Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Afplánar 14 ára fangelsisdóm – lést í örmum dóttur sinnar: „Drap hana út af 19 þúsund krónum“

Afplánar 14 ára fangelsisdóm – lést í örmum dóttur sinnar: „Drap hana út af 19 þúsund krónum“
Mynd/skjá­skot. Stöð2

24 ára Íslend­ingur var dæmdur í 14 ára fang­elsi fyrir morð sem hann framdi í smábæ skammt frá Horsens í Danmörku í byrjun mars árið 2010. Hann og sam­verka­maður hans, sem fékk 12 ára fang­elsi, áfrýj­uðu dómnum.

Lést í örmum dóttur sinnar

Chanette Sörensen var skotin til bana á heim­ili sínu í Horsens. Sá sem skaut hana stóð fyrir utan húsið hennar og skaut fimm skotum í gegnum bor­stofu­glugg­ann. Eitt skotið hæfði Chanette í höf­uðið og lést hún skömmu síðar í örmum dóttur sinnar Sandie.

Lög­reglan handók mann­inn dag­inn eftir, en vitni sáu hann flýja af vett­vang and­ar­tökum eftir að skot­unum var hleypt af. Hann var kunn­ugur hinni látnu og hafði áður átt í sam­bandi við dóttur hennar, en hann skuld­aði þeim pen­inga vegna fíkni­efna­við­skipta.

Af hverju drap hann hana útaf 19 þúsund krónum?

„Það var mikið uppi­stand. Hann fékk víst 19 þús­und krónur danskar lán­aðar hjá mömmu fyrir inn­borgun. Ég skil ekki af hverju hann drap hana út af 19 þús­und krónum,“ segir Sandie.

Ástæðan fyrir morð­inu var fíkni­efna­skuld en sam­kvæmt dóttur Chanette skuld­aði mað­ur­inn henni 19 þús­und danskar krónur. Chanette var úr fjöl­skyldu sem tengd­ist fíkni­efna­við­skiptum, eig­in­maður, systir og mágur hennar höfðu öll fengið margra ára fang­els­is­dóm vegna fíkni­efna­laga­brota.

Íslendingnum vísað úr landi

Sam­verka­maður manns­ins fékk tólf ára fang­els­is­dóm. Báðir áfrýj­uðu dómum sínum. Dómi sam­verka­manns­ins var breytt í fjögur og hálft ár, en dómur manns­ins stað­festur. Maðurinn hafði búið í Danmörku frá barna­skóla­aldri, en fram kom í dómnum að honum skyldi vísað úr landi að afplánun lok­inni.

Kom til Íslands í afplánun og handtekinn að nýju

Í byrjun árs 2020 voru sex­menn­ingar hnepptir í gæslu­varð­hald eftir sam­ræmdar aðgerðir lög­reglu.  Voru menn­irnir grun­aðir um stór­fellda amfetamín­fram­leiðslu í bústað rétt ofan við Reykja­vík. Tveir þeirra höfðu hlotið þunga dóma hvor í sínu smyglskútu­mál­inu og sá þriðji afplánar fjórtán ára dóm fyrir morð.

Aðgerðir lög­reglu voru mjög umfangs­miklar, rann­sóknin sneri meðal ann­ars að fram­leiðslu fíkni­efna og pen­inga­þvætti, ráð­ist hefði verið í hús­leitir víða og hald lagt á fíkni­efni, vopn og fjár­muni.

Einn af þessum mönnum var dæmdur í 14 ára fang­elsi í Danmörku, eins og fyrr segir, fyrir að skjóta móður fyrr­ver­andi unn­ustu sína til bana í smábæ fyrir utan borg­ina Horsens. Maðurinn kom til Íslands í afplánun og fékk reynslu­lausn sum­arið 2019. Hann rauf skil­yrði hennar um jólin 2019 og var færður aftur í afplánun. Þá var leitað í hús­næði sem hann hafði til umráða og þar fund­ust íblönd­un­ar­efni fyrir hörð fíkni­efni og var mað­ur­inn hand­tek­inn á Litla-Hrauni.

Bæði tengd fíkniefnaheiminum

Vestari Lands­réttur í Danmörku stað­festi 14 ára fang­els­is­dóm hér­aðs­dóms yfir mann­inum, fyrir morð á fer­tugri konu.

Sannað þótti að mað­ur­inn hefði skotið af byss­unni úr bíl sem félagi hans ók. Danskir fjöl­miðlar segja að ákærði og fórn­ar­lambið hafa þekkst og bæði tengst fíkni­efna­heim­inum í Horsens.

Fé­lagi hans, 31 árs maður, var dæmd­ur í 3½ árs fang­elsi en hér­aðs­dóm­ur hafði dæmt hann í 12 ára fang­elsi. Sýknaði lands­rétt­ur félag­ann af ákæru fyr­ir mann­dráp en fann hann sek­an um brot á vopna­lög­um og fyr­ir að setja kon­una í hættu. Félaginn hefur nú afplánað sinn dóm og er laus úr fang­elsi. Ritzau-frétta­stof­an sagði, að dóm­ur­inn hafi ekki verið ein­róma og ein­hverj­ir dóm­ar­ar hafi viljað sýkna Íslend­ing­inn af mann­dráps­á­kæru.

Bíll­inn fannst síðar og hafði verið kveikt í hon­um

Chanette Søren­sen lést þegar skotið var fimm skot­um inn um glugga á húsi henn­ar í bæn­um Lund, norður af Hor­sens, í byrj­un mars árið 2010.  Eitt skotið lenti í and­liti kon­unn­ar sem lést sam­stund­is. Skotið var á húsið úr bíl sem ekið var fram­hjá en tveir menn voru í bíln­um. Bíll­inn fannst síðar og hafði verið kveikt í hon­um. Upp­tök­ur úr ör­ygg­is­mynda­vél versl­un­ar sýndu, að ann­ar mann­anna keypti þar eld­fim­an vökva.

Ákærði hélt því fram, að hann hefði aðeins skotið af byssu í átt á hús­inu til að hræða tengda­son Søren­sen. Eft­ir morðið fund­ust fíkni­efni graf­in í garði kon­unn­ar og töldu sak­sókn­ar­ar að rekja mætti skotárás­ina til fíkni­efna­við­skipta. Fram kom, að mað­ur­inn hafi átt í sam­bandi við dótt­ur kon­unn­ar og hafi búið þar um tíma í húsi henn­ar. Hann viður­kenndi við rétt­ar­höld­in að hafa skuldað Søren­sen pen­inga en neit­aði að hafa ráðið henni bana.

Maðurinn sem skaut kon­una er ís­lensk­ur í aðra ætt­ina og hef­ur búið í Hor­sens stór­an hluta æv­inn­ar. Hann var m.a. í sama barna­skóla og dótt­ir kon­unn­ar.

Heim­ildir:

Innlent. 4. jan­úar 2012. 14 ára fang­els­is­dómur yfir Íslend­ingi stað­festur. MBL.

Innlent. 6. apríl 2011. Ég skil ekki af hverju hann drap hana út af 19 þús­und krónum. Vísir.

Jón Þór Stef­áns­son. 8. ágúst 2021. Íslend­ingar í aðal­hlut­verkum í erlendum morð­málum – Fjöl­skyldu­harm­leikur, aflimað lík og skotárás. DV.

Stígur Helgason. 23. jan­úar 2020. Þrír hinna hand­teknu með dóma fyrir skútu­smygl og morð. RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi