Facebook lokaði á aðdáendasíðu Hugleiks Dagssonar í gær fyrir að hafa brotið og oft reglur síðunnar. Myndasagan sem gerði útslagið gerir grín að byssueign.
Hugleikur skrifaði færslu á Twitter-reikningi sínum þar sem hann segir frá refsingu Facebook. Færslan er á ensku en er hér þýdd: „Þá hefur Facebook fjarlægt aðdáendasíðu mína því ég braut reglur þeirra einu sinni of oft. Það er sanngjarnt. Verk mín eru ekki allra, og það er gott mál. Ég trúi því að þessi teikning hafi gert útslagið. Hægt er að nálgast prentútgáfu af verkinu hér: https://dagsson.com/collections/prints.“
Og hér er verkið:

Húmor og ádeila er frábær blanda.





















Athugasemdir