Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Körfuboltakonan lýsir heimsókn eftir tapleik gegn Keflavík: „Little black nigger bitch“

Körfuboltakonan lýsir heimsókn eftir tapleik gegn Keflavík: „Little black nigger bitch“
Tavelyn James (þá Tillman)

Árið 2017 tap­aði kvenna­lið Skalla­gríms í körfuknatt­leik nokkuð stórt í fimmta leik í úrslita­keppn­inni gegn Keflavík. Eftir leik­inn fékk lyk­il­leik­maður Skalla­gríms heim­sókn frá Ámunda Sig­urðs­syni, fyrr­ver­andi lög­reglu­manni, sem þá var for­maður meist­ara­flokks­ráðs kvenna. Með honum í för var Ásmundur Einar Daðason, ráð­herra, sem þá var for­maður kvenna­ráðs Skalla­gríms. Heim­sóknin var engin kurt­eis­is­heim­sókn en þar var hún sökuð um að hafa vilj­andi tapað leiknum fyrir Skalla­grími með lélegum leik.

Tavelyn Tillman (nú James) er banda­rísk körfuknatt­leiks­kona sem lék meðal ann­ars í lands­liði Banda­ríkj­anna og í WNBA deild­inni. Lék hún með Skalla­grími á tíma­bil­inu 2016-2017 en hún var með betri leik­mönnum deild­ar­innar með 24,4 stig að með­al­tali í leik og þar með fjórða stiga­hæsti leik­maður deild­ar­innar, það tíma­bil. Þrátt fyrir gott tíma­bil lagði hún körfu­bolta­skóna á hill­una og flutti aftur til Banda­ríkj­anna eftir tíma­bilið.

Í sam­tali við Mannlíf lýsir Tavelyn heim­sókn­inni sem hafði mikil áhrifa á hana.

„Ég var svo sjokkeruð að þeir tveir skyldu koma heim til mín,“ sagði hún og hélt áfram. „Þeir sök­uðu mig um að hafa vilj­andi skotið illa svo liðið myndi tapa fimmta leiknum gegn Keflavík. Ámundi kall­aði mig „a little black nig­ger bitch“. Ég reyndi að taka heim­sókn­ina upp á ipa­d­inum mínum en hann sló hann úr hönd­unum á mér. Þeir sögð­ust hafa heyrt mig tala í síma fyrir leik þar sem ég á að hafa sagst ætla að tapa leiknum svo ég kæm­ist heim um pásk­ana.“

Aðspurð hvort Ásmundur Einar hefði verið dóna­legur við hana líka neit­aði hún því. „Hann var reyndar sá rólegi. Hann kom almennt ekki illa fram við mig, að minnsta kosti ekki þannig að ég tæki eftir því.“

Blaða­maður Mannlífs spurði Tavelyn hvort hún hefði verið látin hætta hjá Skalla­grími en því neit­aði hún. „Tíma­bilið var búið eftir leik­inn og ég hefði ekki viljað halda áfram hvort sem er.“

Tavelyn hætti í körfu­bolta eftir þetta tíma­bil með Skalla­grími. Hún var þá orðin 32 ára en átti enn mikið eftir á tank­inum enda með 24,4 stig að með­al­tali í leik með Skalla­grími, auk þess sem hún tók 5,9 frá­köst og sendi 3,9 stoðsend­ingar.

Aðspurð hvort hún hefði hætt vegna ald­urs eða vegna heim­sókn­ar­innar svar­aði hún: „Bæði vegna ald­urs­ins og þessa atviks ef ég á að vera hrein­skilin. Maður veit, þegar maður gefur svo mikið af sér fyrir liðið og gerir sitt allra besta en ert svo sak­aður um óheil­indi og síðan kall­aður negri, er bara komið nóg.“

Mannlíf hringdi í Ámunda Sig­urðs­son og bar þessa frá­sögn undir hann en hann neit­aði harð­lega.

„Það getur bara ekki verið því hún fór bara beint til útlanda eftir þann leik, hvaða kjaftæði er þetta? Það er bara kjaftæði. Þetta er vin­kona mín,“ svar­aði Ámundi.

Er Mannlíf bar undir hann hvort hann hefði kallað Tavelyn „little black nig­ger bitch“ neit­aði Ámundi: „Ég get ekki einu sinni borið það fram svo er nú hæpið að ég hafi kallað hana það.“

Ekki náð­ist í Ásmund Einar Daðason við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi