Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kröfufundur vegna trans sundkvenna og keppnisbanns: „Mismunun og útilokun á trans fólki“

Kröfufundur vegna trans sundkvenna og keppnisbanns: „Mismunun og útilokun á trans fólki“

Klukkan sex í dag verður hald­inn kröfufundur fyrir utan skrif­stofur Íþrótta­sam­bands Íslands og Sund­sam­bands Íslands. Þar verður reglum sem banna trans konum að keppa á heims­meist­ara­mótum í sundi mót­mælt. RÚV greinir frá þessu.

Til­gangur kröfufund­ar­ins er að mót­mæla reglum sem Alþjóða sund­sam­bandið sam­þykkti í vor, sem banna trans konum að keppa á heims­meist­ara­mótum í sundi. Þann 19. júní bár­ust fregnir af mál­inu. Full­trúar Sund­sam­bands Íslands voru meðal þeirra sem greiddu atkvæði með regl­unum.

Að fund­inum standa bæði félög hinseg­in­fólks og kven­rétt­inda­sam­tök, en Trans Ísland er til að mynda meðal þeirra fimmtán sam­taka sem sendu frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins 1. júlí.

„Sund­sam­band Íslands (SSÍ) kaus með regl­unum þrátt fyrir að þær byggi á mis­munun og úti­lokun á trans fólki, og sér­stak­lega trans konum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni sem birt var í Frétta­blað­inu.

Þar segir einnig að fólk sem hafi æft íþróttir með þann draum að verða afrek­s­í­þrótta­fólk viti að sá draumur geri snemma vart við sig.

„Þegar íþrótta­fólki, hvort sem er börnum, ung­lingum eða full­orðnum, er sagt að þau geti æft eins og þau vilja en að þau muni ekki vera vel­komin á afreks­mót, þá er það mis­munun. Þetta eru nákvæm­lega þau skila­boð sem SSÍ hefur sent trans sund­fólki á Íslandi, sér­stak­lega trans konum.“

Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að í Kast­ljós­við­tali við for­mann Sund­sam­bands Íslands þann 20. júní síð­ast­lið­inn hafi komið í ljós að SSÍ hafi ekki kynnt sér málin til hlítar áður en ákvörðun var tekin um að greiða atkvæði með regl­unum. Sam­bandið er sagt hafa kosið með „mis­munun og for­dómum“.

Í til­kynn­ing­unni segir einnig:
„Þögnin sem ríkt hefur á meðal allra ann­arra íslenskra íþrótta­banda­laga, þar á meðal hjá Íþrótta­sam­bandi Íslands, varð­andi þá afstöðu SSÍ að kjósa með úti­lokun trans kvenna úr afrekskeppnum er ógn­væn­leg. Vari þessi þögn mikið lengur er ekki hægt að túlka hana öðru­vísi en svo að ÍSÍ (og öðrum íþrótta­banda­lögum og félögum) finn­ist ekk­ert ámæl­is­vert við þessa aðför að rétt­indum trans fólks. Í það minnsta sjá þau ekki ástæðu til að gefa út yfir­lýs­ingu líkt og þau hafa gert um mörg önnur sam­fé­lags­leg mál­efni.“

Þau félög sem standa að yfir­lýs­ing­unni segj­ast í henni ekki geta sæst á að málið „drukkni í þrúg­andi þögn og aðgerða­leysi.“

Kröfur félag­anna eru eft­ir­far­andi:

  • Að SSÍ dragi atkvæði sitt til baka. Sé slíkt ekki hægt vegna tækni­legra atriða krefj­umst við þess að sam­bandið gefi út opin­ber­lega yfir­lýs­ingu þar sem það seg­ist ekki lengur geta staðið með atkvæða­greiðslu sinni og biður trans fólk afsök­unar.
  • Að SSÍ lofi að tala fyrir inn­gild­ingu og mann­rétt­indum í kom­andi umræðum og kosn­ingum ann­arra nefnda (svo sem Ólymp­íu­nefnd­anna, Evr­ópu­sam­taka og á nor­rænum vett­vangi), í stað þess að standa fyrir mis­munun og útskúfun.
  • Að Íþrótta­sam­band Íslands for­dæmi afstöðu SSÍ og taki opin­ber­lega afstöðu með rétt­indum trans fólks, þar með talið trans kvenna sem keppa í íþróttum á afreks­stigi.

„Því blásum við til kröfufundar þann 6. júlí klukkan 18 fyrir utan skrif­stofur ÍSÍ og SSÍ að Engja­vegi 6 og biðjum öll þau sem er annt um jafn­rétti og mann­rétt­inda­mál að koma og standa með okkur. Við hvetjum öll sem geta til að mæta í íþrótta­fötum til að sýna sam­stöðu,“ segir á vef Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.

Þau fimmtán sam­tök sem standa að yfir­lýs­ing­unni og kröfufund­inum í dag eru:

Argafas, In­ter­sex Ísland, Femín­ista­fé­lag Há­skóla Íslands, Hinseg­in Vest­ur­land, Hinseg­in Aust­ur­land, Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands, Q – fé­lag hinseg­in stúd­enta, Tabú – Femín­ísk Fötl­un­ar­hreyf­ing, Trans Ísland, Rauða Regn­hlíf­in, Sam­tök­in 78, Slag­tog – Femín­ísk sjálfs­vörn, Stelp­ur Rokka, Styrm­ir Íþrótta­fé­lag, Öfgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi