Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur eða Kristrún einu sem koma til greina í formanninn: „Síðasta tækifærið til alvöru sóknar“

Dagur eða Kristrún einu sem koma til greina í formanninn: „Síðasta tækifærið til alvöru sóknar“

Allt virð­ist stefna í að það verði Kristrún Frosta­dóttir þing­kona og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sem munu kepp­ast um að taka við af Loga Ein­ars­syni, frá­far­andi for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Logi greindi frá því í dag að hann hyggð­ist segja þetta gott og hætta for­mennsku í haust. Staða þeirra beggja er sterk innan flokks­ins og því mjög tví­sýnt hver hefði betur ef þau myndu bæði sæk­ast eftir stólnum. Lík­leg­ast er að Dagur muni ekki sækj­ast eftir for­mennsku ef Kristrún gerir það einnig. Stóra spurn­ingin sé því hvort hún taki slag­inn.

Björn Birg­is­son, þjóð­fé­lags­rýnir í Grinda­vík, segir á Facebook að valið á milli þeirra tveggja verði lík­lega mjög afdrifa­mikið. „Mun Sam­fylk­ingin láta að sér kveða eins og að var stefnt með sam­ein­ing­unni um alda­mótin? Með vali nýs for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar í haust gefst flokknum síð­asta tæki­færið til alvöru sóknar í stjórn­málum lands­ins,“ skrifar Björn og bendir á að þau spegli hvort annað. Þá á hann við að Kristrún sé ferskur and­blær en á móti hafi hún litla reynslu. Þessu er þver­öf­ugt farið hjá Degi, næg er reynslan en fersk­leik­inn ekki mik­ill.

Blaða­maður spurði Björn því hvað fleira aðgreindi þau, um hvað valið sner­ist fyrir flokks­menn. Það stóð ekki á svör­unum.  Björn segir þau bæði hafa mikla styrki en líka nokkra veik­leika. Hann seg­ist örlítið efins um að þau munu berj­ast um for­mennsk­una.

„Fari svo að Dagur og Kristrún berj­ist um for­mennsk­una í Sam­fylk­ing­unni – sem er álíka lík­legt og það er ólík­legt – þá tel ég lík­legra að Kristrún hafi sigur. Nýja­brumið heillar oft meira,“ segir Björn.

Björn segir styrk­leika Dags fel­ast í því að hann sé  „mjög vin­sæll maður sem hefur haldið Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík í um 25- 30% á sama tíma og flokk­ur­inn berst við 10% þrösk­uld­inn á lands­vísu. Alþýð­legur og elsku­legur maður. Aðrir odd­vitar flokks­ins kom­ast ekki með tærnar í námunda við svæðið þar sem Dagur hefur hæl­ana. Ef reynsla er styrk­leiki þá býr Dagur vel að henni – hefur lagt 16 far­sæl ár að baki í borg­ar­stjórn og hefur sýnt að hann hefur gott póli­tískt nef. Hann veðj­aði til dæmis hár­rétt á sam­starfið við Besta flokk­inn og Jón Gnarr og naut þess að stjórna borg­inni með lagni úr aft­ur­sæt­inu!“

Dagur hafi þó veik­leika, þó mis­al­var­legir séu. „Hann er karl­maður á tíma þar sem konur eru að leggja allt undir sig! Hafandi fylgst með störfum Dags úr fjar­lægð þessi 16 ár sem hann hefur setið í borg­ar­stjórn­inni hefur mér ekki tek­ist að greina neina áber­andi veik­leika – þvert á móti. Hins vegar kann það að reyn­ast honum fjötur um fót að hafa ungur gefið sig að borg­ar­mál­unum og verið lengi í sviðs­ljós­inu. Úthald kjós­enda gagn­vart fram­bjóð­endum er miklu minna en fram­bjóð­end­anna sjálfra. Það er miklu lík­legra að kjós­endur séu eins og fólk í fram­hjá­haldi – á sama tíma og fram­bjóð­endur halda tryggð við flokk­inn sinn – komi upp ein­hver þreyta í sam­band­inu!“

Líkt og áður þá er þessu öfugt farið hjá Krisrúnu. Björn segir um styrk­leika hennar: „Kristrún – Styrk­leiki. Hún er kona, metn­að­ar­full og hæfi­leik­a­rík kona. Sá tími er lið­inn að þær eigi erfitt upp­dráttar í póli­tík, séu þær með metn­aðar átta­vit­ann rétt stilltan. Hún er vel mennt­aður hag­fræð­ingur og talar um fjár­mál rík­is­ins og fjár­mál almennt eins og hún hafi alist upp í þeim. Þar er hún á heima­velli og ber af öðrum þing­mönnum, sem margir hverjir hafa lítið sem ekk­ert vit á fjár­málum, utan þess að vita hver laun þeirra eru. Þekking hennar á fjár­málum er vís til að tengja hana og flokk­inn betur við atvinnu­lífið í land­inu, en þar á Sam­fylk­ingin nán­ast engar teng­ingar nú, en verður að ná þeim ef hún vill vaxa úr smá­flokki í ráð­andi afl. Hér­lendis ná engir flokkar almenni­legri fót­festu ef þeir eru stöðugt að tala atvinnu­lífið niður. Kristrún Frosta­dóttir skilur þá stað­reynd mæta­vel.“

Hann segir veik­leika hennar vera að fyrst og fremst reynslu­leysi enda stjórn­mála­fer­ill hennar stuttur. „Hún er svo ný og fersk í stjórn­mál­unum að hún hefur ekki náð að sýna neinar veikar hliðar. Virðist vera ákveðin og rökviss. Margir líta á reynslu­leysi sem veik­leika­merki, en reynslan hefur þó sýnt að fjöl­mörgum stjórn­mála­mönnum hefur hrein­lega verið hent út í djúpu laug­ina – og ekk­ert staðið sig verr en reynslu­bolt­arnir við það að klóra sig að bakk­anum!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi