hópur af frá­bæru fólki sem fór af stað á sínum tíma og stofn­aði K-list­ann og þegar ég var beðin um að leiða list­ann þá þurfti ég lítið að hugsa mig um því áhug­inn á póli­tík er mik­ill hjá mér og þegar unnið er með frá­bæru fólki, sem kemur úr ólíkum áttum og með marg­vís­leg sjón­ar­mið, þá verður til kraftur og hug­myndir sem gaman er að vinna að og gera gott sam­fé­lag enn betra ef þær ná fram að ganga.“

Við verðum að hlusta á vilja íbú­anna.

Hvaða máli skiptir Ástu að vera komin í sveit­ar­stjórn?  „Það skiptir mig miklu máli að vera í sveit­ar­stjórn því ég hef skoð­anir á mál­efnum sveit­ar­fé­lags­ins og vil vinna að þeim en styrk­leikar mínir liggja líka í því að ég kann vel að hlusta á fólk og það er eitt af því sem stundum vantar í póli­tík. Ég lít svo á að þeir sem taka að sér setu í sveit­ar­stjórn séu að sinna ein­hvers konar þjón­ustu­starfi við íbú­ana; við verðum að hlusta á vilja íbú­anna og leggja metnað okkar í að vinna að málum með þeim eins og nokkur kostur er. Ég verð að segja að mér leið­ist sú leið sem er svo oft farin sem er að þeir sem eru í póli­tík kunni allt og viti allt og æði áfram með lokuð eyrun. Ég held að við getum gert svo margt á svo miklu betri hátt.

Í Eyja­fjarð­ar­sveit er mikil upp­bygg­ing og mörg mik­il­væg verk­efni fram undan og verður við­bygg­ing við skól­ann eitt af stóru verk­efnum næstu ára og einnig er mik­il­vægt að hita­veita komi víðar í sveit­ar­fé­lagið. Þá vil ég líka að öll þjón­usta við íbú­ana sé til fyr­ir­myndar og í takt við tíð­ar­and­ann í þeim málum þarf sveit­ar­fé­lagið að gera enn betur.“

Langoftast skemmtilegt ferðalag

Ásta ólst upp á Hrana­stöðum í Eyja­fjarð­ar­sveit næst yngst fjög­urra systra. „Þetta var þriggja kyn­slóða heim­ili því föð­ur­amma mín bjó hjá okkur sem ég kunni vel að meta. Æskuárin voru góð; að alast upp í sveit og fá að brasa með fólk­inu átti vel við mig. Ég á systur sem er tæp­lega ári eldri en ég og höfum við alltaf verið nánar svo aldrei vant­aði félags­skap­inn og brös­uðum við mikið saman. Mér þótti alltaf gaman í skóla og naut þess að hitta vin­konur mínar þar og þótti mér frí­mín­útur klár­lega skemmti­leg­astar enda gekk mér erf­ið­lega í lestri til að byrja með en það kom allt saman og hef ég notið þess að læra síðan; ég vil alltaf vera að bæta við þekk­ingu mína. Það að hafa þurft að hafa mikið fyrir lestr­inum var mér aldrei svo þung­bært eins og ég heyri marga lýsa því og tel ég það vera vegna þess hversu styðj­andi for­eldrar mínir voru. Þau voru svo dug­leg að lesa fyrir mig og létu mig aldrei finna að þetta væri eitt­hvað vanda­mál heldur ein­ungis verk­efni sem þyrfti að finna lausn á og það tókst og á þann hátt efldist þraut­seigjan sem er að ég tel einn að mínum bestu styrk­leikum í dag.

Líf okkar hefur langoft­ast verið skemmti­legt ferða­lag.

Ég varð ung ást­fangin og trú­lof­aði mig þegar ég var aðeins sautján ára gömul, en hef aldrei séð eftir því. Við erum hjón í dag og höfum fengið að þroskast saman og líf okkar hefur langoft­ast verið skemmti­legt ferða­lag, en erf­ið­leik­ana höfum við þá tek­ist á saman og út úr því kemur alltaf ein­hver lær­dómur. Við eigum þrjú upp­komin börn sem öll eru að mennta sig og koma undir sig fót­unum. Það er eitt af þessu fal­lega í líf­inu að sjá börnin sín vaxa og dafna.“

Fjölskyldur eru alls konar

Ásta er bóndi og fjöl­skyldu­fræð­ingur

„Ég hef gaman af námi enda menntað mig í ýmsu. Við hjónin fórum saman í Bænda­skól­ann á Hvann­eyri og ákváðum svo 2001 að kaupa Hrana­staði af for­eldrum mínum og höfum því verið við búskap í rúm 20 ár. Það að vera bóndi er skemmti­legt starf. Við erum með um 120 kýr í tveggja róbóta fjósi og svo höfum við síðan 2018 verið að byggja upp hænsnabú. Við höfum alltaf lagt áherslu á að byggja upp og stækka og þróa búskap­inn. Til að vera í búskap þarf að vera brenn­andi áhugi því dýrin þurfa alltaf sitt sama hvaða dagur er og því er bind­ingin mikil og nauð­syn­legt að hafa gott starfs­fólk til að geta litið upp. Ég hef valið mér að vera að hluta til í búskapnum og sinnt fjöl­skyldu­ráð­gjöf að hluta eftir að ég lauk námi í fjöl­skyldu­fræðum frá Háskóla Íslands árið 2013. Það er krefj­andi en jafn­framt mjög gef­andi að sinna fjöl­skyldu­ráð­gjöf. Fjöl­skyldur eru alls konar en eiga það allar sam­eig­in­legt að stundum koma upp mál sem þeim þykir erfitt að finna lausn á og þá er gott að fá fag­að­ila til að horfa á málið með þeim og sjá það úr ólíkum áttum og aðstoða fjöl­skyld­una við að prófa nýjar leiðir. Það er styrk­leiki fjöl­skyldu­fræð­innar að horfa á málin á heild­rænan hátt en ekki út frá ein­stak­lingnum.“

Hvernig er líf bónd­ans þegar bústörfum og stjórn­málum sleppir?

„Lífið er meira en vinna og snúa mín áhuga­mál að úti­vist og hreyf­ingu. Við hjónin göngum mikið og síð­ustu ár höfum við farið í lengir og styttri göngu­ferðir í góðum félags­skap. Ég hef líka mjög gaman af ferða­lögum og reyni að kom­ast á fram­andi slóðir reglu­lega til að sjá eitt­hvað nýtt og upp­lifa aðra menn­ingu en við þekkjum.“

Það er erfitt að missa fólkið sitt og hefur mikil áhrif á mann en um leið lærir maður að meta lífið og að það er alls ekki sjálf­sagt.

Hver er erf­ið­asta lífs­reynsla sem Ásta hefur gengið í gegnum?

„Erf­ið­asta lífs­reynsla sem ég hef lent í var þegar ungur frændi minn dó í slysi aðeins 12 ára gam­all. Hann hafði verið að brasa í sveit­inni hjá okkur og var á heim­leið á hjóli þegar slysið varð. Við kvödd­umst hress og kát og hann sagði „sjá­umst á morgun“ en það varð aldrei. Einnig misstum við pabba alltof ungan frá okkur en hann var aðeins 54 ára þegar hann lést. Það er erfitt að missa fólkið sitt og hefur mikil áhrif á mann en um leið lærir maður að meta lífið og að það er alls ekki sjálf­sagt. Það kennir manni að verja tíma sínum í eitt­hvað gef­andi og taka ekki þátt í ein­hverjum leið­indum sem maður þarf bara alls ekk­ert að stíga inn í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi