Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristinn segir Tyrkland stjórna NATO: „Norrænar þjóðir verða að gefa eftir og lúffa“

Kristinn segir Tyrkland stjórna NATO: „Norrænar þjóðir verða að gefa eftir og lúffa“
Kristinn Hrafns­son

Fréttir bár­ust í vik­unni að Tyrki hefðu á fundi NATO í Madríd, sam­þykkt að beita ekki neit­un­ar­valdi sínu gegn aðild Svía og Finna að varn­ar­banda­lag­inu. Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks bendir á í færslu, sem hann kallar Tyrknesk-Ameríska hern­að­ar­banda­lagið, á Facebook, aug­ljósa hræsni Nato þegar kemur að Tyrk­landi.

Í byrjun færsl­unar bendir Kristinn á árás Tyrkja á vopn­aðar sveitir Kúrda í Sýrlandi sem börð­ust gegn hryðju­verka­sam­tök­unum ISIS en Haukur Hilm­ars­son barð­ist með þeim, allt þar til hann féll í sprengjuregni Tyrk­lands­hers.

„Samkvæmt fréttum hafa Tyrkir nú fallið frá neit­un­ar­valdi sínu gegn aðild Svía og Finna að NATO og segj­ast hafa fengið sitt í gegn. Tyrkir vildu stöðva það sem þeir sáu sem lin­kind þess­ara ríkja gagn­vart stórn­mála­flokki Kúrda, PKK og vopnðum sveitum Kúrda YPG. Haukur Hilm­ars­son barð­ist við hlið YPG í Sýrlandi gegn ISIS en féll þegar vopn­aðar sveitir Tyrkja og stuðn­ings­liða réð­ust inn í sýr­lenska hér­aðið Afrin, suður af landa­mærum Tyrk­lands. Héraðið var her­tekið, íbú­arnir flæmdir á brott og tóm húsin síðan yfir­tekin af lið­sveitum islamskra öfga­manna.“

Rit­stjór­inn fer svo yfir kröfur Tyrkja á NATO fund­inum.

„Tyrkir skil­greina PKK sem hryðju­verka­sam­tök og gerðu kröfu um að Svíar og Finnar tækju undir þá skil­grein­ingu – ella yrði aðild þeirra að NATO hindruð. Einnig vilja Tyrkir fram­sal Kúrda frá þessum löndum og að þau falli frá efna­hags­legum refsi­að­gerðum gegn Tyrkjum. Ekki er auð­fundið hvað Svíar og Finnar féllust á í þessum efnum en sam­kvæmt fréttum verður hryðju­verka­lög­gjöf breytt innan tíðar í Svíþjóð.

Tyrkir segj­ast ein­fald­lega hafa fengið það sem þeir vildu.“

Þá bendir Kristinn á dæmi um vald Tyrk­lands innan NATO en Tyrkir hafa verið ófeimnir að nota neit­un­ar­vald til að koma sínu fram.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tyrkir ráða stefnu NATO ríkja í mál­efnum Kúrda. Þannig lögð­ust þeir gegn því að Anders Fogh Rasmus­sen yrði fram­kvæmda­stjóri NATO árið 2009 nema Danir beittu sér gegn Kúrdum þar í landi. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem fram komu í banda­rískum diplómata­skjölum sem WikiLeaks birti 2010 féllust Danir á að loka sjón­varps­stöð Kúrda sem rekin var í land­inu og end­ur­varp­aði meðal ann­ars til Tyrk­lands.

Vald Tyrkja innan NATO er því mikið því full sam­staða allra ríkja þarf að vera um leið­toga­val og nýja með­limi. Neit­un­ar­vald er því póli­tískt vopn og hafa Tyrkir verið ófeimnir við að beita því.“

Að lokum bendir Kristinn á hræsn­ina sem NATO er sekt um en þar eiga mann­rétt­indi að vera ofar­lega á baugi en Tyrk­lands­stjórn brýtur ítrekað á mann­rétt­indum þegna sinna.

„Í Tyrk­landi eru stjórn­ar­and­stæð­ingar og blaða­menn fang­els­aðir. Ekkert fjöl­miðla­frelsi er í land­inu. Tæpast því lýð­ræði.Á hátíð­is­stundum er full­yrt í lof­ræðum að límið í NATO sé háleit gildi um mann­rétt­indi, frelsi og lýð­ræði. Ekkert af þessu er tryggt í Tyrk­landi sem fær sínu fram­gengt innan NATO með neit­un­ar­valdi. Norrænar þjóðir innan banda­lags­ins verða að gefa eftir og lúffa.Kjöl­festu­ríki NATO í austri og vestri, Banda­ríkin og Tyrkland, ráða þessu banda­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi