Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ: Ég endaði á stöðum sem mig langaði ekkert að vakna upp á

Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ: Ég endaði á stöðum sem mig langaði ekkert að vakna upp á

Anna Hildur Guð­munds­dóttir, for­maður SÁÁ, ræðir við Reyni Trausta­son meðal ann­ars um átökin innan SÁÁ, mál­efni sam­tak­anna og starf­semi og sína eigin reynslu af drykkju og með­ferð. Hún starfar sem áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi á Akureyri og segir að því lengur sem við­kom­andi gefi sér tíma til þess að vinna í sjálfum sér og gefur sér tíma til þess að fara í með­ferð og sinna með­ferð­inni því meiri bata­líkur.

Anna Hildur Guð­munds­dóttir er nýkjör­inn for­maður SÁÁ. Anna Hildur var reyndar for­maður fyrir og gekk í gegnum mik­inn slag. Hvernig líður henni?

„Ég er svo­lítið þreytt. Ég er smátimbruð eins og maður myndi segja; eins og ég hafi lent undir valt­ara. En mér líður rosa vel og er ennþá svo­lítið hátt uppi en ég hlýt að nálg­ast jörð­ina mjög fljót­lega,“ segir hún í við­tali við Reyni Trausta­son.

Maður skilur ekki þessi læti öll. Út á hvað gengur þetta?

„Ef ég vissi það. Þetta eru smá­valda­á­tök, held ég.“

Ekki smá. Það logar heil stjórn.

Mér finnst þetta ekki sam­tök­unum sæm­andi.

„Já, það gerir það. Mér finnst erfitt að tala um þetta. Mér finnst þetta ekki sam­tök­unum sæm­andi. Þess vegna finnst mér erfitt að tala um þetta og hafa ein­hvern veg­inn orð á því. En jú, það hafa verið átök um stjórn­ina og erfið átök. Lítil sam­vinna í raun og veru frá ákveðnum hópi.“

Innan stjórnar?

„Já, sem eru til­bún­ari að gagn­rýna heldur en ræða um hvernig við getum gert hlut­ina á annan hátt.“

Um er að ræða 48 manna aðal­stjórn og svo er níu manna fram­kvæmda­stjórn.

Reynir seg­ist sýn­ast að þetta gangi út á að goð­sögnin Þórarinn Tyrf­ings­son, sem vann gríð­ar­lega gott starf á sínum tíma, hætti og sjái svo eftir því og vilji koma aftur. Er það málið?

Ég ber mikla virð­ingu fyrir honum.

„Já og nei. Ég kom inn í stjórn­ina fyrir tveimur árum síðan og þá var Þórarinn hættur. Ég ber mikla virð­ingu fyrir honum af því að hann hefur gert ótrú­lega mikið fyrir þessi mál; fyrir stöðu ein­stak­linga með fíkni­sjúk­dóma. Hann vann hörðum höndum hjá SÁÁ í tugi ára og frá­bært starf sem hefur verið unnið og sam­tökin eru byggð á rosa­lega góðum grunni. Við megum ekki gleyma því. En við erum að þró­ast. Og við erum að breyt­ast. Og sam­fé­lagið okkar er að breyt­ast; það hafa orðið hraðar breyt­ingar í sam­fé­lag­inu. Og í dag er kraf­ist miklu meiri sam­vinnu. SÁÁ var oft og tíðum svo­lítið eyland; sá um sín mál. En í dag gengur það ekk­ert upp. Við þurfum þessa sam­vinnu við allar hinar stétt­irnar í heil­brigð­is­geir­anum og á vel­ferð­ar­svið­inu.“

Fáránlegt

Það gustaði á aðal­fund­inum sem var hald­inn nýlega.

„Það var verið að kjósa um 16 manns í aðal­stjórn­ina og það voru tveir listar. Auðvitað er þetta ein­stak­lings­fram­boð að bjóða sig fram en eins og þetta er, hefur verið boðið fram hópur saman sem er líka alveg fárán­legt af því að það þarf að opna þetta. Ef fólk hefur áhuga á að vinna fyrir sam­tökin þá á það að geta boðið sig ein­hvern veg­inn fram. En það er eng­inn vett­vangur fyrir það. Á aðal­fund­inum kemur bara fram hópur af fólki: „Við ætlum að bjóða okkur fram í stjórn­ina.“ Það er ekk­ert ferli,“ segir Anna Hildur og segir að þetta þurfi að laga.

Þetta eru stærstu almanna­heilla­sam­tökin.

Er það þá ekki verk­efni?

„Jú, það er verk­efni sem við ætlum að fara í og þetta er lands­sam­band. Þetta eru stærstu almanna­heilla­sam­tökin. Við erum með á milli 6.000 og 7.000 félags­menn sem eru skráðir hjá SÁÁ alls staðar að af land­inu en þú þarft að vera í Reykja­vík til að eiga atkvæð­is­rétt eða koma til Reykja­víkur á aðal­fund. Það er mis­mun­ur­inn í því.“

En stóru tíð­indin eru að Þórarinn bauð sig fram og náði ekki inn í stjórn.

Opna samtökin

Anna Hildur er spurð hvort meiri pen­ingur sé stóra málið fyrir SÁÁ.

„Ekkert endi­lega meiri pen­ingur. Auðvitað viljum við fá meiri pen­ing, en það er ekk­ert krafa. Við fáum 1,1 millj­arð frá rík­inu sem við erum með samn­ing um eða næstum því 1,3 millj­arð. Svo erum við að safna rosa­lega miklum pen­ingum. Og auð­vitað viljum við safna meiru. Svo er bara að fara vel með það sem við höfum. Ráðstafa því rétt. Það er það sem skiptir máli.“

Þannig að þú ert ekk­ert að kalla eftir stór­auknum fjár­veit­ingum heldur horfa meira á hvað þið gerið við pen­ing­ana.

Bið­tím­inn inn í með­ferð er ekk­ert langur.

„Já, og líka að við fáum greitt fyrir sjúkra­húss­þjón­ust­una af því að í dag erum við að borga með sjúkra­húss­rekstr­inum; sam­tökin veita sjúkra­húss­rekstr­inum styrk til þess að ná endum saman þar. En draum­ur­inn væri auð­vitað að það væri gerður samn­ingur um sjúkra­húsið Vog. Og þá gætum við nýtt pen­ing­ana sem við söfnum í að þróa alls konar úrræði. Bjútíið í SÁÁ er líka að við erum alltaf að bregð­ast við vand­anum sem er hverju sinni af því að við ráðum okkur svo­lítið sjálf. Þannig að við erum þá oft að bregð­ast við ástand­inu í þjóð­fé­lag­inu hverju sinni sem er frá­bært. Við vitum hvað heil­brigð­is­kerfið er þungt í vöfum; bara erfitt að fá þjón­ustu á geð­deildum og fleiru. En það er ekki þannig hjá okkur. Það er mjög auð­velt og bið­tím­inn inn í með­ferð er ekk­ert langur. Ef þú ert að koma í fyrstu komu og hefur aldrei komið áður þá ertu að bíða í hálfan mánuð; þú hringir, færð dag­setn­ingu og færð pláss eftir hálfan mánuð. Og það er ekki langur bið­tími. Það er eng­inn bið­tími af því að fólk þarf að gera ráð­staf­anir. Þú þarft kannski að koma börn­unum þínum í pössun eða fá frí í vinn­unni og hitt og þetta. Þannig að sá bið­tími er ekki langur.“

Stóru málin fram undan er að laga lýð­ræðið innan sam­tak­anna þannig að þetta verði allt heil­brigð­ara og dreifð­ara.

Við erum bara öll að þessu saman.

„Við ætlum að opna sam­tökin aðeins meira. Þetta hefur verið svo­lítið lokað finnst okkur og við ætlum að breyta svo­lítið ferl­inu í kringum aðal­stjórn­ina og búa til meiri vinnu­hópa. Við erum búin að vera í innri grein­ing­ar­vinnu og fengið til okkar utan­að­kom­andi aðila til að hjálpa okkur að gera það. Og við erum búin að vera að búa til ýmsa umbóta­hópa í starf­sem­inni. Við höfum verið að vinna neðan frá og erum núna að fara að byrja umbóta­vinn­una ofan frá. Þannig að við mæt­umst á miðri leið. Þetta er að virka og þetta er allt í sam­tali og sam­vinnu. Það er ekk­ert þannig að ein­hver einn ráði í dag. Við erum bara öll að þessu saman. Fram­kvæmda­stjórnin er rosa­lega virk.“ Níu manns eru í fram­kvæmda­stjórn­inni eins og þegar hefur komið fram. „Og við vinnum vel með stjórn­endum með­ferð­ar­sviðs þannig að það er skemmti­legt verk­efni fram undan.“

Krafa upp á 37 milljónir

Hvað með þetta sjúkra­trygg­inga­mál? Er búið að leysa það?

„Það er ekki búið að leysa það. En það er í vinnslu. Það fór kæra inn til rík­is­sak­sókn­ara sem við vitum ekk­ert hvað er um; við höfum ekk­ert fengið að vita það.“

Út á hvað gekk þetta?

„Þetta gekk út á fjar­þjón­ust­una. Við vorum undir eft­ir­liti; fengum eft­ir­lit á okkur og þetta er sá liður sem heitir „fjar­þjón­usta“ af því að það var ekki samn­ingur við Sjúkra­trygg­ingar um fjar­þjón­ustu. Og við veittum fjar­þjón­ustu í Covid og fáum kröfu á okkur upp á 37 millj­ónir um það sem við erum samt búin að bak­færa í dag.“

Við veittum þjón­ust­una en við máttum ekki veita hana.

Um 37 millj­ónir til end­ur­greiðslu?

„Já. Við veittum þjón­ust­una en við máttum ekki veita hana.“

Þetta voru sím­töl.

„Já, sem við máttum ekki veita af því að það er ekki samn­ingur um fjar­þjón­ustu.“

37 millj­ónir eru svo­lítið högg.

„Já, en við ráðum alveg við það. Krafan var upp­haf­lega um 174 millj­ónir en við erum búin að vera í sam­tali við Sjúkra­trygg­ingar um rest­ina sem er þá í nýjum heild­ar­samn­ingum og þær samn­inga­við­ræður eru hafnar. Þetta eru gamlir samn­ingar og þurfa heild­ar­skoðun. Við þurfum að gera samn­inga um þjón­ustu sem við erum að veita í dag; ekki um þjón­ustu sem við vorum að veita fyrir fimm árum, átta árum eða 10 árum síðan. Það er svo margt búið að breyt­ast.“

Þannig að fram­tíðin er sú að gera þetta enn þá sterkara.

„Enn þá sterkara. Enn þá betra og halda áfram að leiða þessa vinnu sem er hérna á Íslandi. Við erum leið­andi í þess­ari vinnu á heims­vísu. Ég held að þetta þekk­ist ekki neins staðar ann­ars staðar svona sam­tök eins og SÁÁ. Og þetta er svo mik­ill fjár­sjóður.“

Vinna með áföllin

Anna Hildur er spurð hvað mik­il­væg­ast sé að gera til þess að lækn­ingin gangi betur. Hverju þurfa þau að breyta eða hvaða skref þarf að stíga? Hvernig er best að ná utan um vand­ann hverju sinni?

„Fyrsta skrefið er kannski að fara í við­tal hjá ráð­gjafa; bara átta sig á hver vand­inn er og hvað þurfi að gera. Það þarf að finna út hvort við­kom­andi þurfi að fara í inniliggj­andi með­ferð eða í göngu­deild­ar­með­ferð.“ Ef inniliggj­andi með­ferð er valin þarf að panta pláss á Vogi . „Þegar þú ert kom­inn inn á Vog þá finnum við út hvort þú þarft að fara í göngu­deild­ar­með­ferð eftir Vog eða inniliggj­andi með­ferð upp á Vík. Það er svo mik­il­vægt að greina hver vand­inn er þannig að þú fáir réttu með­höndl­un­ina.“

Við þurfum að skoða áföllin.

Anna Hildur segir að það fari eftir ástandi hvers og eins þegar hann kemur inn á Vog hvaða þjón­ustu hann fær; hvort hann þurfi mikla afeitrun eða ekki. „Síðan ferðu í þá hóp­með­ferð sem þú þarft á að halda.“

Á hvaða leið erum við sem þjóð?

„Við vitum alltaf meir og meir og erum alltaf að læra meira og meira. Það sem við erum kannski að átta okkur meira á er hvað þetta er oft og tíðum flókið; öll áföllin. Að vinna með áföllin. Hér áður fyrr var bara svo­lítið unnið með fíkn­ina; þú þurftir bara að vera edrú. Við þurfum að skoða áföllin. Það eru margir að glíma við alls konar áföll. Við þurfum að vinna með þau.“

Vond tilfinning

Anna Hildur er búin að vera edrú í 19 ár.

„Þegar ég hætti fyrir 19 árum síðan datt mér aldrei þetta í hug sem ég er búin að upp­lifa. Maður fer að upp­lifa frelsið. Og þetta val; ætla ég að vera inni í ein­hverjum aðstæðum sem mér líður ekki vel í eða ætla ég að fara út úr þeim? Það val hafði maður aldrei.“

Hún var ung þegar hún byrj­aði að drekka og djamma. „Mér fannst það vera ógeðs­lega gaman en drakk alltaf mikið og illa og lenti í aðstæðum sem maður átti ekk­ert að lenda í; ég end­aði á stöðum sem mig lang­aði ekk­ert að vakna upp á.“

Maður var fastur. Þetta var svo vond til­finn­ing.

Hún var 32 ára þegar hún hætti. „Ég var komin með tvö börn og var búin að gifta mig og þetta var farið að hafa svo­lítil áhrif á hjóna­bandið; barns­faðir minn er óvirkur. Og auð­vitað hafði þetta trufl­andi áhrif. En aðal­lega var þetta von­leysi og þessi ofboðs­lega óánægja með sjálfa sig og lífið. Og hnút­ur­inn; þessi stóri hnútur sem er innan í manni. Og ein­hvern veg­inn alveg sama hvað maður gerði – það gerð­ist aldrei neitt. Maður var fastur. Þetta var svo vond til­finn­ing.“

Hún var komin í dag­drykkju.

„Rauð­vínið var gott. Ég bjó á Spáni. Svo skildi ég aldrei þetta nöldur í fólki þegar það var að hafa áhyggjur af mér; mér fannst ég ekk­ert vera leið­in­leg.“

Dugði þér ein atrenna til að hætta?

„Já.“

Það er svo­lítið gæfa.

„Já, það er svo.“

Frekar en að ströggla.

Ég fór eftir þessum leið­bein­ingum.

„Já, ég var rosa­lega hlýðin. Ég verð að við­ur­kenna það. Ég fór eftir þessum leið­bein­ingum. Ég fór á Vog og ég fór á Vík. Svo fór ég aftur til Spánar og fékk aðstoð í gegnum síma frá ráð­gjaf­anum mínum á göngu­deild­inni. Svo fór ég á AA-fundi og stofn­aði ásamt vin­konu minni deild á Kanarí­eyjum þar sem ég bjó og nýtti mér það pró­gramm. Svo not­aði ég þetta dags­plan sem var alltaf verið að tala um í með­ferð­inni sem er að passa svefn­inn sinn, passa að hreyfa sig, passa að borða og reyna að slaka á og stunda ein­hverja sjálfs­skoðun. Ég tók þessu öllu mjög alvar­lega.“

Þannig að þú fylgdir öllum reglum.

„Já.“

Koma augnablik

Vogur.

Hvernig var til­finn­ingin að vera komin inn á Vog? Er maður ekki settur í nátt­föt?

„Jú. Mér fannst þetta rosa erfitt og ég grenj­aði fyrstu tvo dag­ana. Hugsaði bara „hvert er ég komin? Anna Hildur bara komin inn á Vog“. Þetta stóð ekki á neinum mark­mið­a­lista eða á ein­hverju plani hjá mér.

Alveg ofboðs­lega erfitt.

Ég var heima­vinn­andi hús­móðir með tvö lítil börn þannig að mér fannst þetta erfitt; alveg ofboðs­lega erfitt. En fatt­aði mjög fljót­lega að þarna átti ég heima. Ég tengdi rosa­lega fljótt við að hugs­an­lega, mögu­lega, kannski var þetta bara minn vandi; að áfengi og Anna Hildur væri ekki gott par. Þetta er enda­laus vinna.“

Þú getur ekk­ert slakað á þótt þú sért komin alla þessa leið?

„Ekki kannski slakað á; auð­vitað er maður aðeins slak­ari. Þetta er orð­inn meiri lífs­stíll hjá manni. En ég er alltaf með þetta á bak við eyrað að áfengi og ég eigum ekki vel saman.“

Gætir þú fallið?

„Já, ég held að allir geti fallið ef þeir passa ekki upp á sig.“

Anna Hildur segir að það hafi stundum komið augna­blik þegar hún er með vin­konum sínum að sig langi til að vera með þegar ákveðin stemmn­ing er í gangi en hún er sú eina sem drekkur ekki. „En fimm til 10 sek­úndum seinna þá „nei, mig langar ekki að vera með“.“

Hún seg­ist ekki fara mikið á fundi. „En ég er með gott stuðn­ings­net. Maðurinn minn er óvirkur og ég á vin­konu sem er Al-Anon-mann­eskja og ég á rosa­lega gott tengsla­net. Af því að þegar ég var ráð­gjafi hjá SÁÁ og var að vinna fyrir norðan þá var stundum mjög erfitt í svona litlu sam­fé­lagi að vinna sem ráð­gjaf­inn og vera svo líka á AA-fundum. Það verða kannski smá óþæg­indi en samt á það ekki að vera. Maður er bara mann­legur.“

Það er kannski erfitt fyrir þig að vera á AA-fundi með skjól­stæð­ingi þínum.

„Til dæmis. Þannig að ég bjó mér til stuðn­ings­net. Ég hreyfi mig mikið. Ég fer mikið út að labba. Ég hef vanið mig á það að reyna að labba alltaf eftir vinnu­dag­inn vegna þess að þá nær maður að hreinsa haus­inn og losa aðeins um spenn­una eftir dag­inn. Svo nota ég sundið mikið. Við erum for­rétt­inda­þjóð að fá að fara í sund. Það er nátt­úr­lega bara geggjað.“

Alltaf von

Jú, Anna Hildur Guð­munds­dóttir er áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi og vinnur sem slíkur hjá Akur­eyr­arbæ. „Ég vann hjá SÁÁ í mörg ár. Ég vann hjá þeim í 11 ár; ég byrj­aði að vinna hjá SÁÁ 2005 og hætti 2016.“

Fylgir ekki þessu starfi sárs­auki; ertu ekki að horfa upp á ótal harm­leiki?

Þetta er rosa­lega erfið vinna.

„Jú, þetta er erfið vinna. Þetta er rosa­lega erfið vinna. En við fáum líka ofboðs­lega góða hand­leiðslu og það er haldið vel utan um okkur sem starfs­menn og ráð­gjafa. Það er svo mikið af verk­færum sem við höfum til þess að vinna með okkur líka og við vinnum í dag í teymum þannig að við höldum mikið utan um hvert annað líka.“

Hverjar eru bata­horf­urnar?

„Því lengur sem þú gefur þér tíma til þess að vinna í sjálfum þér og gefur þér tíma til þess að fara í með­ferð og sinna með­ferð­inni því meiri bata­líkur. Og það er talað um að ef þú sért í meira en þrjá mán­uði í með­ferð – þá meina ég að fara kannski á Vog eða fara í göngu­deild­ar­með­ferð – og sækja síðan stuðn­ing eftir það, það gæti verið göngu­deild, þá eru 60% meiri líkur á því að þú sért þá edrú í lok árs­ins. Því að því lengri sam­skipti sem þú hefur við fag­fólk því meiri líkur eru á að þú náir að vera edrú lengur.“

Er alltaf von hjá öllum?

„Já.“

Það er alltaf von?

„Já, ég trúi því. Annars gæti ég ekki verið að vinna þessa vinnu.“

En tekur þú aldrei inn á þig þegar þú ert búin að vera að hlúa að ein­hverjum og svo fellur hann?

„Jú, auð­vitað. Rosalega. Og maður verður stundum ofboðs­lega svekktur og líður illa og stundum verður maður reiður. En þá á sama tíma verður maður að hugsa vel um sjálfan sig. Ég hugsa vel um mig.“

Sam­fé­lagið hefur verið gjarnt að líta niður á rón­ana eins og við segjum eða drykkju­fólkið og kalla þetta aum­ingja­skap og alls konar. Er þetta við­horf ekki að breyt­ast til­tölu­lega hratt?

Það geta verið mörg atriði sem þarf að vinna í.

„Jú, ég held það. Þess vegna þarf þessa sam­fellu og þessa sam­þætt­ingu og fleira að vinna saman af því að það er ekki bara nóg að fara bara í afeitrun og fara síðan í með­ferð. Það þarf að skoða hús­næð­is­mál við­kom­andi. Það eru svo margir þættir sem þurfa oft og tíðum að smella saman til þess að ein­stak­lingar nái bata. Það er ekki bara eitt­hvað eitt. Það geta verið mörg atriði sem þarf að vinna í og þá þarf maður að byrja ein­hvern veg­inn að for­gangs­raða. Hvað ætlum við að byrja að gera? Hvað getum við gert svo? Þannig að eitt leiði af öðru. Það er líka fullt af fólki sem langar ekk­ert að hætta í neyslu akkúrat núna en við getum samt aðstoðað það á ein­hvern hátt til þess að bæta lífs­gæði þess.“

Epli og appelsínur

Er þetta ekki genetískur sjúk­dómur?

„Jú, að hluta til.

Ég á tvær dætur og við erum bæði óvirkir alkó­hólistar, for­eldr­arnir. Og maður auð­vitað fékk smá í mag­ann með börnin sín. Verða þau eins og við? Og þá byrjar maður að svitna og fær and­köf. En maður sér alveg tendensana; maður sér ákveðna hegðun en á sama tíma búa börnin okkar að okkur sem erum í lagi. Og við erum ekki að glíma við vand­ann enn þann dag í dag. Þá er nátt­úr­lega stuðn­ings­netið miklu betra.“

Það var nátt­úr­lega ekk­ert hérna áður fyrr.

„Nei, þetta eru bara tveir ólíkir tímar. Það er ekki hægt að bera þetta saman. Þetta eru bara epli og app­el­sína.“

Anna Hildur er spurð hvort hún hafi séð krafta­verk í þessum bransa.

„Já, oft og tíðum. Á hverju ári.

Það er það sem vinnan gengur út á. Oft og tíðum eru þetta erf­iðar fæð­ingar. Batinn er oft lengi að ger­ast. Og fæð­ingin er erfið. En svo þegar þetta ger­ist þá er þetta svo magnað.

Þegar maður er að sjá fólkið sitt þegar það er komið í sam­band, farið að vinna og komið með börn og ein­hvern veg­inn lífið leikur við það: Oh, æðis­legt. Þetta er geggjað.“

Hægt er að sjá við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi