Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Birgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“

Birgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“
Birgir Jónsson, for­stjóri Play, lætur brátt af störfum.

For­stjóri flug­fé­lags­ins Play harmar upp­lifun far­þega sem sendir voru á hótel sem upp­fyllti væg­ast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru stranda­glópar í París eftir að flug­ferð félags­ins var aflýst. Vísir greinir frá þessu.

Birgir Jónsson, for­stjóri Play, er sam­mála því að hót­elið sem far­þeg­unum var boðið upp á í París hafi verið óvið­un­andi. „Ég er bara sam­mála þessu fólki sem var á þessu hræði­lega hót­eli í París, þetta er auð­vitað algjör­lega óboð­legt,“ sagði Birgir Jónsson um málið í Reykja­vík síð­degis í gær.

Pöddur, mygla og vond lykt

Nokkuð hefur verið um fréttir af sein­k­unum og aflýs­ingum flug­ferða á vegum Play und­an­farna daga. Í fyrra­dag birt­ist frétt á Vísi þar sem rætt var við far­þega sem urðu fyrir því að flugi þeirra frá París til Íslands með Play var aflýst. Þrennt stóð far­þeg­unum til boða í stöð­unni; að fá hót­elgist­ingu og fyrsta mögu­lega far heim, seinkun heim­ferðar eða end­ur­greiðslu á flug­mið­anum. Farþegar sem þáðu hót­elgist­ingu brá í brún þegar komið var á áfanga­stað.

„Við þurftum að skipta um hótel, þetta var bara hor­bjóður. Þegar við mættum var úld­inn matur fyrir utan hót­elið og allt út í flugum í mót­tök­unni og ógeðs­leg lykt,“ sagði far­þegi í sam­tali við Vísi.

Inni á hót­el­her­bergjum hafi verið pöddur, mygla og vond lykt. Farþegar höfðu það sömu­leiðis á orði að hafa ekki lit­ist á hverfið sem hót­elið var stað­sett í. Þau hafi verið hrædd um að vera rænd nokkrum sinnum á þeim stutta tíma sem þau eyddu á staðnum.

Rekja tafir til villumeldingar

Birgir útskýrði í Reykja­vík síð­degis að tafir á flug­ferðum mætti rekja til villu­meld­ingar um elds­neyt­is­skort, sem nýlega kom upp í flugi Play. Vegna þessa hafi neyð­ar­stig verið sett á og vélin tekin úr umferð. Þetta hafi haft keðju­verk­andi áhrif á önnur flug.

Birgir tók fram að þær myndir sem far­þeg­arnir hafi tekið á hót­el­her­berg­inu séu ekki í nokkru sam­ræmi við þær myndir sem hafi verið sýni­legar við bókun á net­inu.

„Þannig að ég er algjör­lega sam­mála, þetta er bara við­bjóðs­legt. En þegar hlut­irnir fara svona í skrúf­una er ekk­ert hægt að gera nema að biðj­ast afsök­unar og læra af þessu,“ sagði Birgir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi