Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ugla Stefanía svarar Sigmundi fullum hálsi: „Illa ígrunduð yfirhylming og vanþekking“

Ugla Stefanía svarar Sigmundi fullum hálsi: „Illa ígrunduð yfirhylming og vanþekking“
Ugla Stefanía og Sig­mundur Davíð.

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, kynja­fræð­ingur og bar­áttu­kona fyrir rétt­indum trans­fólks gagn­rýnir Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann Mið­flokks­ins, harka­lega vegna ummæla sem hann við­hafði í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni. Hún segir mál­flutn­ing hans bera vott um „van­þekk­ingu og van­þóknun“ á rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks.

Þing­menn­irnir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Helga Vala Helga­dóttir voru gestir Heimis Karls­sonar í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í gær. Þar ræddu þau þátt Alþingis í rétt­inda­bar­áttu hópa, umburð­ar­lyndi í sam­fé­lags­um­ræðu og þróun íslenskrar tungu. Sér­stak­lega var rætt um breytta heims­mynd og þróun í málum hinsegin fólks, til að mynda með lögum um kyn­rænt sjálf­ræði.

Ugla Stefanía, sem er fyrrum for­maður Trans Ísland, skrif­aði færslu á Facebook eftir þátt­inn þar sem hún gagn­rýnir orð­ræðu Sig­mundar Davíðs harð­lega. Hún segir hann hafa farið „með alls­konar fleipur um lög um kyn­rænt sjálf­ræði“ og talað „ítrekað niður til rétt­inda­bar­átt­unnar, eða aktí­visma, og mik­il­vægi hennar í tengslum við laga­setn­ingar.“

Hún minn­ist sér­stak­lega á ummæli Sig­mundar um að hópar aktí­vista hafi skrifað lög um kyn­rænt sjálf­ræði og að lög­gjaf­inn hafi afsalað sér völdum til þeirra.

Mikil vinna ýmissa sérfræðinga að frumvarpinu

„Þetta er auð­vitað stór­kost­lega mikil þvæla — og líka gríð­ar­leg van­virð­ing við það starf sér­fræð­inga og fag­fólks sem kom að smíðum frum­varps um kyn­rænt sjálf­ræði.

Sá hópur sem kom að smíðum þessa frum­varps var fólk úr gras­rót­inni, lög­fræð­ingar, kynja­fræð­ingar, félags­fræð­ingar, sið­fræð­ingar, þing­fólk, og sprenglært fólk og aðrir sér­fræð­ingar í mál­efnum hinsegin fólks,“ segir Ugla Stefanía.

Hún áréttar að vinnan við frum­varpið hafi tekið hátt í fjögur ár. Ríkt sam­ráð hafi verið haft „við allar helstu stofn­anir, hags­muna­fé­lög, kven­rétt­inda­fé­lög og önnur mann­rétt­inda­sam­tök.“ Hún segir að það að Sig­mundur Davíð smætti vinnu þess­ara hópa niður í „hóp aktí­vista“ lýsi „engu nema van­þekk­ingu og van­þóknun hans á rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks.“

Hún lýsir því að um leið og frum­varpið hafi farið í hendur ráðu­neytis og til afgreiðslu á Alþingi hafi það verið komið úr höndum þess­ara hópa. Þá hafi tekið við nefnda­vinna, umræður í þing­inu og loks atkvæða­greiðsla. Hún bendir á að í með­förum þings­ins hafi margt breyst í frum­varp­inu.

Hún segir að í atkvæða­greiðslu taki þing­fólk með­vit­aða ákvörðun um frum­varpið út frá því ferli sem hafi átt sér stað og áliti sér­fræð­inga. Nær allt þing­fólk hafi kosið með frum­varpi um kyn­rænt sjálf­ræði, að Mið­flokknum und­an­skyldum.

Segir Sigmund seint geta talist kvenréttindafrömuð

Ugla segir þær stað­hæf­ingar að lög um kyn­rænt sjálf­ræði stang­ist á við rétt­indi kvenna úr lausu lofti gripnar. Það hafi haft víð­tækan stuðn­ing allra helstu mann­rétt­inda­sam­taka, til að mynda Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.

„Það hlýtur að telj­ast vand­ræða­legt fyrir SDG að gera sig út fyrir að vera vernd­ari kven­rétt­inda — en kynja­halli hafði ekki verið meiri í hans rík­is­stjórn­ar­tíð en síðan 1999, þar sem ein­göngu þrjár af níu ráð­herrum voru konur. Þess má geta að hann kaus líka á móti rýmk­unar til þung­un­ar­rofs á sínum tíma, og getur því seint talist vera mik­ill kven­rétt­inda­fröm­uður, þótt fátt sé nefnt,“ segir Ugla Stefanía.

„Sú til­raun til að grafa undan rétt­inda­bar­áttu trans fólks og hinsegin fólks með vísun í kven­rétt­indi er því lítið annað en illa ígrunduð yfir­hylm­ing og van­þekk­ing á þessum mála­flokkum. Svona taktík er sam­bæri­leg þeim aðferðum þegar rétt­indum öryrkja og eldra fólks er etjað gegn inn­flytj­endum og hæl­is­leit­endum. Þessar aðferðir eru því mjög lævísar og slóttugar, og til þess gerðar að grafa undan rétt­inda­bar­áttu frekar en að vernda fólk.

Ég held það væri því betra að miðlar eins og Bylgjan myndu frekar ræða við raun­veru­lega sér­fræð­inga sem búa yfir þekk­ingu á mála­flokkum. Slíkt myndu skapa mun betri og mál­efna­legri umræður um þessi mál­efni sem eru til þess að upp­lýsa og fræða — í stað þess að hræða og afvega­leiða,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi