Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lenya spyr hvers vegna Sigmundi er hleypt í útvarpið: „SDG er að reyna að búa til fasískt fylgi“

Lenya spyr hvers vegna Sigmundi er hleypt í útvarpið: „SDG er að reyna að búa til fasískt fylgi“
Lenya Rún

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, spyr á Twitter hvers vegna rætt er við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann Mið­flokks­ins, í útvarp­inu. Hún segir nýjasta útspil hans sé að reyna að flytja til Íslands hat­urs­orð­ræðu í garð trans­fólks frá Bret­landi og Banda­ríkj­unum.

Sig­mundur Davíð karp­aði við fyrr í dag við Helgu Völu Helga­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­inar, í Sprengisandi Heimis Karls­sonar á Bylgj­unni. Mest rifust þau um mál­efni trans­fólks, nýj­ustu skot­spón menn­ing­ar­stríðs Vest­ur­landa.

Lenya skrifar: „Afhverju er yfir höfuð verið að gefa Sigmundi Davíð plat­form til að koma sínum skað­legu og mis­vísandi skoð­unum á fram­færi? SDG sér að fas­ismi og hat­urs­orð­ræða í garð trans fólks er að virka meðal íhalds­samra póli­tíkusa í BNA og Bret­landi og vill nýta sér þessa póli­tík á Íslandi.“

Halldór Auðar Svansson, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trú Pírata, tekur undir og segir þetta furðu aug­ljóst hjá Sigmundi. „Já, hann segir þetta meira að segja beint út sjálfur. Vísar alltaf í erlenda umræðu og kvartar yfir því að það sé minni umræða hér. Hann vill deilur um þessi mál af því hann sér fyrir sér að hann muni hafa þar hlut­verk og fylgj­endur.“

Lenya er spurð hvað sé hægt að gera í mál­inu. „En hvernig verður það lagað? Ef það væri ekki SDG að þá væri ein­hver annar tæki­fær­is­inni að nýta sér þessar skoð­anir fólks.And­skot­ans skoð­ana­frelsi,“ skrifar maður nokkur.

Hún svarar: „Kannski ein­stak­lega hættu­legt því SDG er að reyna að búa til eitt­hvað fasískt fylgi hér á Íslandi og nýta sér það í póli­tík­inni. Það munu alltaf vera mann­eskjur með ömur­legar skoð­anir en um leið og maður hefur plat­form til að breyta þessum skoð­unum í lög er það hættu­legra.“

Fleiri gagn­rýna Bylgjuna að hleypa Sigmundi í útvarpið, líkt og Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Trans Íslands. Hún segir í pistli sem má lesa í heild sinni hér fyrir neðan að flest sem Sig­mundur sagði hafi verið bull. Ugla segir líkt og Lenya og Halldór að veg­ferð Sig­mundar sé aug­ljós.

„Sú til­raun til að grafa undan rétt­inda­bar­áttu trans fólks og hinsegin fólks með vísun í kven­rétt­indi er því lítið annað en illa ígrunduð yfir­hylm­ing og van­þekk­ing á þessum mála­flokkum. Svona taktík er sam­bæri­leg þeim aðferðum þegar rétt­indum öryrkja og eldra fólks er etjað gegn inn­flytj­endum og hæl­is­leit­endum. Þessar aðferðir eru því mjög lævísar og slóttugar, og til þess gerðar að grafa undan rétt­inda­bar­áttu frekar en að vernda fólk,“ skrifar Ugla.

Pistill Uglu í heild sinni

Var að hlusta á Bylgjuna af ein­skærri til­viljun í morgun — og þar voru þau Helga Vala og Sig­mundur Davíð að tala um kyn­vit­und. Þar fór SDG með alls­konar fleipur um lög um kyn­rænt sjálf­ræði, og tal­aði ítrekað niður til rétt­inda­bar­átt­unar, eða aktí­visma, og mik­il­vægi hennar í tengslum við laga­setn­ingar.

Þar má helst nefna að hann tal­aði um að það hefðu verið hópar aktí­vista sem skrif­uðu lög um kyn­rænt sjálf­ræði, og þar hefði lög­gjaf­inn verið að afsala sér völdum til þeirra.

Þetta er auð­vitað stór­kost­lega mikil þvæla — og líka gríð­ar­leg van­virð­ing við það starf sér­fræð­inga og fag­fólks sem kom að smíðum frum­varps um kyn­rænt sjálf­ræði.

Sá hópur sem kom að smíðum þessa frum­varps var fólk úr gras­rót­inni, lög­fræð­ingar, kynja­fræð­ingar, félags­fræð­ingar, sið­fræð­ingar, þing­fólk, og sprenglært fólk og aðrir sér­fræð­ingar í mál­efnum hinsegin fólks.

Þessi vinna tók hátt í fjögur ár og var haft ríkt sam­ráð við allar helstu stofn­anir, hags­muna­fé­lag, kven­rétt­inda­fé­lög og önnur mann­rétt­inda­sam­tök. Að smætta vinnu þessa hóps niður í ein­hvern “hóp aktí­vista” á niðr­andi hátt lýsir engu nema van­þekk­ingu og van­þóknun hans á rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks.

Þegar að frum­varpið fara svo í hendur ráðu­neytis og inn í ferli á Alþingi þá fór það algjör­lega úr okkar höndum. Þá fer frum­varpið inn í nefnd, í margar umræður á Alþingi og þar af lokum í atkvæða­greiðslu. Í því ferli breytt­ist ýmis­legt frá frum­varp­inu sem við skil­uðum af okkur, enda lög­gjaf­inn með valdið til þess. Þegar kemur að atkvæða­greiðslu þá tekur þing­fólk með­vit­aða ákvörðun út frá því ferli og áliti sér­fræð­inga — og kusu nær allt þing­fólk með frum­varp­inu, að und­an­skyldum Mið­flokknum. Þetta á ekk­ert við um þetta frum­varp, heldur vænt­an­lega öll frum­vörp, sem eru unnin í sam­ráði við sér­fræð­inga á við­eig­andi sviðum.

Svo eru stað­hæf­ingar að þessi lög stang­ist á við rétt­indi kvenna auð­vitað úr lausu lofti gripin— enda studdu öll helstu mann­rétt­inda­sam­tök frum­varpið, þar með talið Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands. Samstarf milli Kven­rétt­inda­fé­lags­ins og Trans Íslands hefur til að mynda verið mjög gott und­an­farin ár, og er TÍ eitt af þeirra með­limum.

Það hlýtur að telj­ast vand­ræða­legt fyrir SDG að gera sig út fyrir að vera vernd­ari kven­rétt­inda — en kynja­halli hafði ekki verið meiri í hans rík­is­stjórn­ar­tíð en síðan 1999, þar sem ein­göngu þrjár af níu ráð­herrum voru konur. Þess má geta að hann kaus líka á móti rýmk­unar til þung­un­ar­rofs á sínum tíma, og getur því seint talist vera mik­ill kven­rétt­inda­fröm­uður, þótt fátt sé nefnt.

Sú til­raun til að grafa undan rétt­inda­bar­áttu trans fólks og hinsegin fólks með vísun í kven­rétt­indi er því lítið annað en illa ígrunduð yfir­hylm­ing og van­þekk­ing á þessum mála­flokkum. Svona taktík er sam­bæri­leg þeim aðferðum þegar rétt­indum öryrkja og eldra fólks er etjað gegn inn­flytj­endum og hæl­is­leit­endum. Þessar aðferðir eru því mjög lævísar og slóttugar, og til þess gerðar að grafa undan rétt­inda­bar­áttu frekar en að vernda fólk.

Ég held það væri því betra að miðlar eins og Bylgjan myndu frekar ræða við raun­veru­lega sér­fræð­inga sem búa yfir þekk­ingu á mála­flokkum. Slíkt myndu skapa mun betri og mál­efna­legri umræður um þessi mál­efni sem eru til þess að upp­lýsa og fræða — í stað þess að hræða og afvega­leiða

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi