Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Séra Þórir Jökull Þorsteinsson var sjókokkur fyrrum: „Ég hafði eiginlega enga reynslu af matargerð“

Séra Þórir Jökull Þorsteinsson var sjókokkur fyrrum: „Ég hafði eiginlega enga reynslu af matargerð“

„Ég man eftir slæmum veðrum, sjó­slysum og mann­skaða. Einhvern tím­ann vorum við langt vestur af land­inu í slíku veðri; þá var ég með Víkingi Hall­dórs­syni á Jóni Jónssyni. Þá sáum við ekki fram á hval­bak á bátnum, bara hvít­fyssandi sjó, og þá reyndum við að halda bátnum upp í vind­inn alltaf og ég man ekki betur en að það fær­ust þá bátar úti við Vest­firði,“ segir Þórir Jökull Þor­steins­son, prestur í Noregi, í við­tali við Kolbein Þor­steins­son.

Eins og Kolbeinn segir þá hefur Þórir Jökull marga fjör­una sopið og migið í saltan sjó en áður en hann varð prestur tók hann búfræði­próf og er auk þess með Sam­vinnu­skóla­próf.

Mann munstr­aði sig á bát í Ólafsvík forðum daga. Hvernig kom það til?

„Það var nú þannig að ungur maður og atvinnu­laus vissi ekki alveg hvert leiðin lá. Þá lá bein­ast við að prófa að fara á sjó­inn og gá að því hvernig það gengi,“ segir Þórir Jökull sem fékk pláss sem kokkur á sjó á báti frá Ólafsvík, Gunnari Bjarna­syni. „Ég var nú kannski svo­lítið djarfur af því að ég hafði eig­in­lega enga reynslu af mat­ar­gerð.“

Á þessum tíma man ég ekki að það hafi verið eitt ein­asta helg­ar­frí allan mars­mánuð.

Þennan vetur reri hann með Ríkharði Magn­ús­syni sem var skip­stjóri á Gunnari Bjarna­syni. „Þetta var mikil ver­tíð. Við fisk­uðum um þús­und tonn þessa ver­tíð. Við byrj­uðum á línu og þá var helm­ingur áhafn­ar­innar í landi og helm­ing­ur­inn á sjó og síðan þegar við byrj­uðum á net­unum komu allir um borð og neta­ver­tíðin byrj­aði. Á þessum tíma man ég ekki að það hafi verið eitt ein­asta helg­ar­frí allan mars­mánuð. Það var ekki komið í reglur þá. En þetta var ágæt reynsla og ég á ágætar minn­ingar frá þess­ari fyrstu ver­tíð minni í Ólafsvík.“

Það hafa verið við­brigði fyrir dreng úr sveit að söðla svona full­kom­lega um og ekki ráð­ist á garð­inn þar sem hann er kannski lægstur; en Þórir Jökull ólst upp á Ökrum vestur á Mýrum. Hvernig gekk þetta til að byrja með?

Þeir höfðu heyrt að ég byggi til ágætan mat.

„Ég var sjó­veikur fyrstu róðrana og þurfti að kasta upp; að hlaupa fram á kló­sett og kasta upp og svo inn í eld­hús og halda áfram matseld­inni. Það fyrsta sem ég gat látið ofan í mig var íslensk kjöt­súpa sem ég gat eldað og náði mér ein­hvers staðar í upp­skrift að og eftir það var ég aldrei sjó­veikur. Svo not­aði ég land­legur og brælur til að verða mér úti um upp­skriftir; ég tal­aði svo­lítið við kon­urnar á sjó­búð­inni í Ólafsvík þar sem ég hafði her­bergi. Ég spurði þær hvernig maður byggi til hina og þessa sós­una og svo voru aðrir sjó­kokkar sem maður gat flett upp í og fengið leið­sögn hjá. Ég varð alveg ágætur kokkur. Ég man eftir því að karl­arnir sem voru í landi og beittu lín­una hlökk­uðu til að koma um borð þegar neta­ver­tíðin byrj­aði, því þeir höfðu heyrt að ég byggi til ágætan mat. Þetta var allt saman dálít­ill skóli.“

Hálfgerður barningur

Þórir Jökull segir að eftir þetta hafi hann verið hér og þar til sjós þangað til hann fann nýja leið að ganga; hann var á neta­ver­tíð, á rækju­báti og á humri. „Þetta var svona hér og þar. Ég var á tveimur eða þremur síld­ar­ver­tíðum á Höfn í Horna­firði og úti fyrir Aust­fjörðum. Þá var veitt í rek­net. Ég held að það sé alveg hætt núna. Það voru lagðar þessar ofboðs­lega löngu dræsur í hafið; skip­stjór­arnir lágu yfir dýpt­ar­mæl­inum til að finna torf­urnar og finna út hvað djúpt þær lægju á. Síðan var kallað „klárir“ og þá hlupu allir til og þessar ofboðs­legu neta­dræsur voru lagðar í sjó­inn og reynt að sökkva þeim niður á rétt dýpi. Síðan var þetta dregið inn og dregið í gegnum svo­kall­aðan hrist­ara sem hristi þá síld­ina úr.“ Þórir Jökull segir að þetta hafi verið veiði­skapur sem hafi aðal­lega farið fram á nótt­unni. „Maður var að draga þetta á nótt­unni og stundum fram á morgun.“

Sjó­mennskan var með hléum. „Ég byrj­aði upp úr nýári 1979 og síðan var þetta með hléum. ég held að síð­asta úthaldið mitt hafi verið á rækju­báti frá Ísafirði sum­arið 1983. Þá hafði ég ein­sett mér að fara í skóla eftir hlé. Ég var orð­inn faðir og þetta var ekki allt ein­falt; að sjá fram á að geta fjár­magnað að kom­ast í skóla. Ég byrj­aði á því þetta sumar og var á trolli á báti sem heitir Kópur og er frá Þor­láks­höfn. Svo einu sinni vorum við að fara út og þá var ein­hver skíta­bræla og skip­stjór­inn, Gunnar Egilsson, ákvað að snúa við í þetta sinn og það varð úr þessu eitt­hvert stopp. Á þeim tíma frétti ég að það vant­aði kokk á rækju­bát, reyndar Jón Jónsson frá Ólafsvík, sem þá lagði upp á Ísafirði.

Þá voru menn að byrja að veiða úthafs­rækju úti fyrir Norð­ur­landi og Vest­fjörðum og það var gríð­ar­lega hátt verð á rækju á heims­mark­aði. Og það var verið að vinna þetta á Ísafirði. Ég hringdi og kann­aði hvort ég gæti ekki fengið þetta starf og það stóð bara heima. Ég man að ég fór hálfaf­sak­andi til Gunnars Egils­sonar, skip­stjóra á Kópnum, og sagði honum að ég hefði fengið starf sem gæfi lík­lega betur af sér, hvort hann myndi ekki fyr­ir­gefa mér ef ég söðl­aði um. Hann var ekk­ert kátur, en lét þetta eftir mér. Þetta sumar sem við vorum að veiða rækj­una úti fyrir Norð­ur­landi og norður af Vest­fjörðum gaf svo vel í aðra hönd að ég gat byrjað í Sam­vinnu­skól­anum og það var skref inn í nýja til­veru fyrir mig.“

Það var ekk­ert ofboðs­lega mikið úr þessu að hafa.

Á þessum tíma hafa það verið gríð­ar­leg upp­grip fyrir unga menn að fá pláss á vin­sælum skipum. Var það ekki raunin hjá þér í flestum til­vikum?

„Það gátu komið góðar slettur inn á banka­reikn­ing­inn hjá manni eða í launa­umslagið en þvert yfir finnst mér þetta oft hafa verið hálf­gerður barn­ingur. Það var ekk­ert ofboðs­lega mikið úr þessu að hafa. Miklar fjar­vistir. En jú, kannski miðað við fyrir ómennt­aðan mann og óreyndan þá gaf þetta betur af sér heldur en margt annað. Þetta gat líka á köflum verið skemmti­legt. Ef maður var í góðri áhöfn þar sem var góður mórall og skemmti­legur mann­skapur þá var þetta aldeilis ágætt fyrir ungan mann að reyna að spreyta sig á þessu.“

Jú, mórall­inn skiptir máli. „Ég man eftir því á neta­ver­tíðum þegar við vorum að draga inn tross­urnar og taka þorskinn úr þeim þá var oft líf­legt spjall yfir neta­borðið og verið að segja alls konar kjafta- og lyga­sögur. Þetta gat verið alveg ofboðs­lega gaman og fór eftir því hversu góðir sögu­menn áttu í hlut.“

Trúin og sjósóknin

Svo söðl­aði Þórir Jökull um og fór í guð­fræði. Fisk­ur­inn er trú­ar­legt tákn. Er hægt að tengja þetta saman við fisk­veiðar?

„Það er margt sem getur leitt menn á svið trú­ar­legra þanka, svið guð­fræð­innar. En það er alveg rétt; ég man oft þessa til­finn­ingu til sjós að finn­ast bátur og menn afskap­lega smáir og eiga ein­hvern veg­inn allt undir bæði for­sjón­inni og því hvernig tíð­ar­farið hag­aði sér. Og hvort tveggja er nátt­úr­lega bjarg­ræð­is­vegur; trúin og sjó­sóknin. Það er það hvort á sinn hátt.“

Þar er ákveðin menn­ing út af fyrir sig.

Þórir Jökull er spurður hvort hann hafi fundið fyrir löngun til að fara aftur á sjó eftir að hann hætti.

„Mér hefur alltaf þótt vænt um þennan tíma og á þann hátt er alveg óhætt að tala um taugar til þess arna og sjó­sóknar og þess líf sem hrær­ist um borð í fiski­bátum. Þar er ákveðin menn­ing út af fyrir sig. En það ein­hvern veg­inn varð ekki þannig að þetta yrði nær­tækt eftir að þessu luak. En ég hef til dæmis alltaf tekið til mín hátíð­ar­höld á sjó­manna­degi og verður þá hugsað til þess­ara tíma og þess­arar reynslu.“

Hægt er að hlusta á allt við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi