Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alma: „Mestu persónunjósnir sem fram hafa farið á Íslandi – „saurlifnaður“ íslenskra kvenna“

Alma: „Mestu persónunjósnir sem fram hafa farið á Íslandi – „saurlifnaður“ íslenskra kvenna“
Alma Ómars­dóttir, frétta­maður. Mynd/skjá­skot. Vísir

„Stúlka sem ekki vildi láta skoða á sér kyn­færin var neydd til þess. Og svo var hún dæmd af saka­dómi. Í stað­inn fyrir að stoppa her­menn­ina við að ónáða þessa stúlku þá var hún tekin úr umferð. Tekin úr skól­anum, send á Klepp­járns­reyki en síðan þegar heim­il­inu er lokað gat hún ekki farið aftur í skól­ann því búið var að reka hana og stimpla. Þannig hún endar á göt­unni í Reykja­vík.“

Alma Ómars­dóttir, fjöl­miðla­fræð­ingur og frétta­maður gerði heim­ilda­mynd­ina Stúlk­urnar að Klepp­járns­reykjum. Í hlað­varps­þætt­inum Karl­mennskan með Þor­steini V. Ein­ars­syni fer Alma yfir kvik­mynd­ina og hvers­konar aðfarir áttu sér stað, hvernig njósnað var um íslenskar stúlkur, þær sendar í fang­elsi eða upp­töku­heim­ili, smán­aðar, útskúf­aðar og lok­aðar í glugga­lausum rýmum svo dögum skipti. Allt með sam­þykki yfir­valda og stutt af almenn­ingi og fjöl­miðlum.

Þessi tími hefur verið kall­aður „ástandsárin“ í sögu­bók­unum okkar þegar Bretar her­námu Ísland í seinni heims­styrj­öld­inni. Það sem kemur fram í þætt­inum er að íslensk stjórn­völd ofsóttu ungar konur, sviptu þær sjálf­ræði með því að hækka sjálf­ræð­is­aldur úr 16 ár í 20 ár. Þetta var gert til þess að hægt væri að dæma þær í fang­elsi fyrir að eiga í sam­skiptum við her­menn. Land­læknir, for­sæt­is­ráð­herra, Alþingi, lög­reglan, fjöl­miðlar og almenn­ingur tóku þátt í einum mestu per­sónunjósnum sem fram hafa farið á Íslandi til þess að ná tökum á þeim „saur­lifn­aði“ að íslenskar konur sýndu breskum her­mönnum áhuga. Tímabil sem aldrei hefur verið gert upp af íslenskum stjórn­völdum.

Konur sviptar sjálfræði

Alma ræðir um að konur hafi verið að öðl­ast aukið frelsi og farið út á atvinnu­mark­að­inn.

„Valda­hlut­föllin breyt­ast í sam­fé­lag­inu. Allt í einu hafa konur jafna mögu­leika á að þéna jafn mikið og karl­menn því það var komin atvinna fyrir þær. Það hafði aldrei gerst áður á Íslandi. Síðan eru þær með miklu meira úrval af manns­efni. Mörgum (körlum) fannst sér örugg­lega ógnað og sam­fé­lagið bregst harka­lega við.“

Á sama tíma og konur virt­ust vera að öðl­ast aukið frelsi eru þær sviptar sjálf­ræði. „Vegna þess að það þurfti að bregð­ast við því að ungu kon­urnar voru að hitta erlenda her­menn og sjálf­ræð­is­aldur er færður úr 16 í 18 ár (tíma­bundið í 20 ár). Konur eru sviptar sjálf­ræði svo hægt sé að banna þeim að hitta her­menn.“

Konur voru þvingaðar og niðurlægðar

Alma segir enn­fremur að það hafi verið sárt að fyrsta lög­reglu­konan á Íslandi hafi verið sett í það að njósna um þessar konur.

„Það er rosa­lega sorg­legt að fyrsta lög­reglu­konan á Íslandi hafi fengið þetta hlut­verk og gengið svona fram. Það er frekar sárt að hugsa til þess.“

Konur voru þving­aðar og nið­ur­lægðar, en Alma segir að lög­reglu­konan hafi verið sett í:

„gríð­ar­legar per­sónunjósnir. Það var talað um mestu per­sónunjósnir sem fram hafa farið á Íslandi.Þær sem neit­uðu því að hafa átt í sam­skiptum við her­menn voru sendar í lækn­is­skoðun til þess að athuga hvort að þær væru hreinar meyjar. Þetta er nátt­úru­lega algjör­lega bilað.“

Að lokum vekur Alma athygli á því að:

„Eftir Breiða­vík­ur­málið, var ráð­ist í það að skoða upp­töku­heim­ili sem voru starf­rækt á Íslandi. Klepp­járns­reykir, var hins vegar ekki skoðað. Það á líka að segja rétt frá þessu í sögu­bók­unum. Ég var að skoða hvernig hefur verið fjallað um þetta í grunn­skóla­kennslu­bókum og þá er einmitt bara skautað á þessu. Þetta er sett upp í skemmti­legan bún­ing. Við erum að tala um hund­ruðir kvenna sem var njósnað um, ásóttar af lög­reglu­yf­ir­völdum eða hrein­lega teknar úr umferð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi