Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir Helga Hrafn hafa bannað sér að bjóða sig fram: „Fékk nóg af hræsninni sem gegnsýrir Pírata“

Segir Helga Hrafn hafa bannað sér að bjóða sig fram: „Fékk nóg af hræsninni sem gegnsýrir Pírata“
Helgi Hrafn Gunn­ars­son.

Fyrrum þing­maður Pírata, frétta­mað­ur­inn og grínist­inn Gunnar Hrafn Jónsson henti sprengju á Facebook-vegg­inn sinn í dag. Upp úr þeirri sprengju spruttu upp mikið rifr­ildi meðal Pírata.

Gunnar Hrafn Jónsson

Í færsl­unni heldur Gunnar Hrafn því fram að þegar Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrrum þing­maður Pírata, hafi tekið við sem leið­togi flokks­ins fyrir þar­síð­ustu kosn­ingar, hafi verið hans fyrsta verk að reka Gunnar Hrafn úr flokknum. Það hafi hann gert eftir að hafa boðað Gunnar á fund fyrir utan sjoppu í Vest­ur­bænum. Til­kynnti Helgi honum að hann mætti ekki bjóða sig fram aftur í nafni flokks­ins, því það myndi skaða flokk­inn. Sagðist Helgi hafa fyrir því heim­ildir að taka ætti Gunnar Hrafn af lífi í fjöl­miðlum vegna dræmrar mæt­ingar á nefnd­ar­fundi og þing­flokk­fundi. Segir Gunnar í færsl­unni að hann hafi skoðað gögnin sjálfur og séð að hann hafi verið í veik­inda­leyfi eða utan þing­flokks í flestum ef ekki öllum til­fellum. Segir hann Helga ekki hafa tekið mark á því og sagt að blaða­maður nokkur myndi brátt rekja málið innan skamms. Heldur Gunnar því fram í færsl­unni að blaða­mað­ur­inn sé Björn Leví Gunn­ars­son, mót­fram­bjóð­andi hans í próf­kjör­inu. Hér er færslan í heild sinni:

„Að gefnu til­efni.

Fyrir þar­síð­ustu kosn­ingar steig

Helgi Hrafn Gunn­ars­son

fram til að leiða flokk Pírata. Hans fyrsta verk sem eig­in­legur leið­togi flokks­ins var að boða mig á fund fyrir utan sjoppu í Vest­ur­bænum þar sem hann til­kynnti mér að ég mætti ekki bjóða mig fram aftur, það myndi skaða flokk­inn.Ástæðan væri sú að honum hefði borist eftir ein­hverjum boð­leiðum fregnir af því að það ætti að taka mig af lífi í fjöl­miðlum fyrir lélega mæt­ingu á nefnd­ar­fundi og þing­flokks­fundi. Þegar ég skoð­aði sjálfur gögnin kom í ljós að ég var í veik­inda­leyfi eða utan þing­flokks í flestum eða öllum til­vikum. Helgi tók ekk­ert mark á því og end­ur­tók hót­anir sínar um að þetta yrði allt rakið af blaða­manni innan skamms ef ég hætti ekki við fram­boðið.Fljót­lega kom í ljós að „blaða­mað­ur­inn“ sem var að safna þessum gögnum var Björn Leví, mót­fram­bjóð­andi minn í próf­kjör­inu. Hann birti afar skakka mynd af stöðu mála í blogg­færslu á heima­síðu sinni sem var þá vænt­an­lega „fjöl­mið­ill­inn“ sem Helgi vís­aði til.Vart þarf að taka fram hags­muna­á­rekst­ur­inn sem hér á sér stað. Mér er hótað með fjöl­miðlaum­fjöllun sem reynd­ist vera ímyndun mót­fram­bjóð­anda. Hringt var í fjölda stuðn­ings­manna minna til að minna á að ég væri geð­veikur og mér ekki treystandi.Sér­stak­lega finnst mér gróf­lega vegið að fólki sem glímir við and­leg veik­indi í þessu máli þar sem það var alltaf und­ir­liggj­andi að mér væri ekki treyst vegna sjúkra­sögu minnar. Helgi Hrafn full­yrti það fyrir utan sjopp­una í Vest­ur­bænum en sver það nú af sér.

Það er skammar­legt og mun kosta Pírata minnst eitt atkvæði í næstu kosn­ingum.“

Björn Leví neitar

Björn Leví svarar færsl­unni og seg­ist ekki vita hversu oft hann hafi mætt í nefnd fyrir Gunnar á þessum tíma.

„Ég veit alveg hversu oft ég mætti í nefnd fyrir þig á þessum tíma af því að þú mættir ekki. Lengi vel vissum við ekki einu sinni að þú værir ekki að mæta af því að þú lést okkur ekk­ert vita af því. Það var eftir að þú komst inn aftur eftir veik­inda­leyfi.Ég hef ekki hug­mynd hvort ég sé þessi blaða­maður eða ekki. Býst við ekki, því mæt­ing þing­manna í nefndir er aðgengi­leg öllum í fund­ar­gerðum nefnd­anna. Ég er bara með for­rit sem les það upp sjálf­krafa.

Eins og ég segi. Þá eru þessar upp­lýs­ingar aðgengi­legar öllum í fund­ar­gerðum. Þær upp­lýs­ingar tala bara fyrir sig sjálfar. Ég var búinn að birta þessar upp­lýs­ingar reglu­lega frá því á kjör­tíma­bil­inu 2013 – 2016 eftir að Morg­un­blaðið not­aði gríð­ar­lega und­ar­lega aðferð til þess að sýna mæt­ingu þing­manna í nefndir.“

Björn Leví Gunn­ars­son Pírati

Þessu svarar Gunnar Hrafn: „Björn Leví Gunn­ars­son. Það var eng­inn „blaða­maður“ að fylgj­ast með þessu, bara þú, og þú vissir vel að ég stóð utan þing­flokks Pírata lengi vel eftir að þið hentuð Ástu á haug­ana, fyrir utan veik­inda­leyfið. Ég hlífði ykkur við því að ganga í Sam­fylk­ing­una og taka af ykkur þing­mann en það var tæpt – MJÖG tæpt. Auðvitað mætti ég ekki á þing­flokks­fundi á þessum tíma, ég hefði betur farið í annan flokk og það stóð tæpt. Afar tæpt.“

Björn Leví svar­aði: „Gunnar Hrafn Jónsson – ég hef ekki hug­mynd um það. Fjöl­miðlar höfðu áður fjallað um mæt­ingu þing­manna í nefndir. Ég er bara að segja frá því sem ég hef gert hvað það varðar og er aðgengi­legt öllum í fund­ar­gerðum. Ég hef ekki hug­mynd um hvort Helgi var að vísa í mig eða eitt­hvað annað. Ef hann not­aði „blaða­maður“ þá var hann örugg­lega ekki að tala um mig hins vegar, svo mikið held ég að sé aug­ljóst. Það gæti vel verið að ein­hver blaða­maður hefði notað sam­an­tekt­ina sem ég gerði með for­rit­inu mínu sem ég hafði verið að nota í nokkur ár … en Morg­un­blaðið td. not­aði aðra taln­ing­ar­að­ferð (taldi bara mæt­ingar aðal­manna í aðal­nefndir. Ekki mæt­ingu ann­ars­staðar á sama tíma sem vara­menn td).“

Og þá svar­aði Gunnar: „Töl­fræðin um mig var röng. Það er mun­ur­inn. Ég var ýmist í veik­inda­leyfi eða utan þing­flokks. Og það var bara til­viljun að þessar röngu upp­lýs­ingar gáfu þér und­ir­tökin í próf­kjör­inu, fyrir utan sím­tölin sem ég heyrði af en ætla ekki að rekja hér. Rosalega get­urðu lagst lágt.“

Hætti í Pírötum eftir að Ásta var sett af

Rök­ræð­urnar ganga svo áfram á víxl en Gunnar Hrafn seg­ist hafa látið þing­flokk­inn vita að hann væri utan þing­flokks eftir að Ásta Guðrún Helga­dóttir var sett af sem þing­flokks­for­maður, þó það hafi ekki verið gert opin­ber­lega. Fleiri Píratar koma svo inn í rifr­ildið og verja ýmist Helga Hrafn og Björn Leví. Athygli vekur að Helgi Hrafn tjáir sig ekki undir færsl­unni.

Ásta Guðrún Helga­dóttir

Í sam­tali við Mannlíf sagð­ist Gunnar Hrafn vera búinn að fá nóg af hræsn­inni í Pírötum í dag.

„Ég hef þagað yfir þessu lengi en fékk bara nóg af hræsn­inni sem gegn­sýrir Pírata í dag, mér var bolað út vegna per­sónu­legra hags­muna og for­dómum gegn and­legum veik­indum og það er ekki flokkur sem ég get stutt lengur.“

„Hélt við værum vinir“

Mannlíf heyrði í Helga Hrafni og spurði hann út í málið.

„Ég skamm­ast mín ekki neitt fyrir nokkurn skap­aðan hlut. Ég hef hvorki neitt að fela né skamm­ast mín fyrir í þessu máli. Og ef að sama staða kæmi upp myndi ég geri nákvæm­lega það sama aftur og ef ég verð ein­hvern­tíman í sömu stöðu og Gunnar var í á þessum tíma, þá vona ég að ein­hver góður vinur minn komi til mín og tali við mig um stöð­una. Þá myndi ég þakka þeim vini, eftir á frekar en að kasta í hann útúr­snún­ingum og rang­túlk­unum og skömmum. Þetta er pirr­andi því ég hélt við værum í sama lið­inu, ég hélt að við værum vinir. Það er bara leið­in­legt að fá svona fram­komu frá ein­hverjum sem maður hélt að kæmi ekki svona fram við mann,“ sagði Helgi Hrafn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi