Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Maður dæmdur í 16 ára fangelsi: „Það á enginn að þurfa að deyja á þennan hátt“

Maður dæmdur í 16 ára fangelsi: „Það á enginn að þurfa að deyja á þennan hátt“

Maður lést eftir mikla höf­uð­á­verka 7. októ­ber 2007. Hinn ákærði, neit­aði sök og bar við minnis­leysi sökum drykkju og lyfja­neyslu. Dómarar töldu sök ákærða óvé­fengj­an­lega og var hann í kjöl­farið dæmdur í 16 ára fang­elsi af Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 22. maí 2008.

Ákærði neitaði sök

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi karl­mann á fer­tugs­aldri í 16 ára fang­elsi fyrir að ráða nágranna sínum bana í íbúð hans að Hring­braut í fyrra. Bana­maður hins látna var dæmdur til að greiða fjöl­skyldu hans hálfa milljón króna í skaða­bætur auk sak­ar­kostn­aðar og málsvarn­ar­launa að fjár­hæð sam­tals 2,3 millj­ónir króna.

Ákærði neit­aði sök en að mati dóms­ins þótti sannað að hann hefði ráðið honum bana. Í aðdrag­anda verkn­að­ar­ins höfðu menn­irnir tveir komið inn í blokk­ina um hádeg­is­bil hinn 7. októ­ber 2007. Sannað þótti að ákærði hefði þar slegið til hins látna a.m.k. þremur þungum höggum í höf­uðið með slökkvi­tæki. Hvert og eitt högg­anna hefði getað valdið dauða og átti ákærði að vita það að mati dóms­ins. Ekki var upp­lýst hvers vegna hann sló hann. Taldi dóm­ur­inn skýr­inga helst að leita í ann­ar­legu ástandi ákærða, þótt því yrði samt ekki slegið föstu. Átti ákærði sér engar máls­bætur að mati dóms­ins.

Blóð fannst úr hinum látna á ákærða

Þegar lög­reglu­menn komu á vett­vang eftir verkn­að­inn tók ákærði á móti þeim og sagð­ist hafa komið að mann­inum liggj­andi í blóði sínu. Sagðist hann ekki vita hver hefði veitt honum áverk­ana en hafði grun­semdir um annan íbúa í hús­inu. Talaði lög­reglan við þann aðila auk fleiri íbúa í hús­inu en ekk­ert var grun­sam­legt við þá. Á fingri ákærða var hins vegar nýtt sár og duft á hand­ar­baki og töldu lög­reglu­menn það hafa komið úr slökkvi­tæk­inu sem talið var lík­legt árás­ar­vopn. Þá fannst blóð úr hinum látna á ákærða. Var hann hand­tek­inn og settur í gæslu­varð­hald.

Lá í rúminu með kodda fyrir andlitinu

Þegar myndir úr eft­ir­lits­mynda­vélum við Nóa­túns­verslun á Hring­braut voru skoð­aðar sáust ákærði og hinn látni á þeim í versl­un­ar­ferð og mátti ráða af mynd­unum að eitt­hvert ósætti hefði verið með mönn­unum. Myndir í eft­ir­lits­vélum við Hring­braut 121 sýndu menn­ina þá koma inn í blokk­ina og þar sást ákærði vera að slá til hönd­unum.

Kann­að­ist hann þó ekki við neitt ósætti milli sín og hins látna. Sagðist hann hafa haldið áfram að drekka með honum eftir að inn var komið þangað til hinn látni sofn­aði. Sagðist ákærði þá hafa farið heim til sín en komið aftur nokkru síðar til að athuga hvort nágranni sinn væri vakn­aður svo þeir gætu haldið áfram að drekka. Hefði hann þá komið að honum liggj­andi í rúmi sínu með kodda fyrir and­liti og hefði hann frussað á sig blóði. Upplýst var að ákærði hafði drukkið nokkra daga fyrir verkn­að­inn og tekið mikið af lyfjum. Sagðist hann því ekki muna vel eftir atvikum.

Ákærði á að baki saka­feril frá árinu 1998 vegna auðg­un­ar­brota og hefur hann hlotið sex refsi­dóma. Málið dæmdu hér­aðs­dóm­ar­arnir Guðjón St. Mart­eins­son, Helgi I. Jónsson og Jón Finn­björns­son. Verjandi var Hilmar Ingi­mund­ar­son hrl. og sækj­andi Ragn­heiður Harð­ar­dóttir vara­rík­is­sak­sókn­ari.

Háþróuð tækni notuð við vettvangsrannsókn

Stöð 2 sýndi í þætt­inum Ummerki vett­vangs­rann­sókn í tengslum við morðið. Beitt var háþró­aðri tækni við skoðun blóð­ferla á vett­vangi en blóð­blettir þóttu segja aðra sögu en hinn grun­aði í mál­inu. Þannig sýndu lögun blóð­bletta að þeir höfðu komið til við högg en ákærði hélt því fram að félagi hans hefði hóstað blóði. Þá greindust örlitlir blóð­blettir á úlpu ákærða sem varð til að varpa á hann sterkum grun en blóðið var úr hinum látna. Upptökur úr eft­ir­lits­mynda­vél við verslun í nágrenn­inu sýndu enn fremur að ákærði og hinn látni höfðu rif­ist rétt fyrir morðið.

Hafði breytt heimilinu í greni

Ákærði hringdi í lög­reglu sunnu­dag­inn 7. októ­ber og greindi frá því að hinn látni lægi með­vit­und­ar­laus og blóð­ugur á heim­ili sínu að Hring­braut. Ákærði var nágranni hans í fjöl­býl­is­hús­inu. Er lög­regla kom á vett­vang var hann lát­inn en koddi var yfir höfði hans. Hann hafði fengið þung á höfuð og duft­leifar úr slökkvi­tæki voru framan í honum. Slökkvi­tækið var á gólf­inu og blóð úr hinum látna var á því.

„Íbúðin sem hinn látni bjó í er í eigu Félags­bú­staða Reykja­vík­ur­borgar. Eftir ítrek­aðar kvart­anir nágranna kröfð­ust Félags­bú­staðir þess að hinn látni yrði bor­inn út. Málið fór fyrir dóm­stóla og kvað hér­aðs­dóm­ari upp úr að hinn látni skyldi áfram vera í íbúð­inni vegna þess að hann hefði aðeins fengið eina form­lega við­vörun. Samkvæmt leigu­samn­ingi þurfti hins vegar tvær.

Georg Viðar Björns­son, hús­vörður í hús­inu á Hring­braut, sagði í við­tali í sept­em­ber­lok 2007 að hinn látni hefði breytt heim­ili sínu í nokk­urs konar greni.

„Það er hálfur bær­inn á eftir honum og fólk kemur til hans bæði dag og nótt. Ef hann er ekki heima fer það bara inn um svala­dyrnar,“ sagði Georg Viðar. Nágrönnum stóð stuggur af hegðun hins látna, en hann og gestir hans skildu eftir sig sprautur og nálar í hús­inu.“

Reyndi að koma sök á nágranna

Þegar ákærði var spurður út í áverk­ana á hinum látna á vett­vangi sagð­ist hann ekki hafa veitt honum þá en sagð­ist hafa konu sem bjó í hús­inu grun­aða. Eftir að lög­regla hafði rætt við kon­una var ekki talin ástæða til að gruna hana um ódæðið.

Nið­ur­staða dóm­stóla var að ákærði væri sak­hæfur. Morð­til­efni kom hins vegar aldrei fram og er hulið um hvað félag­arnir tveir deildu. Ákærði bar við óminni fyrir atburðum.

Í dómi Hæsta­réttar í mál­inu árið 2008 er það reifað svo:

Bana­mað­ur­inn var ákærður fyrir mann­dráp með því að hafa sunnu­dag­inn 7. októ­ber 2007, veist að hinum látna á heim­ili hans og slegið hann minnst þremur þungum höggum í höf­uðið með slökkvi­tæki, með þeim afleið­ingum að höf­uð­kúpa brotn­aði á þremur stöðum. Hann fékk mikla heila­blæð­ingu sem dró hann til dauða að kvöldi. Ákærði neit­aði sök.

Enginn á að þurfa að deyja á þennan hátt

Í dómi hér­aðs­dóms, sem stað­festur var í Hæsta­rétti, sagði að sannað væri að hinn ákærði hefði á þeim tíma sem hér um ræðir verið að lang­mestu leyti í óminn­is­á­standi og því væri ekki byggj­andi á reikulum fram­burði hans. Með vísan til blóð­bletta á fatn­aði ákærða, blóðs úr hins látna á slökkvi­tæk­inu, tækni­rann­sóknar lög­reglu og til vitn­is­burðar nánar til­greindra vitna, var talið sannað að ákærði hefði slegið að minnsta kosti þremur þungum höggum í höf­uðið með slökkvi­tæk­inu sem sannað var með áliti rétt­ar­meina­fræð­ings að hefði leitt hann til dauða.

Þá var talið að ákærði hefði ekki geta dulist að höf­uð­höggin myndu leiða til dauða. Var ákærði sak­felldur fyrir brot gegn 211. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940 og hann dæmdur til 16 ára fang­els­is­vistar. Fallist var á skaða­bóta­kröfu systk­ina hins látna að fjár­hæð 504.733 krónur, en hún var reist á reikn­ingum sem tengd­ust sak­ar­efni máls­ins.

Auk þess var hann dæmdur til að greiða systk­inum hins látna hálfa milljón króna í skaða­ætur. Lögmaður ákærða sagði eftir að dóm­ur­inn var kveð­inn upp að tekin yrði ákvörðun síðar um það hvort mál­inu yrði áfrýjað. Til þess hefur ákærði fjórar vikur.

Systir hins látna, sagði: „það á eng­inn að þurfa að deyja á þennan hátt, hvorki hann né aðrir.“

Heim­ildir:

Ágúst Borgþór Sverr­is­son. 14. des­em­ber 2020. Tíma­vélin: Slökkvi­tæk­is­morðið á Hring­braut – Blóð­blett­irnir sögðu sög­una. DV.

Inn­lendar fréttir. 23. maí 2008. Hlaut 16 ára fang­elsi fyrir mann­dráp við Hring­braut: Sló nágranna sinn þremur þungum höggum með slökkvi­tæki en neit­aði ákærunni. MBL.

Innlent. 22. maí 2008. Sextán ára fang­elsi fyrir mann­dráp við Hring­braut. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi