Algjört kraftaverk varð í Kaupmannahöfn í gær er þriggja og hálfs árs gamall danskur strákur féll út um glugga á þriðju hæð í fjölbýlishúsi en hann slapp með minniháttar meiðsl.
Lögreglan í Kaupmannahöfn sagði frá málinu í gærkvöld og segir drenginn hafa fallið 12 metra niður á grasflöt. Atvikið átti sér stað í Pragtstjernevegi í Kaupmannahöfn.
Segir í tilkynningu lögreglunnar að mikil náð sé að ekki fór verr og að strákurinn hafi aðeins hlotið minniháttar meiðsl eftir þetta hátt fall. Til öryggis var hann þó fluttur til skoðunar á sjúkrahúsi.
Rúv greindi frá þessu.





















Athugasemdir