Þau Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona, og Haraldur Franklín Magnús, kylfingur, eignuðust dóttur síðasta fimmtudag. Mæðgunum heilsast vel.
Kristjana, sem hefur annast íþróttafréttir á RÚV ásamt fleiri verkefnum á miðlinum, til að mynda sem spyrill í Gettu Bettur, birti mynd á Instagram af nýbakaðri fjölskyldunni, þar sem hún skrifaði: „Við foreldrarnir erum að springa úr hamingju og nýtum nú hvert augnablik í að stara á þetta litla meistaraverk.“
„Sjálfur er ég fullur þakklætis og er að springa úr ást á stelpunum mínum. Gríðarlega spennandi tímar fram undan,“ skrifaði Haraldur í færslu sem hann birti á Facebook í gærkvöldi.
Þetta er fyrsta barn þeirra Kristjönu og Haraldar. Þau lýsa yfir þakklæti sínu til heilbrigðisstarfsfólksins sem kom að bæði meðgöngu og fæðingu.
Mannlíf óskar litlu fjölskyldunni innilega til hamingju!































Athugasemdir