Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

María Sigríður Jónsdóttir listakona: „Ég var bara á sjálfstýringu til að komast í gegnum dagana“

María Sigríður Jónsdóttir listakona: „Ég var bara á sjálfstýringu til að komast í gegnum dagana“
María Sigríður Jóns­dóttir

„Ég mála mikið blóm og fugla og set við­fangs­efnið stundum í óvenju­legar aðstæður; mynd­irnar eru svolítið draum­kenndar og óraun­veru­legar. Mér finnst mik­il­vægt að verkin mín gleðji og hafi góð áhrif á áhorf­and­ann,“ segir María Sigríður Jóns­dóttir lista­maður sem býr á Ítalíu.

Hún fædd­ist og ólst upp á Akureyri. Fjöl­skyldan er stór og hún seg­ist hafa átt ynd­is­lega æsku. „Mér finnst eins og áhug­inn á mynd­list hafi bara verið eins og eðli­legur partur af lífinu því í fjölskyld­unni er mikið um hand­verks- og listafólk og það hefur örugg­lega haft áhrif á að ég valdi mér þessa braut.“ Þess má geta að Margrét Jóns­dóttir leir­lista­kona er systir Maríu sem og Þórdís Jóns­dóttir sem hefur í mörg ár hannað og hand­saumað púða sem eru lista­verk.

Mér fannst eins og ég væri ekki nógu flink.

„Svo man ég eftir að hafa farið sem lítil stelpa með pabba og mömmu á mynd­list­arsýningar, en ég man líka að mynd­irnar voru svolítið hátt uppi á veggj­unum fyrir mig, litla stelpuna. Ég teikn­aði og föndraði mikið sem stelpa og það var alltaf verið að skapa eitt­hvað á heim­il­inu. Svo fannst mér ákaf­lega skemmti­legt að fá að vera í teikni­her­berg­inu hans pabba, Jóns Geirs Ásgeirs­sonar tækni­fræð­ings, sem teikn­aði fjölmörg hús á Akureyri og ég fékk að nota teikni­borðið hans, penn­ana, blöðin og allar græjurnar hans, og ég hann­aði hús og heim­ili af miklum móð. Svo voru stundum haldnar „mynd­list­arsýningar“ á gang­inum heima þegar við vin­kon­urnar vorum búnar að dunda okkur við að teikna og lita og skapa okkar eigin heim. Ég fór ekki í mynd­list­ar­skóla þegar ég var stelpa því ég hrein­lega þorði það ekki; mér fannst eins og ég væri ekki nógu flink og gæti ekki gert það sem ætti að gera og auð­vitað finnst mér það bara spaugi­legt núna. En ég end­aði samt á námskeiðum í mynd­list­ar­skólanum þegar ég varð eldri og það var vissu­lega gaman og gef­andi.“

Annar heimur

María lærði hársker­a­iðn, en í henni blund­aði áhugi á að fara í lista­skóla og ekki dvínaði áhug­inn eftir að hún fór fyrst til Ítalíu árið 1990, þegar hún var 21 árs.

„Ég hélt að ég mundi búa á Akureyri og eign­ast þar fjölskyldu, en innst inni lang­aði mig að fara og sjá heim­inn, ferð­ast og kynn­ast nýjum löndum og nýrri menn­ingu þannig að ég lét slag standa þegar vin­kona mín hringdi í mig og spurði hvort ég væri ekki til í að koma með henni til Flórens á Ítalíu.“

En að búa í Flórens er eins og að búa á lista­safni.

Það var vendi­punktur í lífi Maríu, en í Flórens stund­aði hún síðar mynd­list­ar­nám við Rík­is­aka­dem­í­una sem hún segir að hafi verið skemmti­legt og lær­dóms­ríkt. „Stundum fannst mér mig þó vanta aðeins meiri stuðn­ing og kraft frá kenn­ur­unum. Nemendur hafa mikið frelsi og það getur verið bæði jákvætt og nei­kvætt. En að búa í Flórens er eins og að búa á lista­safni; það eru lista­verk úti um allt og ég man alltaf að listasögukenn­ar­inn minn sagði okkur að vera dug­leg að horfa upp þegar við værum úti og á söfnum, því lista­verkin væru nú ekki bara í augn­hæð og það var svo sann­ar­lega rétt hjá henni.“

María útskrif­að­ist frá Rík­is­aka­dem­í­unni í borg­inni sem er eins og eitt stórt lista­verk og hefur síðan unnið að list­inni á Ítalíu.

Hvað með stíl­inn í verkum Maríu?

„Ég mundi segja að það að hafa lært í Ríkisaka­demíunni í Flórens og að hafa búið í Flórens, vöggu end­ur­reisn­ar­innar, í tæp átta ár hafi haft áhrif á stíl minn og vinnu­brögð. En ég man líka að í skólanum fannst kenn­ur­unum mínum þeir sjá greini­lega áhrif frá Íslandi í lita­vali og birtu í verk­unum mínum.“

Það var heill­andi til­hugsun að fá að til­heyra þessum heimi.

María segir að henni finn­ist mynd­listin vera annar heimur: „Ævintýri og sögur sem tala til manns og spila á til­finn­inga­skal­ann. Það var heill­andi til­hugsun að fá að til­heyra þessum heimi, fá að taka þátt og geta gefið af sér með mínum „sögum“ og mínum litum.“

Hún segir að hug­myndir að verk­unum geti komið víða að. „Draumar, náttúran, ljóð, lestur bóka, hug­leiðsla eða jafn­vel setn­ing í lagi. Umhverfið yfir­leitt getur líka allt í einu komið á óvart og út frá því fæð­ist málverk eða hug­mynd að verki. Ferðalög hafa líka mikil áhrif, en á ferðalögum og nýjum stöðum fæ ég oft innblástur og maður opnar augun fyrir nýjum hug­myndum.“

Hvað með lita­valið í verk­unum?

„Lita­valið í verk­unum mínum hefur aðeins breyst upp á síðkastið; ég er aftur farin að mála í sterk­ari litum og akkúrat núna finnst mér það henta mér. En svo er það reyndar bara dags­formið og hug­mynd­irnar að verk­unum sem svo að lokum ráða lita­vali.“

Maður veltir fyrir sér hvað það þýði að vera að gera lista­verk á eftir öllum þessum snill­ingum sem uppi voru.

María segir að það sé ekki mjög auð­velt að vera lista­maður á Ítalíu. „Þeir lista­menn sem ég heyri í hér eru margir á sama máli; þeim finnst erfitt að selja verkin sín og kom­ast inn í gall­erý. Stundum finnst mér öll þessi stórkost­legu lista­verk yfir­þyrm­andi, á öllum söfnunum og hverju götuhorni, og maður veltir fyrir sér hvað það þýði að vera að gera lista­verk á eftir öllum þessum snill­ingum sem uppi voru. En sem betur fer gleymi ég þessum hugs­unum fljótt og held ótrauð áfram að skapa mín eigin verk með hug og hjarta að leið­ar­vopni.“

Flutningar fram undan

María kynnt­ist fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni sínum og barns­föður þegar hún kom í annað skipti til Ítalíu þegar hún var 22 ára ára gömul. „Við eign­uð­umst son sem heitir Daníel Alpi og hann er að verða 22 ára. Hann býr núna á Akureyri, vinnur á leikskóla og er í tónlist­inni á fullu, tónlist­ar­skóla og í hljómsveit.

Í fyrra kynnt­ist ég nýjum manni.

Í byrjun árs 2020 skildi leiðir okkar Lorenzo. Í fyrra kynnt­ist ég nýjum manni, Stefano Pratesi, sem er ferðafélagi minn í lífinu núna. Hann er skóhönnuður og býr í grennd við Siena og Arezzo á dásam­legum stað sem heitir Rapale.“

María býr enn á heim­il­inu sem hún bjó á með sínum fyrr­ver­andi og Daníel Alpi, sem er í bænum Figline og húsið stendur við torgið í bænum og við hlið­ina á kirkj­unni við torgið Piazza dei Partigi­ani. „Þar hef ég búið í rúm tutt­ugu ár, en núna er að hefj­ast nýtt tímabil í lífinu og ég mun flytja á nýjan stað á Ítalíu. Ég hef auga­stað á húsi í bæ sem heitir Sinalunga; það er í gamla hluta bæj­ar­ins sem stendur hátt uppi á hæð með útsýni yfir holt og hæðir. Þar langar mig að búa mér til nýtt heim­ili, nýja vinnu­stofu og leigja út íbúð fyrir ferða­menn. Svæðið þar allt í kring er ein­stak­lega fal­legt og hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Þaðan er stutt á svo marga fal­lega staði, svo sem Siena, Arezzo, Perugia og Lago Trasi­meno, svo ég tali nú ekki um sveit­ina fögru sem heillar mig alveg upp úr skónum.“

María segir að hana hafi lengi dreymt um að geta átt íbúð bæði á Akureyri og á Ítalíu. „Sá draumur hefur ekki enn ræst, en ég er nú ekki búin að gefa hann upp á bátinn því ræt­urnar liggja á Íslandi og þar er mín stórfjölskylda og mikið af góðum vinum. Ég hef alltaf reynt að koma minnst tvisvar á ári heim til Íslands. Þegar Daníel var lítill dvöldum við oft í tvo og stundum næstum þrjá mánuði á Akureyri því mér fannst mjög mik­il­vægt að hann fengi að kynn­ast Íslandi og fjölskyld­unni þar líka. Hann lærði líka að tala íslensku enn betur með því að koma og dvelja á Akureyri.“

Óendanlega vondur og sár

Lífið getur stundum verið eins og mál­verk á striga þar sem eru bæði bjartir og dökkir litir.

Gleði og sorg.

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað Maríu mest – hana sem er móðir og frá­skilin kona?

„Ég mundi segja að fæð­ing Daníels, sonar míns, sé nú ein mikl­væg­asta lífsreynsla ævinnar. Það að verða móðir breytir öllu. Áhersl­urnar í lífinu breyt­ast og fókus­inn bein­ist meira að annarri mann­eskju sem þú elskar skil­yrð­is­laust. Um tvítugt ákvað ég að fara til Ítalíu, prófa að búa ann­ars staðar, en ég ílengd­ist nú ansi mikið og hér er ég enn. Að búa í öðru landi mótar mann vissu­lega og víkkar sjóndeild­ar­hring­inn, kennir manni nýja siði og nýjar venjur.“

Mér fannst ákaf­lega erfitt þegar móðir mín var greind með alzheimer.

María seg­ist vilja fyrst þakka alheim­inum fyrir hve heppin hún hefur verið í lífinu og nefnir að hún eigi ynd­is­legan son og dásam­lega fjölskyldu og vini.

„Mér fannst ákaf­lega erfitt þegar móðir mín var greind með Alzheimer, en ég er samt þakklát fyrir að hafa fengið að hafa hana svona lengi þó að „kveðju­stundin“ taki í hennar til­viki mörg ár.

Hann var alla­vega í mínu til­viki óend­an­lega vondur og sár á meðan á honum stóð og í langan tíma á eftir.

Svo tók líf mitt og fjölskyld­unnar minnar óþægi­lega U-beygju árið 2019 þegar ég skildi og ég hef verið að vinna í því síðan og er enn að koma mér á réttan kjöl. Á þessum tímamótum í lífinu, þegar ég og eig­in­maður minn skildum, kom sann­ar­lega í ljós hversu dásam­leg fjölskylda mín er og vinir, bæði á Íslandi og á Ítalíu. Ég var umvafin kær­leika og ást. Ég hef reynt að takast á við veik­indi móður minnar af æðru­leysi því þrátt fyrir allt er svo mikið að þakka fyrir í lífinu. Og skiln­aður við maka; jú, hann var alla­vega í mínu til­viki óend­an­lega vondur og sár á meðan á honum stóð og í langan tíma á eftir, en svo rís maður upp og gleðin og lífskraft­ur­inn kemur aftur sterk­ari en áður.

Á meðan ég var í sem mestum sárum þá gagn­að­ist mér ekki neitt af því.

Ég reyndi að ein­beita mér í jóga og and­legum fræðum, en á meðan ég var í sem mestum sárum þá gagn­að­ist mér ekki neitt af því; mér gagn­að­ist kær­leik­ur­inn frá fólkinu mínu og vinum og að hreyfa mig. Líkam­leg hreyf­ing er mik­il­væg þegar eitt­hvað bjátar á, hlusta á fal­lega tónlist og geta sofið, en það er mjög mik­il­vægt þegar eitt­hvað bjátar á í lífinu. En ég reyni samt að muna eftir því að þakka fyrir á hverjum degi hvað ég hef verið heppin hingað til, því margir eru að fást við svo erfið og stór verk­efni.“

Til­finn­ingar sem voru mjög snúnar og erf­iðar, þungar og myrkar.

Andleg líðan hefur áhrif á áhersl­urnar á strig­anum. „Líðan mín hefur sann­ar­lega áhrif á hvernig mér gengur að vinna að minni list. Þegar ég stóð frammi fyrir skiln­að­inum fyrir rúmum tveimur árum þá gat ég lítið unnið. Ég gat ekki látið til­finn­ing­arnar í ljós á strig­anum; til­finn­ingar sem voru mjög snúnar og erf­iðar, þungar og myrkar. Ég sá ekki framtíðina í skýru ljósi. Ég var bara á sjálf­stýr­ingu til að kom­ast í gegnum dag­ana. En svo birtir alltaf upp um síðir og ég fór að læð­ast að strig­anum og lit­unum og ég held að einmitt núna sé ýmis­legt að kom­ast til skila í verk­unum; alls ekki erf­iðar til­finn­ingar heldur er það ákveðin upp­lifun sem hefur breytt mér og þroskað sem lista­mann.“

Smáu hlutirnir

Hvað með lífs­stíl og áhuga­mál lista­manns­ins sem töfrar fram lista­verk sem minna svo­lítið á lista­verk ítölsku end­ur­reisn­ar­meist­ar­anna þar sem jafn­vel lóan kíkir á strig­ann?

„Lífsstíllinn hjá mér er frekar ein­faldur. Ég reyni að huga að and­legri og líkam­legri heilsu en ég þarf samt að hafa fjölbreytni í lífinu því það verður að vera gaman. Ég hef mikil sam­skipti við fjölskyld­una mína á Íslandi, því það er mér lífsnauð­syn­legt og svo reyni ég að ferð­ast þegar þess er kostur. Eftir að ég flutti til Ítalíu fór ég auð­vitað að elska góðan mat og gott vín og ég nýt þess að fara út að borða með góðum vinum, en mér finnst líka gaman að elda sjálf. Allt góða hráefnið hér gerir það að verkum að það er skemmti­legt að elda. Ég þarf alltaf að fá minn „heilaga“ cappuccino á morgn­ana og kíkja aðeins á netið til að fylgj­ast með heimsmálunum og síðan tekur við vinna á vinnu­stof­unni minni sem er við hlið­ina á húsinu mínu; reyndar er inn­an­gengt í hana úr húsinu svo það er stutt að fara á töffl­unum í vinn­una. Dagarnir eru mis­mun­andi. Stundum gengur mér best að vinna snemma dags, en suma daga er ég ein­beitt­ust á kvöldin. Það er dýrmætt að geta ráðið sínum vinnutíma sjálf, en oft ræður líka málverkið og olían framgöngu mála og vinnutíma.

Myndlist, tónlist og listir yfir­leitt eru auð­vitað mín áhugamál.

Áhugamálin mín eru af ýmsum toga, en það teng­ist samt mikið inn á list­ina. Við fjölskyldan áttum reyndar hesta þegar ég var stelpa og ég elskaði að umgang­ast hest­ana og fara í reiðtúra. Mig dreymdi oft um að eiga hest hér á Ítalíu, en það var svona einn af mínum flipp­uðu draumum sem hafa ekki ræst. Ég lærði að spila á þver­flautu þegar ég var stelpa og ákvað svo fyrir nokkrum árum að byrja að spila aftur bara fyrir sjálfa mig og ánægj­una af því og ég reyni að spila eins oft og ég get og þegar ég hef tíma. Myndlist, tónlist og listir yfir­leitt eru auð­vitað mín áhugamál sem og fal­leg húsakynni og hönnun. Svo er það náttúran og móðir jörð og sam­skipti við hana. Ég hef áhuga á að leita eftir smáu hlut­unum og horfa á þá. Þegar ég er í fjallgöngum eða bara úti í náttúrunni er ég oft með nefið ofan í jörðinni að skoða það sem fyrir augu ber; það er svo margt fal­legt í þessu smáa. Jóga, and­leg mál og skemmti­leg sam­skipti við aðra myndi ég líka flokka sem mín áhugamál sem og að dansa, fara út að borða og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.“

Allir litir heimsins

Hvað með draumana bæði hvað varðar lífið og mynd­list­ina?

„Draum­arnir eru margir og ég veit að oft er best að láta ekki nokkurn mann vita hvað kemur upp í huga mér, því margt af því er nefni­lega svo óraun­hæft og fólk gæti bara orðið hrætt. En ég vil leyfa mér að láta mig dreyma, því ann­ars væri lífið svo leið­in­legt og grátt. Suma drauma tekst manni að láta ræt­ast, en suma geymir maður bara sem góðan vin í „drauma­land­inu“.

Þar sem ég stend á stórum tímamótum í lífi mínu og er orðin eldri, þá eru draum­arnir kannski aðeins jarð­bundn­ari; svo sem draumur um að vera við góða heilsu, vera ham­ingjusöm, geta gefið af mér til umhverf­is­ins og sam­ferðafólks míns og geta hlegið og brosað sem mest, því það eru mikil auð­æfi. Varðandi list mína, þá dreymir mig núna um nýju vinnu­stof­una mína, að geta sinnt list­inni af heilum hug og verið henni sam­ferða sem lengst. Það er ekki sjálfgefið að geta verið lista­maður og geta haft af því lifi­brauð. En í „nýju lífi“ mun ég gera allt sem ég get til að geta haldið áfram að mála og geta glatt aðra og njóta þess að mála alla liti heims­ins á strig­ann sem ég stend frammi fyrir í vinnu­stof­unni.“

En hins vegar gæti verið að í undi­með­vit­und­inni hafi þessir draumar haft áhrif á sum verka minna.

Hefur lista­mann­inum sem lærði í Rík­is­aka­dem­í­unni í Flórens dreymt list­verk?

„Já, mig hefur sann­ar­lega dreymt lista­verk, en satt best að segja þá voru þau svo stórkost­leg í draumunum að ég fann þegar ég vakn­aði að þau væru algjörlega ann­ars heims og ég væri ekki að fara að mála þau. En hins vegar gæti verið að í undi­með­vit­und­inni hafi þessir draumar haft áhrif á sum verka minna og fundið sér leið í gegnum draumana beint á strig­ann.“

Hér er hægt að nálg­ast frek­ari upp­lýs­ingar um list Maríu.

https://www.facebook.com/msjart/

mari­asj_art

[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi