Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Niðurstaða Hæstaréttar setur rétt kvenna til þungunarrofs í hættu

Niðurstaða Hæstaréttar setur rétt kvenna til þungunarrofs í hættu
Mynd/skjá­skot RÚV

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna sneri í dag við for­dæmi sínu, best þekktu sem Roe gegn Wade, sem tryggt hefur konum stjórn­ar­skrár­var­inn rétt til þung­un­ar­rofs. Dómur Hæsta­rétts gerir það að verkum að ríki Banda­ríkj­anna hafa nú aukið svig­rúm til þess að setja eftir atvikum veru­legar tak­mark­anir á þung­un­ar­rof eða banna það alfarið.

Mál Roe gegn Wade er dómafor­dæmi frá árinu 1973 sem hefur, allt frá því að dóm­ur­inn féll, tryggt konum rétt til þung­un­ar­rofs ásamt síð­ari hæsta­rétt­ar­dómum. Nið­ur­staða Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna í dag heim­ilar það að lög um bann við þung­un­ar­rofi eftir fimmt­ándu viku með­göngu fái að standa í Miss­isippi. Það gengur gegn hinu ára­tugagamla for­dæmi.

Samuel Alito, einn af sex íhalds­sömum dóm­urum við rétt­inn, skrifar í meiri­hluta­á­liti dóm­ar­anna að dóm­ur­inn í máli Roe gegn Wade hafi verið rangur frá upp­hafi. Rök­stuðn­ing­ur­inn hafi verið veikur og að hann hafi haft skað­legar afleið­ingar.

Hinir þrír dóm­ar­arnir, sem eru frjáls­lyndu dóm­ar­arnir við rétt­inn, sögðu að með dómnum væri rétt­ur­inn að svíkja grund­vall­ar­hug­sjónir sínar.

Dómafor­dæmið í máli Roe gegn Wade tryggði konum rétt til þess að gang­ast undir þung­un­ar­rof áður en fóstur teld­ist líf­væn­legt, sem yfir­leitt er í kringum 24. viku með­göngu. Ríki í Banda­ríkj­unum sem stjórnað er af repúblikönum hafa und­an­farin ár sett upp sífellt strang­ari tak­mark­anir á þung­un­ar­rof.

Málið kom fyrst upp í síð­asta mán­uði þegar meiri­hluta­á­lit­inu var lekið í fjöl­miðla. Málið vakti mikla reiði, ekki bara í Banda­ríkj­unum heldur um allan heim. Um er að ræða sigur fyrir íhalds­sama and­stæð­inga þung­un­ar­rofs í Banda­ríkj­unum, sem barist hafa gegn því í mörg ár.

Mikil ólga er nú í Banda­ríkj­unum vegna máls­ins og vart þver­fótað fyrir úrskurð­inum og við­brögðum í fjöl­miðlum þar ytra.

Tvær fyrrum for­seta­frúr Banda­ríkj­anna hafa stigið fram og tjáð sig um málið. Það eru þær Michelle Obama og Hillary Clinton, sem einnig var utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna í for­seta­tíð Barracks Obama og mót­fram­bjóð­andi Donalds Trump í for­seta­kosn­ing­unum þegar hann fór með sigur af hólmi. Báðar hafa kon­urnar for­dæmt ákvörðun Hæsta­rétts Banda­ríkj­anna. Obama sagð­ist vera miður sín vegna máls­ins, meðal ann­ars fyrir hönd sam­landa sinna sem hefðu nú misst grund­vall­ar­rétt til þess að taka upp­lýstar ákvarð­anir um sinn eigin lík­ama.

„Ákvörðun Hæsta­rétts­ins í dag mun ávallt lifa í minni okkar sem skref aftur á bak í rétt­indum kvenna og mann­rétt­indum,“ sagði Hillary Clinton.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife